Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hrottaleg líkamsárás á Völlunum í Hafnarfirði – Tengsl við skipulagða glæpastarfsemi ósönnuð

Hrottaleg líkamsárás á Völlunum í Hafnarfirði – Tengsl við skipulagða glæpastarfsemi ósönnuð

Tveimur dögum fyrir jól árið 2011 varð hálf­þrí­tug kona á Völlunum í Hafn­ar­firði fyrir skelfi­legri lík­ams­árás.

Mis­þyrm­ing­arnar voru svo alvar­legar að fjöl­miðlar vör­uðu fólk við lýs­ingum á þeim. Mannlíf gerir slíkt hið sama.

Svo virð­ist sem um per­sónu­legan ágrein­ing hafi verið að ræða. Hann mun hafa tengst nekt­ar­myndum, mót­or­hjóli, meintum pen­inga­þjófn­aði og ásök­unum um aðgerðir gegn þroska­heftu barni.

Stig­magn­að­ist svo ágrein­ing­ur­inn með fyrr­nefndum afleið­ingum.

Uppgjörið

Einar „Boom” Mart­eins­son, leið­togi Hells Angels á Íslandi, og alræmd­ustu vél­hjóla­sam­taka heims var hand­tek­inn fyrir árás­ina ásamt fimm öðrum. Öll voru þau ákærð.  Það voru þau Andrea „vonda stelpa” Gunn­ars­dóttir, Jón Ólafsson, Elías Valdimar Jónsson og Óttar Gunn­ars­son. Voru þau ákærð fyrir sér­stak­lega hættu­lega hættu­lega lík­ams­árás, rán, nauðgun og þátt­töku í skipu­lagðri brota­starf­semi auk þess að skipu­leggja árás­ina. Enn­fremur var Grímur Sveinn Erlends­son ákærður fyrir geymlu á fatn­aði og vopnum sem notuð voru við verkn­að­inn.

Þessi deila náði svo hámarki 22. des­em­ber þegar þau héldu að heim­ili fórn­ar­lambs­ins. Óttar opn­aði úti­dyra­hurð­ina, en hann bjó um tíma í húsi fórn­ar­lambs­ins. Þess ber þó að geta að hann kom með engum hætti að árásinni sjálfri. Þetta gerði það að verkum að Andrea, Elías og Jón komust óhindrað inn.

Hroðalegar misþyrmingar

Þar veitt­ust þau með ofbeldi að kon­unni, slógu og spörk­uðu ítrekað í höfuð hennar og lík­ama, meðal ann­ars með leð­ur­kylfu, skelltu henni í gólfið, drógu hana á hár­inu um íbúð­ina, reyttu og klipptu eða skáru hár hennar og rifu það upp með rótum, skáru eða klipptu í hægri vísi­fingur hennar, slitu upp nögl á sama fingri, hót­uðu því að taka af henni alla fingur ef hún segði til þeirra og neyddu upp í hana fíkni­efnum.

Andrea lagði enn­fremur hníf að hálsi hennar og þrengdi önd­un­ar­veg. Elías setti fingur í kyn­færi og enda­þarf kon­unnar og kleip á milli.

Fórn­ar­lambið hlaut marg­vís­lega áverka. Meðal ann­ars heila­hrist­ing, sár og mikil eymsli við kyn­færi og enda­þarm auk áfallastreiturösk­unar.

Aðkoma Einars

Aðkoma Einars að mál­inu var alltaf óljós. Fórn­ar­lambið mun hafa hringt í Einar og beðið hann um að lægja öld­urnar í deilu hennar og Andreu. Einar tók fálega í það. Hún kvað hann hafa hótað sér en neit­aði síðan að ræða það frekar. Ljóst var að Andrea, Jón og Elías voru heima hjá Einari tveimur klukku­stundum fyrir árás­ina og einnig var hann í sam­bandi við Óttar og Elías morg­unin eftir árás­ina. Hélt hann því stað­fast­lega fram að það hefði á engan hátt tengst árásinni.

Eftir hálft ár í gæslu­varð­haldi var Einar sýkn­aður. Andrea hlaut þyngsta dóm­inn, fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Hún hafði staðið í deilum við fórn­ar­lambið um hríð en áður voru þær nánar.

Deil­urnar munu hafa snú­ist um síma með nekt­ar­myndum af Andreu sem hún sagði fórn­ar­lambið hafa hótað að deila, auk þess að stela af henni pen­ingum. Auk þess sagði Andrea hana hafa hótað þroska­heftri dóttur sinni. Þá hafi þær einnig deilt um mót­or­hjól sem fórn­ar­lambið hafði sótt áður, en Andrea sagð­ist hafa keypt það af fyrr­ver­andi sam­býl­is­manni fórn­ar­lambs­ins. Töluvert síðar átti raunar eftir að koma í ljós að hjólið var stolið.

Þau voru öll sýknuð af ákæru um skipu­lagða glæp­a­starf­semi en í dómnum segir að ekk­ert bendi til þess að árásin hafi verið skipu­lögð af glæpa­sam­tökum. Meðal ann­ars hafi lög­reglan haft undir höndum dag­bækur Hells Angels og þar bendi fátt sem ekk­ert til þess að tengsl hafi verið á milli Vít­isengl­anna og hinna dæmdu.

Óttar hlaut tveggja og hálfs árs dóm, Elías og Jón fengu báðir fjög­urra ára fang­elsi. Einar hót­aði lög­sókn á hendur hins opin­bera og fékk sjö og hálfa milljón í skaða­bætur í kjöl­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina