Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Grimmileg árás í Þverholtinu – Unga stúlkan í lífshættu vegna áverkanna

Grimmileg árás í Þverholtinu – Unga stúlkan í lífshættu vegna áverkanna

Í des­em­ber 1981 varð 15 ára stúlka, Dolly Magn­ús­dóttir, fyrir hrotta­legri lík­ams­árás í Þver­holti í Reykja­vík. Þegar hún fannst liggj­andi í blóði sínu um klukkan tvö um nótt­ina var henni vart hugað líf.

Þegar fréttir bár­ust af árásinni var þjóðin afar slegin. Ekkert líkt þess­ari skelfi­legu og til­gangs­lausu lík­ams­árás hafði átt sér stað áður og var telpan í kvöld­bænum margra lands­manna. Þjóðin var enn­fremur reið eins og sjá má í sam­tíma­heim­ildum og kall­aði eftir auknum sýni­leika lög­reglu. Fórn­ar­lambið steig síðar fram undir nafni. Hún heitir Dolly Magn­ús­dóttir.

„Spámaður vikunnar“

Dolly var að bíða eftir stræt­is­vagni þegar leið að kvöldi 4. des­em­ber 1981 þegar að 28 ára gam­all maður fékk hana til að koma með sér að skúr við Þver­holt­inu, nálægt stoppi­stöð­inni. Þar reyndi hann að fá Dolly til sam­ræðis við sig en þegar hún neit­aði mun hafa runnið á mann­inn æði og réð­ist hann á stúlk­una. Hann hét Hall­grímur Ingi Hall­gríms­son og  „góð­kunn­ingi” lög­regl­unnar sem hafði komið fram nokkru áður sem „Spámaður vik­unnar” í Morg­un­blað­inu. Spámaður vik­unnar var fastur liður á íþrótta­síðum blaðs­ins en þar sagði Hall­grímur meðal ann­ars að hans helsta áhuga­mál væri að skrif­ast á við ungar stúlkur og tók það fram að hann svar­aði öllum bréfum.

Hall­grímur réðst á stúlk­una með skrúfu­járni og steini og brenndi með kveikjara. Stung­urnar og bruna­sárin skildu stúlk­una eftir dauð­vona en ekki er við hæfi að fara nánar út í þá áverka sem hann veitti stúlkunni, svo grimmd­ar­legir voru þeir.

Svo virð­ist sem kvala­lost­anum hafi bráð af Hall­grími því hann hringdi á sjúkra­bíl um tíu­leitið um kvöldið. Sjúkra­bíll var sendur á stað­inn en ekki tókst sjúkra­flutn­inga­mönnum að finna stúlk­una. Það var síðan kl. 2 aðfar­arnótt 5.des­em­ber að maður var að koma af mið­næt­ur­sýn­ingu í Aust­ur­bæj­ar­bíói og gekk fram á Dolly. Hann leit­aði taf­ar­laust hjálpar og var henni komið undir lækn­is­hendur. Dolly var vart hugað líf en eftir margra klukku­tíma á skurð­ar­borð­inu tókst að bjarga lífi hennar.

Strax bár­ust grun­semdir að Hall­grími sem átti lög­heim­ili í Þver­holti. Hann var hand­tek­inn undir miklum áhrifum fíkni­efna, og ját­aði á sig verkn­að­inn.

Samfélagið reitt

Gríð­ar­leg reiði bloss­aði upp í sam­fé­lag­inu eins og sjá má í með­fylgj­andi for­síð­upistli Mánu­dags­blaðs­ins þann 14. des­em­ber það sama ár en þar segir meðal ann­ars. „Fólk í Reykja­vík er almennt svo slegið yfir þessum atburðum að lög­reglu­stjóri getur ekki annað en látið menn sína gæta betur gatn­anna og borg­ar­anna en ekki snúið sér undan vegna „ýmissa ástæðna”. Það er ekki gaman fyrir for­eldra að eiga það í vændum að fá börn sín stór­skemmd eða látin vegna for­dæðu­verkra óðra mann, sem virð­ast aukast með hverju ári.”

Dugnaður stúlkunnar og lífs­vilji Dollyar mun hafa verið með ólík­indum. Sér­stak­lega þegar til þess er litið að um 15 ára barn var að ræða sem bæði almenn­ingur og dag­blöð þeirra tíma ræddu mikið um, oftar en ekki af tölu­verðu smekk­leysi þar sem lýst var af nákvæmni hvaða áverka hún hafði hlotið.

Ekki löngu eftir árás­ina kom út lag með afar vin­sælli hljóm­sveit þeirra tíma, Fræbblunum, og sú kjafta­saga fór af stað að text­inn fjall­aði um árás­ina og þótti mörgum það ekki við hæfi. Söngv­ar­inn, Val­garður Guð­jóns­son, sá sig knú­inn til að leið­rétta þann mis­skiln­ing og fór til Dolly til að segja henni það í eigin per­sónu. Með þeim tók­ust ástir og að því kom að þau gengu í hjóna­band.

Í við­tali við DV tveimur árum eftir árás­ina sagði Dolly: „Ég á þeim læknum sem hafa ann­ast mig mikið að þakka. Þetta hefur gengið ótrú­lega vel og ég hef náð mér að fullu, aðeins eftir að lag­færa útlits­galla á öðru aug­anu.“ Hún var þá að stand­setja nýtt heim­ili ásamt Valgarði eig­in­manni sínum og áttu þau von á sínu fyrsta barni.

Hall­grímur Ingi var dæmdur sak­hæfur og hlaut 10 ára fang­elsi fyrir árás­ina sléttu ári eftir að hún átti sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina