Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bílabóndinn á Garðsstöðum keypti skip: „Fullir menn á fínum bílum í vanda“

Bílabóndinn á Garðsstöðum keypti skip: „Fullir menn á fínum bílum í vanda“
Þorbjörn Stein­gríms­son bíla­safn­ari á Garð­stöðum í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Mynd: Guðmundur Sigurðsson.

„Ég var 12 ára Þegar ég eign­að­ist fyrsta bíl­inn, það var Moskvitch 1964. Fékk hann 1979 og síðan hef ég safnað. Eign­að­ist all­nokkra Mossa, svo varð flóran smátt og smátt fjöl­breytt­ari. Nú er ég með eitt­hvað nálægt 600 bílum hérna á tún­inu,“ segir Þorbjörn Stein­gríms­son bíla­bóndi á Garðs­stöðum í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Bíla­safnið á Garðs­stöðum hefur vakið mikla athygli og hermt er að það komi greini­lega fram á gervi­tungla­myndum utan úr geimnum. Þorbjörn er ævin­lega kall­aður Bjössi skrúfa fyrir vestan og mun skrúfu­nafnið hafa fest við hann strax í skóla. Þar gerði hann við ótrú­leg­ustu hluti og sýndi strax að hann úrræða­góður að fást við hluti sem ekki vildu þýð­ast öðrum.
Mikið hefur verið um að fólk leiti aðstoðar á Garðs­stöðum þegar eitt­hvað ber út af á ferðum þess um Djúpið. Bjössi var innan við ferm­ingu þegar hann var byrj­aður að aðstoða fólk með bil­aða bíla.

Bíla­breiðan á Garðs­stöðum vekur athygli.

„Það var mikið um að fólk var að koma hérna með sprungin dekk enda veg­irnir verri þá og dekkin lak­ari. Fólk efað­ist um að ég, barnið gæti gert þetta. Það voru oft kallar að sunnan að veiða hérna inn­frá og áttu til að lenda í vand­ræðum þegar þeir fóru að keyra mjög drukknir á fínu bíl­unum sínum. Man eftir einum þjóð­þekktum sem kom eftir að hafa ekið drukk­inn á stein og skemmt felgu og dekk. Hann kom hérna og bank­aði uppá, hann hafði enga trú á að ég gæti bjargað honum en ég lag­aði dekkið og rétti felg­una og hann komst suður á Range Rovernum sínum“.
Þegar ekið er inn í Ögur­vík­ina blasir bíla­breiðan við fólki og vekur jafnan for­vitni veg­far­enda. Margir stoppa og taka myndir, ganga jafn­vel upp í hlíð­ina ofan við bæinn til að filma.
„Það er alltaf eitt­hvað af fólki sem kemur við til að skoða, ef ég er hérna inn­frá leyfi ég fólki gjarnan að labba um svæðið og margir hafa gaman af því.“

Báturinn Eiður er nýjasta við­bótin á Garðs­stöðum. Hug­mynda­vinna er nú á fullu um nýt­ingu skips­ins.

Þorbjörn hefur oft kom­ist í fréttir vegna bíla­safns­ins sem svo mörgum finnst svo heill­andi. Í vetur bætt­ist við nokkuð stór stál­bátur sem dregin var inneftir og settur í fjör­una. Eiður ÍS skemmd­ist í snjó­flóð­inu á Flateyri í fyrra og stóð til að rífa hann en Bjössi festi kaup á honum og kom honum fyrir í fjör­unni sinni. Það er með bát­inn eins og bíl­ana, ferða­fólk stoppar og tekur myndir. Sam­an­safnið á Garðs­stöðum er að verða seg­ull fyrir for­vitna ferða­langa.
„Það urðu læti þegar ég kom með bát­inn hingað, en hann er á einka­landi eins og allt annað dót hérna og ekki fyrir neinum. Ég veit ekk­ert hvað ég geri við þennan bát, kannski geri ég úr honum bústað eða bara eitt­hvað allt annað. Kannski stilli ég honum betur upp Þarna og geri eitt­hvað skemmti­legt úr honum.
Það er getur alveg verið gaman fyrir fólk að rölta um og skoða bíla og báta og fá sér svo kaffi í Ögri á eftir ef það er heppið og hittir á að þar sé opið“.

Þorbjörn er á sína vísu lista­maður og stór­gaman að skoða sig um á hlað­inu. Nánast allt er notað. Olíur af bíl­unum eru not­aðar til að kynd­ingar. Engin olía er á þeim bílum sem standa á tún­inu þannig að meng­un­ar­hætta er hverf­andi. Bílarnir eru rifnir jafnt og þétt og vara­hlutum hag­an­lega komið fyrir á lager. Nýtnin eru öllu öðru framar, sú var tíð að nýtni var kölluð dyggð.
„Fólk virð­ist ekki átta sig á að hlutir hætta ekk­ert að vera til að sjálfu sér. Þegar þú kaupir bíl hverfur hann ekk­ert þegar þú ert búinn að selja hann. Ég hef legið undir ámæli og nán­ast verið ofsóttur með þessa bíla síð­ustu tutt­ugu ár. Nágrannar mínir hafa beitt sér af mik­illi hörku gegn mér en þeim kemur þetta ekk­ert við. Við eigum þetta land“.
Á hverju ári fara héðan allt að 400 tonnum af járni í end­ur­vinnslu hjá Furu í Hafn­ar­firði. Þannig að fólk ætti bara að slaka aðeins á og hugsa um sinn garð en ekki minn“.

Búið er að gera stutt­mynd um lífið á Garðs­stöðum og einkum um Bjössa skrúfu, það er kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn og fjöl­lista­konan Helga Rakel Rafns­dóttir sem gert hefur mynd­ina sem ber heitið Góði hirðirinn.
Myndin hefur verið til­nefnd til verð­launa á erlendum hátíðum. Sýningar hefj­ast núna á fimmtu­dag­inn 30. apríl í Bíó Paradís.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég er fil­maður af ein­hverjum öðrum en nágrönn­unum,“ segir Þorbjörn bíla­bóndi glett­inn á brá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina