Aðalheiður Auðbjargardóttir, íslensk hjúkrunarkona, smitaðist af COVID í starfi sínu á bráðamóttöku sjúkrahússins í Bærum í Noregi. Hún hafði ekki verið bólusett vegna þess að hún starfar ekki í fullu starfi.
Norskir fjölmiðlar greina frá þessu. Í samtali við NRK segist Aðalheiður ekki skilja hvers vegna hún var ekki bólusett. „Ég starfa í framlínunni og það er mikilvægt að við séu heilsuhraust. Það vantar svo gífurlega starfsfólk að hjúkrunarfræðingum frá öllum Norðurlöndum er flogið inn,“ segir Aðalheiður.
Aðalheiður hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku í um 17 ár. Hún segist ekki skilja hvers vegna svo fáir hjúkrunarfræðingar á bráðamóttöku séu bólusettir í Noregi. „Ég botna ekkert í þessu. Ég skil ekki af hverju við erum ekki bólusett,“ segir Aðalheiður.































Athugasemdir