Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Uppnám og úlfúð meðal Pólverja á Íslandi vegna smitdólgsins: „Skammast mín fyrir mína þjóð“

Uppnám og úlfúð meðal Pólverja á Íslandi vegna smitdólgsins: „Skammast mín fyrir mína þjóð“

Fæstum Pól­verjum á Íslandi stendur á sama um hvernig umræðan í sam­fé­lag­inu hefur verið að þró­ast. Lög­reglan hefur verið þögul sem gröfin varð­andi smit­bera sem tal­inn er bera ábyrgð á spreng­ingu í COVID-smitum, fyrir utan að greint hefur verið frá því að hann kom frá Póllandi. Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn upp­lýsti svo að næstum allir sótt­kví­ar­brjótar séu útlend­ingar sem starfa hér. Spjót bein­ast því að Pól­verjum enda lang­fjöl­menn­asti þjóð­fé­lags­hóp­ur­inn hvað það varðar.

Talsverð úlfúð er nú innan Facebook-hóps Pólverja á Íslandi, en hóp­ur­inn telur 24 þús­und manns. Það er ljóst að sitt sýn­ist hverjum því skoð­anir Pólverja á mál­inu eru næstum jafn margar og þeir sjálfir. Ein skoðun virð­ist þó algeng­ust; við­kom­andi skamm­ast sín fyrir svarta sauði sem svindla á sótt­kví.

Mateusz nokkur á lík­lega þá færslu sem flest læk hefur fengið. Hann segir að út af einum hálf­vita þjá­ist heildin. „Ef þú heldur að það sé engin plága í gangi og heldur að þetta sé allt skáld­skapur, vertu þá í Póllandi en ekki hér. Ef þú vilt vera hér þá þarftu að fylgja regl­unum. Ég hef gert það, líkt og flestir Pól­verjar og Íslend­ingar,“ segir hann meðal ann­ars. Mateusz segir að það sé akkúrat svona hegðun sem valdi tog­streitu milli þjóða.

Annar maður, Mariusz að nafni, seg­ist skilja ósköp vel að Íslend­ingar skuli vera Pól­verjum reiðir. Hann segir að Pól­verjar myndu nú lík­lega hafa skoðun á því ef Úkra­ínu­menn, svo dæmi sé tekið, bæru ábyrgð á smitum í Póllandi. „Reynið að setja ykkur í spor Íslend­inga, öll þjóðin að vinna saman og svo kemur ein­hver eig­in­gjarn HÁLFVITI og rústar öllu. Pólverji, auð­vitað. Ég skamm­ast mín fyrir þennan gaur. Ég skamm­ast mín fyrir að þurfa að svara vinnu­fé­laga sem spyr: „Af hverju hagið þið ykkur svona?“ Þó að 99 pró­sent Pólverja standi sig þá er það stað­reynd að við berum ábyrgð á næstum öllum hópsmitum,“ segir hann.

Svo eru sumir sem skamm­ast yfir því að landar þeirra séu að tala af sér við Íslend­ing­ana. Hér fyrir neðan má sjá skjá­skot sem var deilt á Pól­verja­spjall­inu en við­kom­andi taldi þetta óábyrgt.

Svo eru aðrir sem koma með kunn­ug­legt stef um að það séu bara und­ir­gefnir sem trúa á COVID. „Því miður þá gefur sós­í­al­ismi og vel­ferð­ar­kerfið ein­ungis af sér þræla. Íslend­ingar eru fæddir þrælar og skilja þess vegna ekki að þetta er allt svika­mylla. Auðvitað er vírusin til og sumir veikj­ast illa, en skoðum hlut­laust hve margir eru í raun að deyja úr COVID. Það dóu 20 í fyrra og það var næstum allt gam­alt fólk. Í Banda­ríkj­unum er venju­legt líf byrjað aftur, fólk hefur gaman saman án gríma. Allt er opið eðli­lega í Dubai, Rúss­landi og Japan. Það er eitt­hvað bogið við þetta.

Svo eru sumir sem segja þetta allt ras­isma í Íslend­ingum. „Þau þurftu að kenna ein­hverjum um. Ef þetta hefði verið Íslend­ingur þá hefði það ekki verið gert að neinu aðal­at­riði. Þau munu kenna okkur um til friða Íslend­ing­ana. Það þurfti að finnna fórn­ar­lamb og auð­vitað féll það á Pól­verj­ana,“ segir Małgorzata nokkur.

Sumir svara fullum hálsi og vísa þessu aftur til föð­ur­hús­anna. „Ég vill bara minna ykkur á það að í des­em­ber voru 50 Íslend­ingar góm­aðir í partý, brutu allar reglur, og þeirra á meðal var ráð­herra. Einhvern veg­inn varð það eng­inn skandall,“ skrifar einn maður. Nicole nokkur bendir á að alvar­leg­asta atvikið hafi verið á Landa­koti og þar hafi Íslend­ingur verið á ferð.  Þá segir einn: „Heimska spyr ekki um þjóð­erni“.

Veistu meira um málið? Mannlíf tekur við ábend­ingum, myndum og mynd­böndum á net­fangið [email protected]. Fullum trún­aði heitið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina