Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pabbi vill ekkert með mig hafa

Pabbi vill ekkert með mig hafa

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég átti ham­ingju­sama æsku þótt ég hafi aldrei kynnst blóð­föður mínum. Pabbi minn kom inn í líf okkar mömmu þegar ég var smá­barn og hann ætt­leiddi mig. Ég vissi ætíð vel að við værum ekki blóð­skyldir en velti því aldrei fyrir mér fyrr en ég átti sjálfur von á barni Þá reyndi ég að hafa sam­band við föður minn en fékk þannig við­brögð að ég gerði mér ljóst að ég væri betur kom­inn án þess manns í lífi mínu.

Mamma varð ófrísk að mér eftir einnar nætur ævin­týri með manni sem var gest­kom­andi í heimabæ hennar. Þegar hún upp­götv­aði að ég var á leið­inni hafði hún sam­band við hann og lét hann vita. Blóð­faðir minn brást mjög illa við og til­kynnti mömmu að hann vildi að hún færi í fóst­ur­eyð­ingu. Hann sagð­ist ekki kæra sig um barn og alls ekki með henni ein­hverri stelpu­skjátu sem hann vildi ekk­ert með hafa. Mamma svar­aði strax að hún hefði engan áhuga á honum heldur en fóst­ur­eyð­ing kæmi ekki til greina en hann réði hvort hann hefði sam­band eða ekki. Allt þetta sagði mamma mér löngu seinna. Allan minn upp­vöxt ólst ég upp við að blóð­faðir minn byggi langt í burtu og velti mér í sjálfu sér aldrei neitt upp úr því.

Ég man lítið eftir þeim tíma þegar mamma kynnt­ist pabba. Hún sagði mér að ég hafi strax tekið honum vel og gott sam­band mynd­ast milli okkar. Þegar hún var ófrísk af eldri systur minni spurði hann hana hvort hann mætti ætt­leiða mig þannig að börnin þeirra hefðu öll sama föð­ur­nafn. Mamma sam­þykkti það strax og fyrir kurt­eis­isakir lét hún blóð­föður minn vita. Hún þurfti þess ekki því á þessum tíma var lög­unum þannig háttað að mæður barna sem fædd­ust utan sam­búðar eða hjóna­bands réðu alfarið slíku og þurftu ekki að ráðg­ast við feð­urna. Hún fékk engin við­brögð frá honum og ég fékk annað föð­ur­nafn.

„Mikið er strákurinn líkur þér“

Við fluttum til Reykja­víkur skömmu seinna og ég ólst upp í einu úthverfa borg­ar­innar. Í dag finnst mér svo­lítið kald­hæðn­is­legt að blóð­faðir minn bjó í sama hverfi í göngu­fjar­lægð frá okkur. Það getur því vel verið að ég hafi ein­hvern tíma séð hann á götu án þess að hafa hug­mynd um hver hann var.

„Ég er sonur Guðrúnar Jóns­dóttur og ég held að þú sért blóð­faðir minn.“ Það varð örstutt þögn síðan sagði hann: „Ég hef ekk­ert við þig að tala.“

Ég hafði mjög gaman af íþróttum og stund­aði þær af kappi þegar ég var barn. Pabbi var ánægður með það, enda íþrótta­maður sjálfur og kom á alla kapp­leiki hjá mér og fylgd­ist vel með öllu því sem ég var að gera. Oft hafði fólk þá orð á því hve líkir við feðgar værum. Eitt sinn hitti pabbi gamlan félaga sinn úr fót­bolt­anum en sá átti dreng lið­inu sem keppti á móti mér. Við unnum leik­inn og ég var í óvenju­lega góðu stuði í það sinn og hafði skorað sex mörk. Maðurinn gekk til pabba þar sem við stóðum fyrir utan bíl­inn á bíla­stæð­inu eftir leik­inn og sagði: „Mikið er strák­ur­inn líkur þér. Þið eruð bara alveg eins.“ Pabbi brást glaður við og sagði að ég hefði lip­urð­ina með bolt­ann frá honum. Síðan bætti hann við glaður og hreyk­inn: „Já, hann er manns­efni hann sonur minn.“

Á þessum árum fannst mér þetta sjálf­sagt og leiddi aldrei hug­ann að því hversu óvenju­legur og góður maður hann var. Síðan hef ég heyrt frá fólki sem ég hef kynnst sögur af því hvernig nýir makar for­eldra þeirra hafi ekki getað sætt sig við þau og mis­munað þeim og sínum eigin börnum. Ég fann aldrei fyrir slíku, eig­in­lega þvert á móti. Ég á nefni­lega tvær systur og kannski þess vegna eðli­legt að við pabbi næðum saman um alls konar áhuga­mál. Hann fór með mig á veiðar, við gengum saman á fjöll og vorum á kafi í bolt­anum.

Meyr eftir fæðingu fyrsta barnsins

Pabbi minn er iðn­að­ar­maður og rekur fyr­ir­tæki í þeirri grein. Ég fet­aði í fót­spor hans og aldrei kom annað til greina en að ég færi að vinna hjá honum eftir að námi lauk. Í gegnum starfið kynnt­ist ég svo kon­unni minni. Við giftum okkur eftir rétt rúm­lega árs sam­band og þá var Sigga mín komin fjóra mán­uði á leið. Líklega væri leitun að ham­ingju­sam­ari hjónum en okkur tveimur og þótt við værum ung vorum við virki­lega spennt að verða for­eldrar. Meðganga var hins vegar mikil rússi­ban­areið því Sigga varð mikið veik á seinni hlut­anum og um tíma tví­sýnt um líf barns­ins. Þegar ég hélt á syni mínum í fyrsta sinn var ég því meyr og klökkur, óend­an­lega þakk­látur fyrir að hafa fengið að halda þeim báðum. Í því til­finn­inga­um­róti vakn­aði með mér í fyrsta sinn ein­hver löngun til að kynn­ast og sjá þann mann sem hafði getið mig.

Ég fór þess vegna til mömmu og spurði hana nánar út í hann. Hún gaf mér strax nafnið hans en lét í ljós efa­semdir um hversu heppi­legt væri að setja sig í sam­band við hann. Ég var hálf­hissa, enda hafði mamma aldrei talað um hann við mig. Hún vildi samt ekki segja meira en sagð­ist vilja heyra í mér þegar ég væri búinn að tala við hann. Ég fletti blóð­föður mínum upp í síma­skránni og hringdi strax sama kvöld. Faðir minn svar­aði sjálfur í sím­ann og ég kynnti kurt­eis­lega og sagði svo: „Ég er sonur Guðrúnar Jóns­dóttur og ég held að þú sért blóð­faðir minn.“ Það varð örstutt þögn síðan sagði hann: „Ég hef ekk­ert við þig að tala.“ Og áður en ég hafði almenni­lega áttað heyrði ég són­inn í sím­anum. Faðir minn, þessi prýð­is­maður, hafði skellt á.

„Ég hef að minnsta kosti aldrei heyrt neinn segja um ein­hvern mann: „Já, hann, algjör­lega ómögu­legur faðir. Ég myndi ekki treysta honum hæt­is­hót.“ Hins vegar heyri ég oft sagt: „Hann er nú stór­skuld­ugur og borgar aldrei krónu. Passaðu þig á honum.“

Ég sat högg­dofa eftir, eig­in­lega meira undr­andi en sár, sárs­auk­inn koma síðar. Ég hringdi hins vegar strax í mömmu og sagði hennni hvað hefði gerst. Hún og pabbi komu strax til mín og það var þá sem hún sagði mér upp alla sögu af kynnum hennar af föður mínum og við­brögðum hans við barn­inu sem hann gat en vildi siðan enga ábyrgð taka á. Mér leið hræði­lega eftir þetta og Sigga hvatti mig til að fara til sál­fræð­ings og ræða við hann um þetta. Ég gerði það sem hjálp­aði mikið. Eitt af því sem hann sagði við mig sat í mér og ég hugsa oft til þess. „Við erum ekki börn for­eldra okkar nema að því leyti sem við viljum vera það. Við þurfum ekki að end­ur­taka þeirra mis­tök eða sam­sama okkur þeirra göllum. Það er hægt að hefja sig yfir allt.“

Leggur metnað í að vera góður faðir

Ég tók þessi orð mjög alvar­lega og hef lagt metnað í að vera sjálfur góður faðir. Ég á  nú orðið tvö börn og þegar ég horfi á þau að leik á gólf­inu heima skil ég ekki þá menn sem geta hugsað sér að yfir­gefa eða sjá aldrei börnin sín. Mér finnst þau for­vitni­legir og dásam­legir ein­stak­lingar og er hreyk­inn af því hversu efni­leg og fal­leg þau eru. Ef ég vissi að ég ætti barn ein­hvers staðar ann­ars staðar fyndi ég aldrei ró í mínum beinum nema að vita hvernig að því væri búið og hvort það hefði ein­hverja eðl­is­eig­in­leika frá mér. Auk þess skil ég ekki karl­menn sem geta hugsað sér að sofa hjá konum en ekki takast á við hugs­an­legar afleið­ingar þeirrar ákvörð­unar. Okkur þykir þeir menn fyr­ir­lit­legir sem ekki standa við skuld­bind­ingar sínar í fjár­málum eða gagn­vart vinnu­veit­anda en fáir velta því fyrir sér hvort menn standi sig gagn­vart börn­unum sínum. Ég hef að minnsta kosti aldrei heyrt neinn segja um ein­hvern mann: „Já, hann, algjör­lega ómögu­legur faðir. Ég myndi ekki treysta honum hæt­is­hót.“ Hins vegar heyri ég oft sagt: „Hann er nú stór­skuld­ugur og borgar aldrei krónu. Passaðu þig á honum.“

En þótt ég tali á þennan hátt um menn sem ekki axla ábyrgð er ég ekki bitur eða reiður föður mínum. Ég  held að ég hafi verið mun betur kom­inn án hans og ég eign­að­ist besta pabba sem hægt var að hugsa sér. Nýlega kynnt­ist ég hálf­bróður mínum sam­feðra sem frétti af mér í gegnum sam­eig­in­legan kunn­ingja okkar. Okkur kemur ágæt­lega saman og hann er orð­inn hluti af lífi mínu. Sjálfur ólst hann ekki nema að litlu leyti upp hjá föður okkar því móðir hans skildi við hann þegar hann var rétt nýorð­inn fimm ára.

Hann segir föður sinn stífan og erf­iðan mann í umgengni. Enginn skilur þó hvers vegna hann tók svo afger­andi afstöðu gegn mér. Hann var ókvæntur þegar mamma varð ófrísk af mér svo ekki var það vegna þess að hann þyrfti að leyna til­vist minni. Bróðir minn segir að hann eigi það til að bíta eitt­hvað í sig og geta þá ekki látið af því með nokkru móti. Mér er alveg sama hver ástæðan er, veit að ég ber litla virð­ingu fyrir honum og er feg­inn að vita að ég lík­ist honum ekki á nokkurn hátt.

Líf­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu