„Í sveitinni heyrist í dag: „Við þurfum bara að þrauka eitt ár í viðbót, þá koma kosningar”. Eitt ár er því miður of langur tími til að búa við íþyngjandi stjórnsýslu. Við sjáum einstaklinga gefast upp, velja andlega og líkamlega heilsu fram yfir þessa baráttu, baráttu um gott samfélag. Ég skil það vel,” segir Sandra Dögg Björnsdóttir, íbúi í Eyja- og Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Mikil óánægja er með stjórnvald Eyja- og Miklaholtshrepps og kalla íbúar eftir aðgerðum. Hefur fjöldi mála komið upp á borð og segir Sandra fólk vera á flótta úr sveitarfélaginu vegna tregðu hreppsins til svara og aðgerða.
Heilsuspillandi rakaskemmdir
Sem dæmi má nefna að rakaskemmdir fundust bæði í grunnskóla Borgarfjarðar og Laugagerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi. Borgarbyggð greip strax til aðgerða en Sandra segir að engar heimildir séu í fundargerðum að málið hafi verið tekið fyrir í Eyja- og Miklaholtshreppi. „Það eru sjáanlegar rakaskemmdir í skólanum og hef ég miklar áhyggjur af því að við fjölskyldan séum öll í heilsuspillandi umhverfi”.
Sandra segist hafa trúað því í blindni að málin færu að skýrast og það kæmist á hreint hvort um gró væri að ræða eða ekki. En hún fær engin svör.
„Ég hefði ætlað að það væri forgangsmál hjá hreppsnefnd í Eyja- og Miklaholtshrepp að fá niðurstöður úr þessari sýnatöku og upplýsa alla hluteigandi til þess að tryggja heilsu og velferð nemenda og starfsfólks. Málið var aldrei tekið upp“.
Óútskýrðir reikningar
Sandra bendir einnig á að í byrjun janúar hafi foreldum og forráðamönnum barna í Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshrepp sem og starfsfólki, reikningur fyrir fæðis- og leikskólagjöldum fyrir tímabilið ágúst-desember 2020.
Sandra bendir á að reikningar frá hreppnum sé engan veginn í takt við útgefna gjaldskrá frá haustinu 2019 sem finna á heimasíðu hreppsins.
„Í byrjun febrúar mátti sjá gjaldskrá sem merkt var Haust 2020 en sú gjaldskrá hljóðaði einnig upp á lægra gjald en áður útgefnir reikningar. Þann 8. apríl 2020 var samþykkt á hreppsnefndarfundi að leggja niður fæðis- og leikskólagjöld út skólaárið fyrir nemendur í leik- og grunnskóla vegna Covid“.
Sandra segir að ekki á neinum tímapunkti hafi borist tilkynning um að gjaldtaka skuli hefjast aftur eða hvernig henni verði háttað né að fæðisgjöld verði hækkuð.
Það brenna margar spurningar á Söndru sem hún kallar eftir svörum við. Eina svarið sem hún hefur fengið er að reikningarnir munu standa.
„Getur hreppsnefnd samþykkt gjaldskrá 3. desember 2020 og sent reikninga samkvæmt henni fyrir áður veitta þjónustu, þá frá miðjum ágúst 2020 til og með desember 2020? Getur hreppsnefnd hafið gjaldtöku aftur án þess að tilkynna það til foreldra, hvort sem er í gegnum skóla eða á heimasíðu hreppsins? Ef gjaldskrá á heimasíðu hreppsins segir að reikningar verði sendir út 10. næsta mánaðar, getur hreppsnefnd þá sent eingreiðslu í lok annar fyrir síðastliðna 4 eða 5 mánuði?“
„Þetta er mjög röng framkvæmd og mjög íþyngjandi.“
Meðfylgjandi er skjáskot af heimabanka Söndru en upphaflega kom einn reikningur en var svo skipt niður á á fleiri gjalddaga.

„Hreppnum ber að senda reikninga 10. hvers mánaðar sem ekki var fylgt eftir. Einnig voru ekki tilkynntar breytingar á stjónsýsluframkvæmd. Þetta kemur illa niður á íbúum. Við erum öll að gefast upp og farin að skoða það að sækja þjónustu annað sem er mjög leiðinlegt því þetta er sveitarfélag sem gæti verið í uppbyggingu og unnið með fólkinu en ekki öfugt,” segir Sandra Dögg og kallar eftir aðgerðum.































Athugasemdir