Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lögreglan var sannfærð um að Ásdís væri með fíkniefni: „Niðurlægingin var algjör“

Lögreglan var sannfærð um að Ásdís væri með fíkniefni: „Niðurlægingin var algjör“

Ásdís Halla Braga­dóttir, athafna- og Sjálf­stæð­is­kona, segir að frum­varp Sam­fylk­ing­ar­innar minni sig á það þegar lög­reglan vildi henda henni í stein­inn, ein­ungis vegna ætt­ar­tengsla. Hún seg­ist hafa verið nið­ur­lægð á Leifstöð af lög­reglu­mönnum sem töldu öruggt að hún væri með fíkni­efni þar sem hún væri systir þekktra glæpa­manna, Sonny og Sívars.

Hún líkir þess­ari reynslu við fyrr­nefnt frum­varp, sem felur í sér að unnt sé að skylda alla á sótt­kví­ar­hótel sem koma til lands­ins. Sjálf er Ásdís Halla erlendis og segir stutt í heim­komu, svo hún er ef til vill ekki alveg hlut­laus.  „Fyrir margt löngu beið fíkni­efna­lög­reglan mín á Kefla­vík­ur­flug­velli. Ég var tekin afsíðis í klefa, á mér leitað hátt og lágt, allt í tösk­unni tekið í sundur og skoðað gaum­gæfi­lega. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið en fíkni­efna­lög­reglan var sann­færð um að ég væri að flytja inn ólög­leg efni. Þegar ég bar um skýr­ingar var svarið ein­fald­lega: Þú ert systir bræðra þinna! Bræður mínir, blessuð sé minn­ing þeirra, höfðu báðir kom­ist í kast við lögin og útgangs­punktur fíkni­efna­lög­regl­unnar var sá að allt þetta hyski hlyti að vera eins,“ segir Ásdís Halla á Facebook.

Ásdís seg­ist stefna á að fljúga heim til Íslands í næstu viku. „Mér fannst örla á von­brigðum þegar ekk­ert fannst og mér var hleypt út með trega. Fas yfir­valds­ins sýndi að ef það fengi ein­hverju ráðið þá ætti að loka mig inni. Bara svona til vonar og vara. Nið­ur­læg­ingin var algjör og ég var full­kom­lega varn­ar­laus. Eftir sat til­finn­ingin um að ein­stak­ling­ur­inn mætti sín lít­ils þegar yfir­valdið tekur til sinna ráða. Í næstu viku legg ég af stað heim til Íslands eftir að hafa unnið í Kaup­manna­höfn í nokkrar vikur að verk­efni sem hvergi er hægt að vinna nema hér í borg­inni. Ég hef unnið frá morgni til kvölds, að mestu ein með sjálfri mér, en reglu­lega farið í ynd­is­legar í göngu­ferðir í danska vor­inu,“ segir Ásdís.

Hún seg­ist hafa passað upp á að allt sé í lagi við heim­komu. „Eina mann­eskjan sem ég hef hitt utan vinn­unnar er æsku­vin­kona sem vinnur á leik­skóla þar sem allir starfs­menn fara í skimanir til að ekki komi upp hópsmit. Bless­un­ar­lega hafa þau vinnu­brögð sveit­ar­fé­lags­ins skilað góðum árangri. Í Kaup­manna­höfn hef ég farið eftir til­mælum um sótt­varnir og áður en ég legg í hann til Íslands fer ég í Covid próf og með nei­kvæða nið­ur­stöðu í fartesk­inu verður mér hleypt inn í Icelandair vél­ina, ann­ars ekki. Annað Covid próf bíður mín þegar ég lendi á Kefla­vík­ur­flug­velli og svo eitt í við­bót nokkrum dögum síðar. Fjöl­skyldan heima hefur gert ráð­staf­anir svo að ég geti farið beint í sótt­kví í rými með sér inn­gangi og bað­her­bergi sem eng­inn annar notar,“ segir hún.

Að lokum útskýrir hún nánar hvers vegna til­laga Sam­fylk­ing­ar­innar fer svo illa í hana. „Ég fylgist með fréttum að heiman og sé að Sam­fylk­ingin ætlar að leggja fram frum­varp sem skyldar alla á sótt­kví­ar­hótel sem koma til lands­ins. Ástæðan er ein­föld. Fyrir ein­hverju síðan kom til lands­ins maður sem virti hvorki reglur um sótt­kví né ein­angrun. Í fram­hald­inu kom upp hópsmit og mér skilst að það hafi meðal ann­ars gerst vegna þess að starfs­maður á leik­skóla mætti til starfa þrátt fyrir að vera með flensu­ein­kenni. Hvorugt er til eft­ir­breytni. Veru­leik­inn er því miður sá að alltaf eru ein­hverjir sem ekki fara eftir lögum, reglum og til­mælum. Þær fáu und­an­tekn­ingar mega aldrei verða til þess að öllum verði hegnt,“ segir hún og bætir við:

„Eitt það besta sem gerst hefur á Íslandi und­an­farin ár og ára­tugi er að við höfum reynt að efla skiln­ing á ólíkum aðstæðum fólks, reynt að auka umburð­ar­lyndi og víð­sýni. Reynt að taka á málum af þekk­ingu en ekki sleggju­dómum. Fyr­ir­hugað frum­varp Sam­fylk­ing­ar­innar er aft­ur­hvarf til for­tíðar. En það er ekki bara forn­eskju­legt heldur ósmekk­legur popúl­ismi. Það rifjar upp for­dómana sem ég þekki svo vel. Gengur út frá því að allir sem koma frá útlöndum hljóti að vera eins. Glæpa­menn. Línan er ein­föld: Lokum allt þetta hyski inni. Bara svona til vonar og vara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina