Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hafsteinn fékk taugaáfall og stofnaði hlaðvarp: „Að lokum gafst líkaminn upp“

Hafsteinn fékk taugaáfall og stofnaði hlaðvarp: „Að lokum gafst líkaminn upp“

Hlað­varps­þátt­ur­inn Bíó­blaður hóf göngu sína í júlí síð­ast­liðnum, en að honum stendur Haf­steinn Sæmunds­son. Þátt­ur­inn hefur farið hratt vax­andi í vin­sældum enda hefur stúd­íóið notið góðs af fínu streymi gesta á síð­ustu miss­erum. Á meðal margra gesta má nefna Baldvin Z, Völu Kristínu Eiríks­dóttur, Pál Óskar Hjálmtýs­son, Siggu Kling, Kilo, Sunnevu Ein­ars­dóttur, Emmsjé Gauta, Binna Löve og Donnu Cruz.

Þætt­irnir nálg­ast níunda tug­inn, en Haf­steinn stefnir ótrauður á þátt númer 100 í júlí. Í sam­tali við blaða­mann segir Haf­steinn að mark­mið hlað­varps­ins sé í grunn­inn ein­falt; að fá fólk til að kunna betur að meta þetta skemmti­lega list­form sem kvik­myndir eru.

„Fyrir mér hafa bíó­myndir alltaf verið skemmti­efni,“ segir Haf­steinn. „Stundum þegar harð­kjarna kvik­mynda­á­huga­menn eða gagn­rýnendur tala um bíó­myndir, þá finnst mér þeir detta ofan í þá gryfju að taka þetta allt of alvar­lega og setja sig hálf­part­inn á ein­hvern stall. Ég vildi ekki gera það og þess vegna vildi ég einmitt hafa gest­ina mína fjöl­breytta.“

Áhrifa­vald­ur­inn Sunneva Einars mætti í stúd­íóið til Haf­steins.

Listin að standa á sama

Haf­steinn segir að kulnun í starfi hafi leitt til stofnun hlað­varps­ins. „Ég hafði verið að vinna hjá fyr­ir­tæki sem sér­hæfði sig í að selja heim­il­is­tæki og inn­rétt­ingar. Mér lík­aði vinnu­stað­ur­inn vel, en álagið varð gríð­ar­legt á frekar stuttum tíma. Að lokum gafst lík­am­inn upp,“ segir hann.

„Í des­em­ber 2019 fékk ég tauga­á­fall sökum álags í vinnu og heima fyrir og þurfti að fara í veik­inda­leyfi. Það var síðan í jan­úar 2020 að ég las bók sem kall­ast The Subtle art of not giv­ing a Fuck. Sú bók breytti mínu hug­ar­fari og í fram­hald­inu ákvað ég að ég vildi fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann, gera eitt­hvað sem hræddi mig pínu og gera loks­ins eitt­hvað sem ég hafði mikla ástríðu fyrir.“

Haf­steinn á fram­haldið að þakka góðum vini sínum sem hvatti til að nýta þekk­ingu sína og áhuga með hlað­varpi. „Á þeim tíma fannst mér hug­myndin fárán­leg en það var ein­fald­lega vegna þess að ég hef aldrei verið mikið fyrir athygli, finnst fátt leið­in­legra en að láta taka mynd af mér og þótti röddin mín alltaf óþol­andi.“

Haf­steinn segir að skipu­lag þátt­ar­ins sé þrí­skipt þegar kemur að gestum. „Hugsunin var að fá vini mína, frægt fólk og ein­hverja áhuga­menn sem fáir þekkja en hafa brenn­andi áhuga á bíó­myndum. Ég hef nú þegar fengið til mín graf­íska hönn­uði, leik­stjóra, leikkonur, rapp­ara, skemmti­krafta, fram­leið­endur, popp­stjörnur, áhrifa­valda, kvik­mynda­fræð­inga, kvik­mynda­nema, svo mætti lengi telja.”

Hasar í forgangi

Haf­steinn er fæddur árið 1983 og ólst upp við mikið kvik­mynda­á­horf, sem þátta­stjórn­and­inn segir vera for­eldrum sínum að þakka. „Ég ólst upp við mikið bíó­mynda­á­horf en pabbi minn var dug­legur að sýna mér bíó­myndir þegar ég var krakki.

For­eldrar mínir voru alltaf dug­legir að fara í bíó og þegar þau sáu mynd sem var bönnuð börnum, og ég gat þar af leið­andi ekki séð hana, þá lýsti pabbi minn atriðum fyrir mér um leið og hann kom heim,“ segir Haf­steinn og full­yrðir að hasar­myndir eigi sér sér­stakan stað hjá sér.

Hvers vegna hasar­myndir?
„Vegna þess að pabbi minn elskar svo­leiðis myndir. Æskan mín var full af þessum helstu hasar­hetjum og ég hef ekki enn fengið nóg af þessu.”

Brot úr sarpi Bíó­blað­urs má finna hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina