Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hilmar opnar sig um kvíðann, offituna og magermisaðgerðina: „Að líða illa var aumingjaskapur“

Hilmar opnar sig um kvíðann, offituna og magermisaðgerðina: „Að líða illa var aumingjaskapur“

„Kvíði er bölv­aður and­skoti og eitt­hvað sem er alls ekki tabú og á að ræða án við­kvæmni. Minn kvíði kom seinna, á efri árum og það er erf­ið­ara að hemja þetta hel­víti núna en áður,“ segir Hilmar Þór Norð­fjörð, ljós­mynd­ari, mark­aðs­maður og fram­kvæmda­stjóri Media Group ehf.

Hann hvetur fólk til að opna sig því að með auk­inni tján­ingu fólks á van­líðan sinni sé stórt skref stigið.

„Ég er óhræddur við að segja að ég hef bless­un­ar­lega leitað mér sér­fræði­hjálpar, fengið bæði lyf og þjón­ustu sál­fræð­inga. Ég fékk grein­ingu á full­orð­ins ADHD auk þess að tikka í mörg box kvíða­rösk­unar. Ég humm­aði það af mér, stór og sterkur strák­ur­inn. Ég hefði lík­lega átt að hlusta betur.“

Sendur á Dalbraut sem gallaður

Hilmar hefur alltaf verið orku­mik­ill og var sem krakki sendur á barna­heim­ilið að Dalbraut þar sem hann dvaldi í tvær vikur. „Það hefur margt breyst í dag en þarna var maður bara lok­aður inni í tvær vikur án grein­ingar eða aðstoðar. Þetta var bara fang­elsi fyrir erf­iða krakka sem Hilmar var sendur í því hann var eitt­hvað gall­aður. Bless­un­ar­lega er umræða um kvíða og þung­lyndi ekki eins við­kvæm eins og hún var, að líða illa var aum­ingja­skapur, en sem betur fer er breytt sýn á það í dag.” Hilmar segir að þrátt fyrir að meira aðstoð sé fyrir börn í dag þyki honum aðrir hlutir hlutir erf­ið­ari fyrir ungt fólk eða áður, en hann er tæp­lega fimm­tugur. „Ég myndi ekki vilja vera ung­lingur í dag, við búum í svo kikk­uðu umhverfi að það meikar ekki sens að við séum ekki með kvíða. Áreitið á börnin okkar er yfir­gengi­legt, sjó­varp, tölvu­leikir, sam­fé­lags­miðlar, krafan um að líta vel út svo og stöðug leit að nýjum leiðum til að hafa ofan af fyrir sér. Ég fór í sveit sem krakki sem var frá­bært. Engar tölvur, ekk­ert sjón­varp en samt hafði maður alltaf nóg að gera, þótt maður hefði „ekk­ert” að gera. Sam­fé­lagið er að mörgu leyti betra og opn­ara en líka hrað­ara og steikt­ara.“

Hilmar Þ

Ekkert nema óhóf

Hilmar var um margra ára skeið frétta­ljós­mynd­ari og þurfti að vera í góðu lík­am­legu og and­legu formi fyrir oft á tíðum erf­iðar mynda­tökur. Þar seg­ist hann þurft að vera sterkur og sýna aldrei veik­leika. En með árunum jókst þyngdin, þrekið minnk­aði og kvíðin jókst. Hilmar telur enga spurn­ingu sam­band hafi verið á milli auk­innar þyngdar og auk­ins kvíða. „Ég er hávax­inn svo ég bar þetta þokka­lega vel en ég var orð­inn um 130 kíló þegar mest var. Ég hef líka fitnað í sam­böndum mínum, ég hef tekið eftir að um leið og þú ert kom­inn í svona „comfort zone” er freist­andi að fá sér gott að borða og vín­glas þegar heim er komið. Ég var búin að prófa alls konar megr­un­ar­kúra, fara á ketó og nefndu það. Ekkert gekk og allt fór í sama farið. Ég vinn við tölvu eins og svo margir og eins og svo hjá mörgum var mat­ar­ræðið í algjöru rugli. Ég át of mikið, of oft og yfir­leitt á hlaupum. Þetta er bara óhóf. Ég var hættur að geta keypt á mig föt í upp­á­halds­búð­unum mínum og man að ég end­aði í Dressman til að kaupa mér skyrtu fyrir brúð­kaup. Það var ákveðið „slap in the face”.

Það var síðan Tinna­bol­ur­inn sem gerði úts­lagið. „Ég keypti bol  í XL með Tinna í Epal sem mér fannst rosa­lega flottur en þegar ég var búinn að troða mér í hann leit ég út eins og pulsa. Átti ég að skila honum? Ég ákvað að halda honum og gera eit­hvað var­an­legt í mínum málum. Ég var líka kom­inn með áhyggjur af heils­unni, hjarta­sjúk­dómum eða syk­ur­sýki. Ég er alveg til í að vera 150 kíló ef ég heil­brigð 150 kíló“.

„Á kort í World Class“

Hilmar lagð­ist í rann­sóknir og ákvað á end­anum að fara í maga­ermi­að­gerð þar sem 80% af mag­anum er fjar­lægt. Hann hefur verið afar opin um ákvörðun sína og hafa í kjöl­farið fjöldi manns haft sam­band við hann. Hilmar tekur alltaf sím­ann. „Það eru svo margir sem geta, eða finnst þeir ekki getað, sest niður og rætt ofþyngd. Sér­stak­lega veigra karl­menn sér við því að ræða ofþyngd af hrein­skilni. Umræðan þarf að vera opin og fólk verður að geta spurt og fengið svör við spurn­ingum sínum.” Þegar Hilmar tjáði fólki að hann væri að fara í aðgerð seg­ist hann hafa fengið svör eins og að hann liti bara vel út og af hverju hann keypti sér ekki kort í World Class. „Ég leit allt í lagi út og átti kort í World Class, takk fyrir. En mér leið illa, ég var of þungur og þurfti að leita mér lækn­inga við því eins og hverjum öðrum sjúk­dómi. Þetta snýst um að vera ekki með skert lífs­gæði eða fara í áhættu­hóp vegna hjarta­sjúk­dóma. Enginn getur dæmt ann­ars líðan.“

Núllstillti líkamann

Hilmar fékk sím­tal í miðjum Covid far­aldr­inum í októ­ber á síð­asta ári. Hann var þá á biðlista en það hafði opn­ast fyrir hann aðgerð­ar­tími vegna sótt­kvíar. „Ég var búinn að tala við marga og hugsa málið til enda. Þetta var búið að blunda í mér um tíma og þegar að því kom að taka ákvörðun sagði ég strax já. Það varð að gera eitt­hvað var­an­legt.

Aðgerðin gekk vel, kílóin fuku af Hilmari, hann var kom­inn til vinnu innan viku og eftir mánuð hafði hann að mestu jafnað sig. „Ég hef alltaf verið syk­ur­fík­ill, ef það var til sæl­gæti var það borðað þar til það var búið. Eftir aðgerð­ina lifði ég á tærum súpum og mauk­uðum mat sem var það sem til þurfti til að núll­stilla og hreinsa lík­amann. Þar var líka nauð­syn­legt fyrir fram­haldið.”

Kílóin byrj­uðu að fjúka af og fata­skáp­ur­inn var end­ur­nýj­aður. „Það er búið að vera gaman að sjá þetta ger­ast, þótt ég sakni reyndar sumra fík­anna sem ég lét gossa. En haus­inn þarf líka að vera í lagi því um meiri­háttar lífs­stíls­breyt­ingu er að ræða. Ég fæ mér ennþá nammi en í dag fæ ég mér aðeins brot þess sem ég át áður. Þetta er heldur engin töfra­lausn, ef þú heldur áfram í sykrinum og óholl­ust­unni færðu þetta á þig aftur.“ Hilmar seg­ist ekki vikta sig, fötin og líð­anin segi allt sem þarf. „Ég hef líka verið að æfa stíft og auk­inn vöðvamassi hefur örugg­lega hækkað töl­una á vikt­inni. Ég var í fárán­lega góðu formi þegar ég var yngri og þótt maður sé ekki lengur 25 ára þá blundar í manni að kom­ast þangað aftur”.

Og Tinna­bol­ur­inn smellpassar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una