Í gærkvöldi var birt myndband af ungu fólki í Breiðholti vera mölbrjóta hlið strætóskýlis við Seljakirkju.
Myndbandinu var deilt inn í hópnum Íbúasamtökin Betra Breiðholt á Facebook.
Haft var samband við lögreglu, en ekki er vitað hvort það hafi tekist að hafa upp á ungmennunum.
Fólk lýsir yfir vonbrigðum sínum á þessu athæfi og stingur ein upp á því hvort setja ætti upp eftirlitsmyndavélar við skýlin eins og gert sé í Kópavogi og Hafnarfirði.
Hafdís nokkur skrifar: „Þetta er með eindæmum það þarf að eyðileggja allt. Er hægt að hjálpa þessum börnum?“
Og önnur skrifar: „Hvað er að þessum krökkum ekkert fær að vera í friði.“
Guðmundur nokkur stingur upp á að haft verði upp á krökkunum og þau látin borga fyrir viðgerð á strætóskýlinu.
Segist einn hafa hitt krakkana og sagt við þau að þetta væri ekki í lagi. Segir hann þau þá hafa sagt hann vera „kúrva mats“ með ógnandi tilburðum.
Halldóra nokkur skrifar: „Það er eitthvað að þegar krakkar láta svona kannski óþarfi að nota ljót orð á þau , þeim líður eitthvað illa , krakkar í jafnvægi haga sér ekki svona.“































Athugasemdir