„Systkini mín voru tekin af heimilinu, en ég var skilinn eftir. Ofbeldið sem ég horfði á sem barn var hrottalegt og stjúpfaðir minn stundaði það að láta mig horfa á þegar hann var að beita mömmu ofbeldi. Ég man eftir því þegar hann lét mig horfa á þegar hann var að lemja hana þegar ég var 6-7 ára gamall, segir Baldur Freyr Einarsson, framkvæmdastjóri Lausnarinnar, fjölskyldu- og áfallamiðstöðvar, í áhrifaríku viðtali í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar.
„Ég les barnaverndarskýrslur núna þar sem hann heldur því fram að ég hafi verið vandamálið í sambandi hans og mömmu. Í dag hugsa ég hversu lasinn þessi maður var, en það var hræðilegt að vera þessi litli strákur sem upplifði þetta.”
Varð manni að bana
Tólf ára gamall var hann kominn í neyslu og farinn að læra að búa til sprengjur. Hann segist sífellt hafa verið með kvíðahnút og í „fight og flight” ástandi. „Í mörg ár var það þannig að alltaf þegar ég kom inn í herbergi með fólki var ég búinn að reikna út hvar öskubakkinn væri og fleira sem ég gæti notað til að verja mig með ofbeldi ef eitthvað kæmi upp á.“
Árið 2002 lést 22 ára maður, Magnús Freyr Sveinbjörnsson, eftir stórfellda líkamsárás af hendi Baldurs. „Ég var á þessum tíma handrukkari og fíkniefnasali og þarna var ég hágrátandi….svo sat ég reykjandi út í eitt að reyna að ná mér niður áður en ég myndi gefa mig fram.“
Baldur var í gæsluvarðahaldi þegar lögmaður hans færir honum þær fréttir að Magnús hafi ekki lifað árásina af. „Hann segir mér að málið sé breytt af því að strákurinn sé dáinn. Þar með var hans kafli búinn og ef ég hefði hætt fyrr væri hann enn á lífi.“
Vonin vaknar
Hann segir refsingu sína ekki hafa verið vistina á Litla-Hrauni. „Mín refsing var að þurfa að horfast í augu við það að hafa tekið 22 ára gamlan strák úr þessu lífi. Fjölskyldan hans þarf að lifa með því og fjölskyldan mín þurfti að lifa með því að ég væri orðinn dæmdur ofbeldismaður.”
Baldur var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir árásina en segir fangelsisvistina ekki hafa breytt honum. „Ég var hættur að beita ofbeldi og var allt annar karakter, en ég var í raun ekki breyttur.“ Hann hélt áfram að flytja inn fíkniefni og reka vændishús eftir að hann hann losnaði. „En ég fattaði að mér leið ömurlega inni í mér.“
Í aprílbyrjun árið 2007 ákvað Baldur að söðla um og fór í 12 spora samtök þar sem vonin kviknaði. „Fyrstu skrefin sem maður tekur er að finna æðri mátt og þar fann ég eitthvað sem mig hafði vantað alla ævi. Þá fæ ég ennþá meiri von og þar byrjaði breytingin fyrir alvöru.”
Systurmissir erfiður
Yngri systir Baldurs lést skömmu eftir að hann var kominn úr fangelsi. Hann segir það hafa verið eins og rýting í hjartað. „Hún var í partýi þar sem henni var boðið eitrað MDMA og lést eftir að hafa tekið það. Það munaði litlu að ég færi í gamla gírinn eftir það. Hún var hetjan okkar, var í landsliðinu í fótbolta og á leiðinni í háskólann. Svo datt hún í það á afmælisdaginn sinn þegar hún var tvítug og fór í vitlaust partý.“
Löngu síðar fékk Baldur fregnir af því að myndband væri til af systur hans í partíinu þar sem hún var ber að ofan. Gamlir félagar buðust til að „sjá um” manninn sem hafði látið systur hans í té eiturlyfin ef að Baldur kinkaði kolli sem hann og gerði. Daginn eftir fer hann út að hlaupa þegar honum finnst eins og systir hans sér hjá honum og spyrji hvernig hann vilji láta muna eftir henni. Baldur hringdi í gömlu vinina og bað þá um að láta strákinn í friði. „Þarna var restin af einhverju gömlu að deyja innra með mér.”
Baldur segir að með starfi sínum með fólki sem hefur villst af braut í lífinu sé að hann að bæta upp fyrir misgjörðir. Hann segist ekkert geta gert til að bæta fyrir mistök sín. Hann ræddi meðal annars við fjölskyldu Magnúsar og lét þau vita að líf hans myndi nú snúast um að forða öðrum að rata hans veg.
Þáttin má sjá í heild sinni hér:































Athugasemdir