Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birgitta Jóns krassaði og leitar hjálpar í VIRK: „Enginn heimsendir að missa veraldlega hluti“

Birgitta Jóns krassaði og leitar hjálpar í VIRK: „Enginn heimsendir að missa veraldlega hluti“
|

„Ég krass­aði algjör­lega. Ég hef oft klárað batt­er­íin en þarna eyði­lagði ég batt­er­íið mitt,“ segir Birgitta Jóns­dóttir fyrrum alþing­is­maður og skáld í við­tali við síð­deg­is­út­varp Rásar 2.

Birgitta fór í gegnum tíma­bil þar sem hún var tekju­laus, búin með sparn­að­inn, og þurfti að selja íbúð­ina til að lifa af.

„Fólk hefur verið að átta sig á for­gangs­at­rið­unum í þess­ari inni­lokun og stöffi. Það er eng­inn heimsendir að missa ver­ald­lega hluti ef maður hefur heils­una og börnin og manns nán­ustu eru ein­hvern vegin í lagi. Þar liggja verð­mætin í líf­inu“.

Hún hefur verið að vinna sig upp með aðstoð VIRK.

Birgitta segir brjálað áreiti og vinnu­törn við að búa til tvö stjórn­mála­flokka úr engu og koma þeim á þing auk alls í kringum Wikileaks málið hafi tekið af henni toll. „Maður fattar þetta ekki þegar maður er á stöð­ur­gri keyrslu í átta ár. Ég tók aldrei frí á meðan ég var á þingi, ég var ekki einn af þessum þing­mönnum sem fór í háskóla­nám eða skrif­aði bók eða eitt­hvað svo­leiðis meðan ég var á þingi. Ég er núna í VIRK, loks­ins bað ég um hjálp. Ég komst ekki út úr því að finna eitt­hvað sem ég brann fyrir. Núna er ég að læra að gera ekki neitt“.

Maður getur orðið egóisti

Birgitta segir að frá því á Rás 2 að eftir að hún varð þekkt á Íslandi hafi hún alltaf farið reglu­lega í burtu. Hún lærði það af móður sinni, Bergþóru Árna­dóttur vísna­söng­konu sem var þekkt þegar Birgitta var ung­lingur.

„Það verða miklar kröfur og áreiti á mann þegar maður er opin­ber per­sóna. Og það getur eyði­lagt mann. Maður getur orðið ein­hver egóisti og farið að fá rang­hug­myndir um sjálfan sig. Þannig að ég hef alltaf farið til útlanda til að end­ur­heimta sjálfa mig og núll­stilla. En ég þurfti þess ekki núna, Covid kom og ég hef ég getað verið í felum heima hjá mér, notið þess virki­lega að byggja mig upp and­lega og ná meiri nátt­úru. Það afruglar mig að eyða meiri tíma með þessu stór­kost­lega landi“.

Að sögn Birgittu hefur það tek­ist afar vel og finnur hún að hún er til­búin til að koma út aftur.

Kona sem ekki passar í kassa

Þrátt fyrir að hafa dvalið í helli sínum er Birgitta enn með mörg járn í eld­inum. „Það er búið að vera að gera heim­ilda­mynd um mig í ógeðs­lega mörg ár. Það gerir kona sem gerði heim­ilda­mynd um Daniel Ellsberg og fékk Ósk­arsverð­launin Við erum búnar að vinna í þess­ari heim­ilda­mynd lengi en hún er alltaf að lenda á ein­hverjun hnökrum því það er stundum svo­lítið erfitt að gera heim­ilda­myndir um konur sem passa ekki í neina kassa. En hún var að skrifa mér og myndin ætti að koma á þessu ári eða næsta”. Birgitta skrifar einnig mikið. „Ég er örugg­lega með 15 bækur sem ég hef byrjað að skrifa og svo sé ég hverja maður gæti haldið áfram með og verið í góðu flæði”.

„Ég upp­götv­aði ljóða­bók sem ég var búin að skrifa og búin að stein­gleyma. Ég er að spá í að fara í fjár­mögnun á henni á Karlol­ina Fund og gefa hana út mán­uði fyrir kosn­ingar því þetta er drápa á allt þetta kerfi, mót­mælin og þessa svoköll­uðu bylt­ingu okkar. Það er eins og ég hafi dottið í gullæð með tök á tungu­mál­inu okkar með þess­ari bók“. Birgitta mun að sjálf­sögðu fara sínar eigin leiðir þegar að útkomu kemur. „Ég hef alltaf verið svo­lít­ill frum­kvöð­ull í að koma efni frá mér. Ég var fyrsta skáldið sem fór virki­lega að nota inter­netið og fólk fór að nota ljóð frá mér við jarð­ar­farir og guð má vita hvað um allan heim. Ég plat­aði krakk­ana mína til að gefa mér almenni­lega míkra­fón og þá er hægt að skanna bara QR kóða og fá per­formans á verk­inu líka,” sagði Birgitta á Rás 2.

Gera allt á hnefanum

Aðspurð um vinn­una í VIRK segir Birgitta vera þakk­lát fyrir prógram­mið og að fá þann stuðn­ings sem þarf til að ná aftur virkni.

„Ég hef margoft lent á vegg og lært mjög margt. Ég fer svo oft inn í verk­efni sem eru ómögu­leg og legg hjarta og sál í þau því mér finnst þau skemmti­leg og krefj­andi. Ég er með sál­fræð­ing og aðila til að hjálpa við mark­miða­setn­ingu. Það er örugg­lega fólk eins og ég úti í sam­fé­lag­inu sem ætlar að gera allt sjálft á hnef­anum og ég hvet þau til að leita sér aðstoðar. Fyrsta skrefið til að vinna úr hlutum er að segja þá upp­hátt“.

Birgitta seg­ist sig hafa afar lélegt sjálfs­mat og það sé eitt­hvað sem hún sé að vinna í. „Það er til nokkuð sem heitir imposter syndrome. Maður upp­lifir sig aldrei eiga rétt á að gera eitt­hvað eða vera sér­fræð­ingur í ein­hverju. Það sem ger­ist er þegar maður verður opin­ber per­sóna er að það er gerð mynd af manni, mynd af ein­hverju öðru en maður endi­lega er. Ég er rosa­lega prí­vat per­sóna og er heppin með það að ég tek ekki eftir að fólk viti kannski hver ég er. Ég er ekk­ert að pæla í því og finnst ég ekk­ert merki­legri en hver annar”.

Tekur einn dag í einu

„Ég hef verið það heppin að kunna að fara inn í flæðið. Ég skynja vel hvenær er rétti tím­inn til að gera hluti. Það er eitt­hvað sem maður getur þróað og þroskað með sér, það þarf bara að treysta inn­sæ­inu og þora að gera hluti sem aðrir segja að ekki sé hægt að gera. Það er það sem að móti­verar mig mest, það er þegar ein­hver segir að það sé ekki hægt að gera eitt­hvað”. Spurð að því hvort hún hyggi aftur á þing­setu seg­ist hún ákveða einn dag í einu. „Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór, ég hef ekki ennþá fundið eitt­hvað sem ég brenn fyrir. Mér fannst ótrú­lega mikil for­rétt­indi að vera ráðin af þjóð­inni í vinnu, það var mjög magnað, og það er svo margt sem þarf að laga þannig að hlut­irnir virki“.

Hún er ákveðin í að fara ekki inn í stjórn­mál í kringum þessar kosn­ingar. „Ég held að næsta kjör­tíma­bil verði stutt og skrítið. Það getur vel verið að ég verði búin að jafna mig á þessu fyrir þarnæstu kosn­ingar, ég bara veit það ekki. Kannski langar mig að gera eitt­hvað allt annað. Mig langar að gera hluti þar sem ég finn að það er þörf á mér og ég viti að ég sé að skila ein­hverju inn í sam­fé­lagið. Ég er ekki að sækj­ast eftir að fara inn á alþingi til að lufs­ast þar ein­hvern vegin og ná athygli á hálf­tíma hálf­vit­anna eins og Þráinn Ber­tels­son kall­aði það. Þessi hálf­tími getur gef­ist vel en aðeins ef fólk er ekki að ham­ast við að vera ein­hverjir páfuglar”.

Ruglið síðasta mánuðinn

Birgitta hefur hefur sterkar skoð­anir á við­brögðum við Covid og það sem á undan hefur gengið.

„Hvað er til dæmis í gangi með allt ruglið síð­asta mánuð? Hvað er í gangi? Það vissu allir að lögin myndu ekki halda og svo á aum­ingja sótt­varn­ar­læknir vera eitt­hvað and­lit fyrir þetta klúður. Áður en það kom kosn­inga­fiðr­ingur í fólk í stjórn­málum var fylgt ráð­legg­ingum þeirra sem vita best en núna finnst manni hver höndin vera upp á móti annarri. Við vorum alveg að kom­ast í mark og þá ákváðu sumir að leggj­ast bara fyrir markið. Við sem þjóð höfum staðið okkur virki­lega vel varð­andi sótt­varnir og þegar að stjórn­mála­menn sjá brotala­mir eiga þeir að segja: „Okkur þykir þetta mjög leitt, við hefðum átt að vera skýr­ari“. En Svandís svarar ekki einu sinni spurn­ingum fjöl­miðla. Það ætti  að reka þá sem eru að ráð­leggja þessu fólki í fram­varð­ar­sveit­inni. Þetta er ekki það sem við þurfum. Við þurfum skýr­leika og fyr­ir­sjá­an­leika. Fyr­ir­sjá­an­leik­inn er að við ættum að ganga aðeins lengra en við þurfum þannig að við séum ekki alltaf að poppa aftur og aftur inn í sama ruglið“.

Götin í heilbrigðiskerfinu

Hún bendir á að það versta sem geti hent fólk sé að lifa undir fátækt­ar­mörkum og búa við stöðugar áhyggjur og það sé til skammar að það sé enn við líði í sam­fé­lag­inu. Hún er einnig gagn­rýnin á geð­heil­brigð­is­kerfið. „Það er verið að hafa bestu árinu af unga fólk­inu okkar vegna gata í heil­brigð­is­kerf­inu. Ég er búin að vera að skoða þetta mikið og langar að gera eitt­hvað í þessu en ég ætla ekki að stofna enn ein sam­tökin sem þurfa að vera að afla fé til að reka skrif­stofu. Við þurfum færri en öfl­ugri sam­tök til að það sé harður og raun­veru­legur þrýst­ingur á yfir­völd að breyta og laga. Margir þurfa aðstoð en það er margra ára biðlistar til sér­fræð­inga, við erum svo fá að það er kannski einn sér­fræð­ingur í ein­hverfu og einn í áfall­streituröskun eða whatever. Þetta er gap­andi sár sem ekki dugar að henda plástri á,” segir Birgitta Jóns­dóttir skáld og fyrr­ver­andi þing­kona.

Hlusta má á við­talið við Birgittu hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við