Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sigríður var greind 38 ára með endómetríósu: „Greiningin tók 26 ár, brá þegar ég heyrði hana“

Sigríður var greind 38 ára með endómetríósu: „Greiningin tók 26 ár, brá þegar ég heyrði hana“
Sigríður Halla Magn­ús­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Hún hefur átt við ofurefli að etja en engu að síður barist. Barist fyrir heilsu sinni í 26 ár, barist við dreka hins íslenska heil­brigð­is­kerfis, lækn­ana, þar sem hún tap­aði hverri orr­ust­unni á fætur annarri. Stundum var hún við það að gef­ast upp og stundum tók hún sér hlé til þess að hafa krafta í næsta slag. Að lokum sá hún ekki fram á að fá úrlausn sinna mála hér­lendis og tók þá á það ráð að leita lækna í Evrópu sem gætu kann­ast við ein­kenni hennar og hjálpað henni að ná heilsu á ný. Sigríður Halla Magn­ús­dóttir segir hér af veik­indum sínum, þrauta­göng­unni og loks frels­inu sem fylgdi betri heilsu.

„Ég var 38 ára gömul þegar ég var greind með endó­metríósu. Grein­ingin tók 26 ár. Mér brá þegar ég heyrði hana því það eina sem ég vissi um endó­metríósu var ófrjó­semi, en ég átti tvö börn. Ég hafði þó verið að glíma við ýmsa kvilla frá ung­lings­aldri án þess að fá nokkur svör við þeim. Frá því ég byrj­aði á blæð­ingum fékk ég alveg skelfi­lega túr­verki frá baki og niður fætur. Suma daga komst ég ekki fram úr rúm­inu vegna verkja og orku­leysið var algjört á meðan blæð­ingum stóð en þetta átti allt að vera eðli­legt, svo ég beit bara á jaxl­inn. Verkirnir minnk­uðu eftir að ég átti dóttur mína en fóru svo aftur að versna og urðu enn verri en áður. Ég skrif­aði það á lágan sárs­auka­þrösk­uld og gætti þess að skipu­leggja dag­ana í kringum blæð­ingar þannig að ég gæti verið rúm­liggj­andi. Aftur lög­uð­ust verkirnir eftir að ég átti son minn en eins og áður aðeins í stuttan tíma og enn versnuðu þeir,“ segir Sigríður Halla og hristir höf­uðið. „Í ofaná­lag fór að bera á öðrum kvillum, ég var farin að fá mígrenisköst, finna fyrir svima, ógleði og melt­ing­ar­trufl­un­unum. Fæðuóþol hrjáði mig, ég fékk sting­andi sárs­auka í mjaðm­irnar, vondan hjart­slátt, hár­los, óút­skýr­an­legt þyngd­ar­tap og mikið gróð­urof­næmi. Ég var farin að ganga á milli lækna með þessi ein­kenni en fékk engin svör önnur en að ég væri með lágan sárs­auka­þrösk­uld, vefja­gigt og því gaukað að mér hvort það gæti ekki verið að ég væri svo­lítið hyster­ísk. Ég var vita­skuld ekki sátt við þessar grein­ingar enda héldu ein­kennin áfram en hvað gat ég gert? Jú, ég gaf læknum pásu frá mér og reyndi að vinna í kringum kvill­ana, en ég vann í hótel- og veit­inga­geir­anum.“

Lestu við­talið við Sigríði Höllu í Vikunni sem fæst á næsta blað­sölu­stað eða í áskrift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una