Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón Bjarki fjórum sinnum þurft að aflýsa frumsýningu álfamyndar: „Þetta er orðinn algjör brandari“

Jón Bjarki fjórum sinnum þurft að aflýsa frumsýningu álfamyndar: „Þetta er orðinn algjör brandari“

„Þetta hefur verið þyrnum stráður leið­angur,“ segir Jón Bjarki Magn­ús­son en heim­ilda­mynd hans, Hálfur Álfur átti að vera frum­sýnd í gær­kvöldi.

Frum­sýn­ing mynd­ar­innar átti að fara fram um versl­un­ar­manna­helg­ina í fyrra en var frestað vegna Covid. Síðan þá er búið að skipu­leggja frum­sýn­ingar ítrekað en alltaf hafa kvik­mynda­húsin skellt í lás korter í sýn­ingu. „Þetta er orð­inn algjör brand­ari,“ bætir hann við hlæj­andi.

Hættur að efast

Hann telur að lang­lík­leg­ast að álög séu á mynd­inni. „Ég er ekki svona álfa­maður, bý í Þýska­landi og verð alveg fer­lega pirr­aður þegar Þjóð­verjar spyrja mig um hvort ég trúi ekki á álfa út af því að ég sé Íslend­ingur. En núna er ég far­inn að líta málið öðrum augum og er alveg opinn fyrir því að álfar hafi lagt álög á mynd­ina. Ég hlýt að hafa ögrað þeim eitt­hvað með gerð mynd­ar­innar. Ég er orð­inn opinn fyrir öllum kenn­ingum því þetta hefur verið með algjörum ólík­indum.“

Myndin var einnig skipu­lögð til sýn­ingar á hinum ýmsu kvik­mynda­há­tíðum víða um heim sem vorum færðar á Netið. „Flestir hafa lent í einum, kannski tveimur, við­burðum sem þurfti að fresta en myndin mín er komin með langa sögu frest­ana.“ Myndin er enn­fremur til­nefnd til Eddu­verð­launa sem besta heim­ilda­myndin.

Náðum stund við hvíta tjaldið

Jóni Bjarka var gerð þess­arar myndar hjart­ans mál og vissu­lega finnst honum það sárt að koma henni ekki í sýn­ingar. „En þetta er ekki í mínum höndum lengur, ég gerði mitt og nú verður hún að fljúga sína leið sjálf. Maður verður bara að sleppa tremm­anum og taka þessu af æðru­leysi.“

Myndin var upp­haf­lega loka­verk­efni Jóns Bjarka í MA námi hans í sjón­rænni mann­fræði í Berlín. Hún stækk­aði síðan í heila heim­ild­ar­mynd. Það náð­ist að sýna mynd­ina á Skjald­borg­ar­há­tíð­inni í Bíó Paradís í fyrra, í eitt skipti, þar sem hún fékk dóm­nefnd­ar­verð­laun, en strax í kjöl­farið kom til hópsmit og þar með lokað fyrir fleiri sýn­ingar.

Jón Bjarki og kona hans, Hlín, sem einnig er fram­leið­andi mynd­ar­innar náðu þó að halda hátíð­ar­sýn­ingu á mið­viku­dag með aðstand­endum mynd­ar­innar og fjöl­skyldum sínum. „Það var ynd­is­leg stund að fá að njóta þess loks­ins að sjá mynd­ina á kvik­mynda­tjaldi með sínum nán­ustu. Það var okkur mjög mik­il­vægt og slær aðeins á svekk­elsið við að enn sé búið að fresta.”

Skipulagði jarðarförina

Myndin fylgir eftir afa og ömmu Jóns Bjarka, Trausta Breið­fjörð Magn­ús­syni og Huldu Jóns­dóttur, síð­ustu árin við und­ir­bún­ing tveggja stórra við­burða. „Afi var önnum kaf­inn við að und­ir­búa ann­ars vegar jarð­ar­för­ina sína og hins vegar hund­rað ára afmælið. Hann vildi samt halda afmælið áður en hann héldi jarð­ar­för­ina“, segir Jón Bjarki. „Hann var búinn að kaupa kist­una, velja tón­list­ina, prest­inn og kom­inn með graf­reit norður á Ströndum. Hann átti líka fullan kassa af sterku víni, viskí og kon­íaki, sem átti að bera fram í erfi­drykkj­unni!”

Afi Trausti átti það til að bresta í söng.

Jóni Bjarka finnst mik­il­vægt að fólk í dag nái tengslum við kyn­slóð­ina sem er að hverfa núna. „Yfir­leitt er gam­alt fólk alltaf spurt um for­tíð­ina en mér fannst mik­il­vægt að ná þeim í núinu. Þessu dag­lega lífi í kjall­ar­anum við Aust­ur­brún.“

Jón Bjarki vildi ekki mynda þau sem afa og ömmu heldur sem ein­stak­linga. „Þau vönd­ust smám saman mynda­vél­inni og héldu áfram sínu dag­lega lífi.“

Rifust eins og hundur og köttur

Jón Bjarki segir þau hafa verið gríð­ar­lega ólík. „Þau rifust eins og hundur og köttur í 70 ár. Kannski var það dýnamíkin í hjóna­bandi þeirra. Afi var mjög opinn, mik­ill sprelli­gosi, og átti til að bresta í söng án fyr­ir­vara, sem gerði ömmu brjál­aða. Hún var rólegri, meiri bóka­kona og fór með heilu ljóða­bálk­ana.

Eitt af því sem þau gátu enda­laust rif­ist um voru hvort væri mik­il­væg­ara, steinar eða bækur. Afi var steina­maður og harður á því að þeir skiptu meira máli en bók­ar­skræður en þá rauk amma upp.“

Svo komu álfarnir…

Það er rétt fyrir ald­ar­af­mælið að Trausti ákvað að breyta um nafn og heita Álfur. „Þá vissi ég ekki hvert amma ætl­aði og hót­aði að visa honum á dyr ef hann léti af því verða.”

Trausti var fæddur 1918 og ólst upp við sögur og söngva um álf­ana allt um kring æsku­heim­ilið. „Þeir þóttu eðli­legur partur af hinu dag­lega lífi. Þegar hann veik­ist svo vorið 2018 var hann nær dauða en lífi og versn­aði af elli­glöpum. Þá komu álfarnir enn meira inn. Þeir voru alls staðar, sátu við sjúkra­rúmið, komu til hans í draumi, báðu hann um að syngja og sögðu honum sögur.“  Jón Bjarki segir að eftir spít­ala­vist­ina hafi afi hans aldrei jafnað sig þar til hann lést. „En hann náði að halda upp á 100 ára afmælið.”

Amma Hulda var öllu jar­bundn­ari en afi.

Jón Bjarki seg­ist vera óend­an­lega þakk­látur fyrir að hafa tek­ist á við þetta verk­efni og náð þessum tíma í lífi afa síns og ömmu, tíma með ein­stak­lingum af horf­inni öld.

„Þau voru bæði ofsa­lega spennt fyrir mynd­inni en því miður náði hvor­ugt þeirra að sjá hana því amma fellur síðan frá í maí í fyrra. Þau náði þó að sjá skóla­út­gáf­una af mynd­inni á litlum skjá á Hrafn­istu þar sem Trausti bjó fyrir and­lát sitt. Við bjuggum til smá við­burð í til­efni þess. Hún og við öll erum þakk­lát fyrir það,“ segir Jón Bjarki sem bíður bjart­sýnn eftir að myndin hans kom­ist í sýn­ingar. Loksins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina