Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Björk Jakobsdóttir leikkona hrynur í þunglyndi og hámhorf eftir frumsýningar

Björk Jakobsdóttir leikkona hrynur í þunglyndi og hámhorf eftir frumsýningar

Leik­konan, leik­stjór­inn, leik­skáldið, uppi­stand­ar­inn og nú síð­ast rit­höf­und­ur­inn, Björk Jak­obs­dóttur var undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs í vik­unni.
Björk sló eft­ir­minni­lega í gegn með verki sínu Sellófan, þar sem hún fór með ein­leik. Verkið var sýnt um víða ver­öld og hafði Björk nóg að gera við að ferð­ast á milli landa og leik­stýra verk­inu.
Um síð­ustu jól gaf Björk út sína fyrstu bók, barna- og ung­linga­bók­ina Hetjan, sem vakið hefur mikla lukku. Fjallar hún um hryss­una Hetju sem verður við­skila við eig­anda sinn, hina 15 ára gömlu Björgu og leit þeirra að hvorri annarri.
Sjálf er Björk mikil hesta­kona, enda eig­andi átta hesta og finnst henni gott að kom­ast upp í hest­hús og geta kúp­lað sig út úr amstri hvers­dags­ins.
Mannlíf komst að því að Björk elskar sjáv­ar­rétti, þolir ekki stress og verk­kvíða og segir mark­miða­græðgi sína vera farna að minnka.

Björk Jak­obs­dóttir

Fjöl­skyldu­hagir? Gift með tvo upp­komna syni, hund og 8 hesta.

Menntun/atvinna?  Leikkona, leik­stjóri, höf­undur, kenn­ari, uppi­stand­ari, fram­leið­andi, hesta­gæd og allt annað sem ég þarf að gera til að keyra eitt stykki íslenskt heim­ili.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Vá það er svo margt. Núna er ég dálítið að hámhorfa á RuPaul’s Drag Race. Það er svo frelsandi að horfa á dragdrottn­ingar sem hafa barist alla ævi fyrir því að fá að vera þær sjálfar og eru svona full­kom­lega dásam­legar eins og þær eru og hvíla betur í sjálfum sér en flestir … If you can’t love your self, how the hell are you going to love somebody else. Þetta ætti að vera í boð­orð­unum tíu.

Leikari?  Úllalala.  Eeee… Þessa stund­ina eru það Selma Björns og Salka Sól sem að ég er að leika með í „Bíddu Bara“ kvenna -söng­grín­hitt­ara smell­inum sem að við frum­sýnum næsta haust. Þær eru ekki bara massa söng­konur heldur líka Grenj­andi fyndnar leikkonur og bara ótrú­lega elsku­legar mann­eskjur.

Rit­höf­undur? Verð ég ekki að halda mig við fjöl­skyld­una og segja Hall­grímur Helga og Gunni Helga.

Bók eða bíó? Úbs sorry en rit­höf­und­ur­inn segir bíó.

Besti matur? Humar, risa­rækja, kræk­lingur. Ég væri til í að borða sjáv­ar­rétta­for­rétti í öll mál.

Kók eða Pepsí? Kók.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Náttúra Íslands í hesta­ferðum.

Hvað er skemmti­legt? Sveit, úti­vera og góður félags­skapur.

Hvað er leið­in­legt? Stress og verk­kvíði.

Hvaða flokkur? Sá sem að er með gott fólk og rétta stefnu­skrá.

Hvaða skemmti­staður? Uhu skemmti hvað? …ég er á sex­tugs­aldri sko.

Kostir? Ég er asskoti dug­leg og dríf­andi þegar ég tek mig til.

Lestir? Að hrynja í hámhorf og þung­lyndi eftir frum­sýn­ingar.

Hver er fynd­inn? Fjöl­skyldan mín.

Hver er leið­in­legur? Sá sem vill ekki hafa gaman.

Trúir þú á drauga?  Nei … eða jú … eða stundum … hvað veit ég, eitt lítið mann­eskju hró um alheimsteng­ingar.

Stærsta augna­blikið? Fæðingar sona minna.

Mestu von­brigðin? Að fatta að ég verð gömul eins og allir aðrir.

Hver er draum­ur­inn? Að hætta að hafa áhyggjur og hvíla í núvit­undar ham­ingju rússi alla daga með dýr­unum mínum og von­andi barna­börnum ein­hvern tím­ann.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Æft glæ­nýjan íslenskan gleði söng­leik um konur á öllum aldri þrátt fyrir Covid. Já og halda geð­heils­unni svona að mestu leyti á meðan. Svo erum við í Gafl­ara­leik­húinu að æfa upp vin­sælt leik­verk frá okkur á ensku sem erlendir aðilar vilja taka til sýn­ingar. Ég er stolt af því að flytja íslenka menn­ingu til útlanda.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Nei örugg­lega ekki, en ég finn að mark­miða­græðgin er farin að minnka. Nú langar mig bara að vinna við eitt­hvað sekmmti­legt og helst ekki lengi í einu og hitta svo gott fólk og dúlla mér eitt­hvað þess á milli.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Oh ég er svo lítil brand­ara­mann­eskja.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Að vera næstum búin að kyssa tví­bura eig­in­manns­ins.

Sorg­leg­asta stundin? Þegar að amma mín sem var mín önnur móðir dó.

Mesta gleðin? Að eiga heil­brigða fjöl­skyldu, afkom­endur og vini.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Fjöl­skyldan og heilsan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina