Mikill harmur en jafnframt reiði er meðal vina og vandamanna unga mannsins sem lést af völdum áverka sem hann hlaut í hrottafengninni árás í fyrradag. Þetta herma heimildir Mannlífs en ættingjar telja albanska glæpaklíku bera ábyrgð á morðinu.
Maðurinn, sem var þrjátíu ára, lést síðdegis í gær á Landspítalanum en degi áður fannst hann illa haldinn fyrir utan heimili sitt í Vindakórum í Kópavogi með alvarlegan höfuðskaða. Ungi maðurinn komst aldrei til meðvitundar og lést í gær. Lögregla rannsakar málið sem morð. Mannlíf greindi fyrst frá málinu.
RÚV greinir frá því að þrír erlendir ríkisborgarar hafa verið handteknir en sérstaklega er tekið fram að málið sé ekki talið tengjast morðinu í Rauðagerði. Albanskur karlmaður, Angjelin Sterkaj, hefur játað að hafa myrt Armando Bequiri, þrítugum fjölskylduföður sem átti rætur að rekja til Albaníu.
Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir morðið í Vindakórum ekki tengjast skipulagðri glæpastarfsemi en ættingar deila ekki þeirri skoðun með honum. Eftir morðið í Rauðagerði lýstu sumir, svo sem Björn Ingi Hrafnsson, yfir áhyggjum af því að albanska mafían hefði hreiðrað um sig á Íslandi. Atvikið um helgina kann að renna stoðum undir þá kenningu.































Athugasemdir