„Það að líkja þessu augljósa gríni við stafrænt ofbeldi er blaut tuska framan í alla sem hafa upplifað stafrænt ofbeldi.“ Þetta segir Jafet Sigfinnsson á Twitter og vísar til varnar Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns Pírata, á Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni á dögunum. Helgi Hrafn fullyrti um helgina að samfélagsmiðlastjarnan Bassi Maraj hafi beitt Hannes ofbeldi þegar hann grínaðist með kynferðisleg samskipti þeirra af forritinu grindr.
Bassi svaraði svo fyrir sig eftir að Hannes hraunaði yfir hann: „Jésus Hannes hver hleypti þér á twitter og áður en þú ferð að rífa þig þá á ég ss af grindr spjallinu okkar.“ Mörgum þótti tilsvarið gott, líkt og fjöldi læka ber vitni um. Helgi Hrafn var ekki þar á meðal. „Nei, fjandinn hafi það, ég vil frekar vera óvinsæll en að þegja yfir þessu. Þetta er ekkert minna en ógeðslegt. Það vekur hrylling að sjá gott fólk fagna þessu. Þetta er ofbeldi og er ekkert réttlætanlegra gegn þessum einstaklingi frekar en öðrum. Hættið þessu,“ skrifaði Helgi.
Óhætt er að segja að sitt sýnist hverjum um afstöðu Helga en Jafet er líkt og fyrr segir ekki sammála. Hann segir Helga gera lítið úr stafrænu ofbeldi með þessu. Jafet segist þolandi slíks ofbeldis. „Þegar ég var 17 ára gamall fór MSN spjall milli mín og annars stráks í dreifingu í menntaskólanum mínum. Þetta var mjög persónulegt samtal með samþykki beggja aðila en ég var inní skápnum á tímanum þannig þetta var gífurlega mikið áfall fyrir mig. Ég fór í bilaða afneitun, þurfti að verja mig fyrir þessu við vini, ættingja, starfsfólk skólans svo fátt eitt sé nefnt. Ég leitaði til lögreglunnar sem gaf í skyn að það skipti miklu máli að þetta samtal væri feik ef ég ætlaði að gera eitthvað í þessu,“ skrifar Jafet.
Hann segir þetta hafa verið hræðilegt fyrir ungan mann. „Ég hélt auðvitað áfram að neita fyrir sanngildi samtalsins og er í raun fyrst núna að staðfesta að það var ekki feik enda fékk ég ýmsar afsökunarbeiðnir í gegnum tíðina sem virtust einungis halda gildi afþví ég náði að sannfæra þau að samtalið væri feik. Það var ekkert sakhæft í spjallinu. Þetta voru tveir ungir strákar að skoða kynhneigð sína í mjög persónulegu samtali. Engan sakaði en dreifingin eyðilagði mig. Ég var að díla við mikla hommafóbíu innbyrðis og fannst ömurlegt að allir sem ég þekktu hefðu lesið samtalið. Það hefði engum fundist neitt athyglisvert við þetta samtal ef þetta hefðu verið strákur og stelpa en tveir strákar að tala svona saman var fyndið, ógeðslegt og niðurlægjandi. Ég sökk í svo mikið þunglyndi í kjölfarið og langaði að drepa bæði mig og strákinn sem lak þessu,“ segir Jafet.
Hann segir þessa martröð ekki það sama og augljóst grín. „Ég var sautján ára. Ég hafði ekki gert neitt rangt. Þetta var stafrænt ofbeldi sem hefur mótað mig alla daga síðan þó ég sé búinn að vinna vel úr því og er í dag stoltur samkynhneigður maður. Bassi Maraj að pósta augljóslega fake mynd af Hannesi að segja „ég ætla að ríða þér eins og ég hef riðið skattgreiðendum Íslands í mörg ár“ er ekki sambærilegt við þetta. Það sjá allir að þetta er djók. Kannski hægt að deila um það hvort þetta sé fyndið en samfélagið og fólkið sem er að gagnrýna þetta djók samþykkir margfalt ófyndnari og ónærgætnari brandara en þetta.“































Athugasemdir