Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hrottalegt morð Gests á Grenimel; „Biddu guð að hjálpa þér!“

Hrottalegt morð Gests á Grenimel; „Biddu guð að hjálpa þér!“

Þýskur maður, búsettur á Íslandi, var myrtur á óhug­an­legan hátt við Grenimel í vest­urbæ Reykja­víkur aðfara­nótt 17. sept­em­ber árið 1981. Ger­and­inn íslenskur maður sem var ekki í and­legu jafn­vægi. Það sem flækti málið var að fyrir morðið hafði Þjóð­verj­inn að sögn brotið gróf­lega á Íslend­ingnum kyn­ferð­is­lega.

Samkvæmt grein DV um málið var Hans F.J.A. Wiedbusch 45 ára gam­all, vest­ur­þýskur rík­is­borg­ari, sem hafði flutt hingað til lands fimmtán árum fyrr, árið 1966. Hann nam blóma­skreyt­ingar í Hamborg og starf­aði um tíma í Ósló áður en hann flutti til Íslands. Hann var vina­margur og var það á allra orði að að hann hneigð­ist til karl­manna. Hann hafði starfað í fjórtán ár hjá versl­un­inni Blóm og ávextir en var nýhafin störf hjá Blóma­vali þegar hin örlaga­ríki atburður gerð­ist. Þetta kvöld átti hann von á gestum sem afboð­uðu sig og því ákvað hann að fara ein­sam­all á skemmti­stað­inn Óðal við Aust­ur­völl.

Banvæn kynni

Hans hitti Gest Guðjón Sig­ur­björns­son, 28 gamlan starfs­mann í sæl­gæt­is­gerð, á Óðali. Þeir þekkt­ust ekki áður. Þeir tóku saman spjall yfir drykk og bauð Hans að lokum Gesti heim til sín. Þar var áfram drukkið, spiluð tón­list og reykt kanna­bis sem Hans rækt­aði sjálfur, jafnt á heim­ili og vinnu­stað.

Gestur barð­ist við gerð­ræn vanda­mál og áfeng­is­mis­notkun. Hafði hann dvalið á geð­deild og var á sterkum lyfjum. Daginn fyrir árás­ina var Gestur útskrif­aður af geð­deild­inni en honum leið illa og svaf lítið og illa um nótt­ina. Ákvað hann þá að fara á Óðal til að skemmta sér. Þar hitt­ust þeir Gestur og Hans í fyrsta og síð­asta skipti.

„Biddu guð að hjálpa þér!“

Gestur varð slappur af drykkj­unni og hass­inu og bauð Hans honum að gista hjá sér. Gestur tjáði Hans að hann ætti í erf­ið­leikum með svefn en Hans færði honum þá tvær svefn­töflur sem Gestur tók og sofn­aði skömmu síðar.

Svo segir í DV: „Um nótt­ina vakn­aði Gestur skyndi­lega og fann að eitt­hvað var að. Hans hafði þá klætt hann úr föt­unum og var að hafa enda­þarms­sam­farir við hann. Brá honum mjög við þetta, stökk upp og hljóp inn á sal­ernið. Þar fékk hann þá hug­mynd að drepa Hans og greip skæri sem hann fann. Hann gekk inn í stofu að Hans með skærin fyrir aftan bak og rak þau svo beint í brjóstið á Hans sem greip um úln­lið Gests og hróp­aði: „Biddu guð að hjálpa þér!“. Hans náði skær­unum af Gesti sem fór þá inn í eld­hús og náði í búr­hníf og önnur skæri.

Stakk Gestur Hans þá ótal sinnum með hnífnum, lagð­ist ofan á hann og reyndi að kæfa hann með hönd­unum. Þegar það gekk ekki tók hann hin skærin og rak þau í augn­tóft­ina, inn í heila, og lést Hans þá sam­stundis. Gestur gekk síðan um íbúð­ina og tók pen­inga og ýmis raf­magns­tæki sem hann fann. Fór hann síðan út án þess að fela líkið eða slökkva ljósin”.

Játaði strax verknaðinn

Þegar Hans kom ekki til vinnu urðu sam­starfs­menn áhyggju­fullir þar sem það var ólíkt Hans sem var sam­visku­samur með  ein­dæmum. Hann svarði ekki síma og þegar heim­ili hans var kannað svar­aði hann ekki dyra­bjöll­unni.

Aftur á móti mætti Gestur til vinnu um morg­unin en langt því frá að vera í jafn­vægi. Hann við­ur­kenndi fyrir vinnu­fé­laga að hafa drepið mann og henti þýf­inu í Reykja­vík­ur­tjörn síðar þennan sama dag. Föstu­dag­inn 18. sept­em­ber fann nágranni Hans lát­inn og lét lög­reglu umsvifa­laust vita. Í DV segir: „Þegar lög­regla kom fann hún Hans á stofu­gólf­inu, nak­inn og þak­inn stungusárum. Skærin stóðu enn þá út úr öðru aug­anu og blóð­slettur sáust um alla íbúð­ina. Hnífs­blað sat fast í rifja­beini og við krufn­ingu kom í ljós að hníf­ur­inn hafði skemmt flest öll mik­il­væg­ustu líf­færin”.

Í upp­hafi beind­ist athygli lög­reglu að sam­kyn­hneigðum karl­mönnum í vina­hópi Hans en eftir ábend­ingu frá sam­starfs­manni Gests var hann umsvifa­laust hand­tek­inn á heim­ili sínu. Gestur sýndi engan mót­þróa og ját­aði strax verkn­að­inn.

Vinirnir ósáttir

Vinum Hans fannst yfir­lýs­ingar lög­regl­unnar og skrif dag­blaða um málið ósann­gjörn en þar var greint frá frá­sögn Gests. Þeir gáfu út yfir­lýs­ingu sem birt var í nokkrum dag­blöðum þann 23. sept­em­ber þar sem umfjöll­un­inni var harð­lega mót­mælt. „Okkur var vel kunn­ugt um að Hans var „homos­exual“, en það kom ekki í veg fyrir að hann átti stóran hóp vina, karla sem kvenna, fjöl­skyldna sem ein­hleypra, sem kunnu að meta mann­gildi hans. Þar sem hinn látni getur ekki varið sig sjálfur, krefj­umst við þess í minn­ingu hans að leið­rétt sé sú vill­andi mynd sem af honum hefur verið gefin í fjöl­miðlum“

Við geð­rann­sókn var Gestur met­inn sak­hæfur en með fyr­ir­vörum, hann var treggef­inn með per­sónu­leika­trufl­anir og skorti hæfi­leika til að mynda var­an­leg tengsl við fólk. Í skýrsl­unni segir: „Að öllum þessum atriðum sam­an­lögðum er ekki að undra þótt við­brögð hans geti orðið heift­ar­leg og allt að því til­vilj­un­ar­kennd þegar hann er undir miklu álagi.“ Útskýrði Gestur verkn­að­inn með að segja að á hann hafði runni æði.

Gestur var dæmdur til 12 ára fang­els­is­vistar í hér­aði en hæsti­réttur mild­aði dóm­inn niður í 8 ár. Var til þess tekið að hann hefði játað verkn­að­inn strax auk þess að verða fyrir alvar­legri kyn­ferð­is­árás. Á móti var til þess litið að árásin var afar hrotta­leg.

Gestur lést árið 1999.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina