Margeir Vilhjálmsson, sem sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokkksins í Suðurkjördæmi, stígur fram og segist vera sá frambjóðandi sem var sakaður um kynferðisbrot á áberandi hátt á samfélagsmiðlum. Margeir segir engan bilbug á sér að finna og segir Sjálfstæðismönnum að kjósa hann ekki trúi þeir konunni, Bryndísi Kjartansdóttur. DV greindi fyrst frá færslu hennar.
Bryndís birti á laugardaginn stöðufærslu á Facebook sem hefur farið eins og eldur um sinu um helgina. Þar sakar hún Margeir um hreina siðblindu. „Hún var beðin um að mæta í vinnu að kvöldi til því það væri svo mikið að gera og ekkert óeðlilegt við það. Hann var mættur, eftir á var það öðruvísi. Eftir smá stund sagði hann henni að að hann þyrfti að sýna henni eitthvað á efri hæðinni á vinnustaðnum,“ skrifaði Bryndís.
„Hún hlýddi því og hugsaði hvað er þarna uppi, þar króaði hann hana af og reyndi að kyssa hana, hún sterk og í góðu formi þannig að henni tókst að sleppa frá honum, hann náði henni aftur, hún bað hann um að hætta og sagði „þú átt konu og börn og ég á kærasta“ hann hvíslaði í eyrað á henni „það þarf engin að frétta þetta“ því miður tókst honum að káfa á henni og troða tungunni upp í hana, honum tókst ekki að ganga alla leið en það var ekki honum að þakka.“
Hún segir svo að lokum: „Nei þetta var ekki á útihátið, þetta var á vinnustað. Nei það var ekkert áfengi… þetta er hrein siðblinda. þessi maður er í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn…. Ef þér finnst þetta skipta máli og vilt fá frekari upplýsingar þá erum við öll hér tilbúin að gefa ykkur þær.“
Færslan er nú með nærri 400 læk og ótal deilingar. Í gær birtir svo Margeir svar sitt á framboðssíðu sinni. Sú færsla hefur fengið talsvert færri læk. Þar segir hann Bryndísi fara með rangt mál:
„Fimmtíu dagar í framboði – Dagur 2. Ástæðan fyrir því að fólk tekur ekki þátt í pólitík! Sjálfstæðisflokkurinn var rétt búinn að kynna prófkjörslistann í Suðurkjördæmi þegar kona suður með sjó, ættuð úr Vestmannaeyjum, setti status á facebook undir yfirskriftinni : „Sem foreldrum finnst okkur við bera skyldu til að segja frá eftir þær fréttir sem við fengum í morgun.” Ásakanir sem fram koma í stöðuppfærslunni á facebook eru fjarri öllu sanni en hafa verið fastur hluti af lífi mínu frá árinu 2013. Þrátt fyrir umleitanir mínar og samtal við konuna sem lauk að því best ég vissi í góðri sátt fyrir 8 árum síðan, hefur hún fundið sig knúna til að tjá sig reglulega um málið undir rós á samfélagsmiðlum. Framsetning málsins í gær er einkar ósmekkleg þar sem allir karlkyns frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins eru settir undir sömu sök,“ skrifar Margeir.
Hann segir að þeir sem trúa Bryndísi ættu ekki að kjósa sig. „Ég bið því alla sem sem vilja leggja trú á það sem frá þessari konu kemur að kjósa mig alls ekki. Af nógu er að velja á glæsilegum lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hina bið ég um að koma í vegferð um að gera stjórnmálin skemmtileg, árangursrík og vinna glæsilegan sigur í kosningunum í september næstkomandi. Að öðru leyti ætla ég ekki að tjá mig um þetta mál. Þeir sem mig þekkja vita að það er fjarri sannleikanum.“































Athugasemdir