Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þórarinn Þórarinsson minnist ömmu sinnar: Má ekki fella eitt einasta tár að henni látinni

Þórarinn Þórarinsson minnist ömmu sinnar: Má ekki fella eitt einasta tár að henni látinni

„Amma Ragn­heiður, eða bara amma Ragg, var tæpum mán­uði frá því að verða 101 árs þegar hún fékk loks­ins að „himmla“, eins og hún kall­aði það, full­södd líf­daga og löngu til­búin til þess að bæt­ast í þann gleð­skap og forn­vina­fögnuð sem hún hafði sterkan grun um að afi og annað sam­ferð­ar­fólk hefði þjófstartað án hennar,” segir Þórarinn Þór­ar­ins­son blaða­maður í fal­legri en jafn­framt hnyttnum minn­ing­ar­orðum um ömmu sína, Ragn­heiði Vig­fús­dóttur Þormar. Ragn­heiður var mán­uði frá sínum 101 afmæl­is­degi þegar hún lést.

Þórarinn minn­ist ömmu sinna á ljúfan og hnyttin hátt.

Þórarinn taldi rétt að standa við löngu gefið lof­orð við ömmu sína um að halda því til haga að hún hefði ekki verið væmna ömmutýpan.

Gefum Þórarni orðið.

„Amma var sam­kvæm­is­ljón og eins og fiskur í vatni þegar hún sveif um veislu­gólf með gullið vín í glasi og fór hvergi leynt með að heldur þótti henni æðri mátt­ar­völd leika hana grátt með því að láta hana tóra löngu eftir að veisl­unni lauk og allir hinir farnir í eft­irpartí handan móð­unnar miklu. Verst af öllu þótti henni síðan að þurfa að þola skrokk­inn gefa eftir og gigt­ina efl­ast á meðan hug­ur­inn væri enn kvikur og haus­inn í lagi.

Þetta ósætti bar hún síður en svo í hljóði og þannig byrj­aði Doddi, sonur minn, barn­ungur að kalla hana „amman sem getur ekki dáið“ og byggði nafn­bót­ina á traustri frum­heim­ild þar sem hann hafði ítrekað heyrt langömmu sína lýsa því yfir að þetta væri löngu orðið gott hérna megin grafar.

Tæpum tutt­ugu árum síðar kom svo loks­ins að því að „amman sem getur ekki dáið“ fékk að kveðja og sam­kvæmt ströngum fyr­ir­mælum hennar ber mér að sam­gleðj­ast henni frekar en syrgja. Hún lagði þunga áherslu á þetta og ef til vill er það til marks um aust­firska hörku ömmu minnar að hún átti til að hóta mér því að hún myndi ganga aftur og ofsækja mig ef ég dirf­ist að fella eitt ein­asta tár að henni lát­inni.

Amma var vinur minn, ráð­gjafi og traustur banda­maður í lífs­bar­átt­unni en vin­átta okkar hófst strax á fyrstu árum mínum þar sem hún féllst bless­un­ar­lega á að dag­vista mig á Hofs­valla­göt­unni svo mamma, tengda­dóttirin unga, gæti klárað hjúkr­un­ar­fræði­námið. Þeir sem þekktu ömmu vita að þetta var meira en að segja það þar sem henni þótti börn yfir­leitt hafa afskap­lega þægi­lega fjar­veru og barnapössun var aldrei hátt skrifuð hjá henni.

Ég lærði býsna margt á þess­ari und­an­þágu á Hofs­valla­göt­unni og þar var amma mér ekki síður mik­il­væg fyr­ir­mynd en afi, enda ljóngrimm, flug­mælsk og stíl­fær lím­heili. Það var ekki fyrr en löngu síðar að ég átt­aði mig á hversu dýr­mæt það var fyrir smá­polla sem lang­aði að verða blaða­maður að hlusta á ömmu skamma afa fyrir val á fréttum og myndum á for­síður Tímans og rekja upp póli­tísk plott af inn­sæi sem kannski byggði fyrst og fremst á þeirri gullnu reglu sem hún inn­rætti mér, til góðs eða ills, að treysta fólki var­lega og gruna það frekar um græsku en hitt.

Í seinni tíð varð okkur vita­skuld tíð­rætt um himna­för­ina, sem stöðugt var slegið á frest, og þá lét amma mig lofa því að skrifa um hana skemmti­lega minn­ing­ar­grein þar sem ég átti að koma því vand­lega til skila að hún var heims­borg­ari en ekki svona amma sem tók á móti manni í eld­hús­inu með svuntu og glóð­volgar pönnu­kökur.

Þannig að svo því sé haldið til haga þá fíló­só­feruðum við amma miklu oftar og lengur yfir Elephant og staupi af Aalborg Jubila­eums Akvavit heldur en pönnu­kökum þótt þær hafi vissu­lega verið ofboðs­lega góðar hjá henni þegar sá gáll­inn var á henni,“ skrifar Þórarinn Þór­ar­ins­son í minn­ingu ömmu Ragg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina