Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Þegar ég næ þér, þú átt eftir að vilja fara á hné og biðja bænir“

„Þegar ég næ þér, þú átt eftir að vilja fara á hné og biðja bænir“

Í gær var karl­maður dæmur í tveggja ára fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir ítrekuð brot á nálg­unn­ar­banni, brot í nánu sam­bandi, lík­ams­árás, hús­brot, vopna­laga­brot og umferð­ar­laga­brot. Meðal þeirra gagna sem fram komu í mál­inu voru 50 texta­skipa­boð og tölvu­póstar sem mað­ur­inn endi á fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu sína, sam­býl­is­mann hennar, vin­konu og yngri systur sína. Var þeim ítrekað hótað hrotta­legu ofbeldi og líf­láti. Maðurinn var einnig fyrir lík­ams­árás á fyrr­ver­andi sam­býl­is­kon­una og að hafa hóta karl­manni með skot­vopni.

Hinn dæmdi hefur átt við geð­ræn vanda­mál að etja og á að baki langa sögu fíkni­efna­neyslu.

Hótanir um líkamsmeiðingar og dauða

Karl­mað­ur­inn var meðal ann­ars ákærður fyrir að hafa sent skila­boð í síma vin­konu fyrr­ver­andi kær­ustu sinnar undir öðru nafni og hótað að berja fyrr­ver­andi kær­ustu sína:

„Nú vill ég bara segja þér. Ef ég fer aftur inn útaf T þá er ég að fara að berja hana það ílla að mamma hennar er ekki eftir að þekkja hana þegar Nbannið er búið og ég laus,“ segir í sms skila­boð­unum til vin­konu fyrr­ver­andi kær­ustu manns­ins.

Fyrr­ver­andi sam­býl­is­kona mannsin fékk yfir þús­und skila­boð frá mann­inum úr hinum ýmsu núm­erum þrátt fyrir nálg­un­ar­bann. Öll hljóma þau á sama veg, eru hót­anir um lík­ams­meið­ingar og dauða. Hann seg­ist meðal ann­ars ætla að skjóta hana í haus­inn.

„Ok núna er ég að fara út og koma til þín nema þú gefir mér svar. Gef þér 10min eða þu serð mig eftir sma. Ég mun leita af þér útum allt, klifra upp svalir ef þess þarf. Ég vill fá fokk­ing skaða­bætur, hlitur að skilja það. Mundu. Þú bauðst uppá þetta. Ég drep þig. Veistu mer hlakkar rosa­lega til að hitta þig uta gotu ein­hverntiman. Ég er utum allt alla daga, einn dag­inn næ eg þer. Og þegar eg næ þer, þú ert eftir að vilja fara a hne og biðja bænir um að ég sé ekki eftir að permanently eyði­leggja a þer skrokk­inn. Nú eru allir vinir minir að fara segja mer hvar þu ert um leið og þeir sja þig. Og ég mun mæta á staðin um leið. Ég mun ekki hika við það.“

„Ætla að drepa þennan gaur“

Kærasta sam­býl­is­kon­unnar fyrr­ver­andi er einnig hótað:

„Eg er að fara drepa þig og hann nema þu biðjir afsok­unar og hjalpar mer að laga skemmd­inar eftir þig og meinar það sem þu segir að þu elskir mig. Eg ætla drepa þennan gaur eg er að segja þer það. Eg ætla stinga hnif i eistun a honum og svo hjartað.“

Hann hótar henni ef hún muni segja frá: „Og hey ætla bara segja þer það nuna. Ef eg fretti eitt­hver­staðar að þu sert að dreyfa ut þvi sem eg er að segja við þig. Þá mun ég drepa þig i stað snoða þig.“

Hótanir manns­ins beindust einnig að fjöl­skyldu hans er hann hót­aði systur sinni ítrekað líf­láti:

„Mundu bara það Eað ef ég fer inn aftur útaf þér. Þá drep ég þig þegar ég losna og mér er alvara ég mun drepa þig bók­staf­lega sama þó ég fái 10-20-30-40 ár,“ segir meðal annar í skila­boðum manns­ins til systur sinnar.

„Ef litla systir mín og fjöl­skylda mín og kærasta mín og allir.vilja mér þá drep ég ykkur öll. Um leið og ég losna þá fer ég strax í það að kveikja í hús­unum ykkar.“

„Og þú skallt fokk­ing muna það. Alla síð­ustu fang­els­is­vist­ina mína þá var ég búin að hugsa „ALLAN TÍMAN“ um að drepa þig næst þegar ég kæmi út. Næst stend ég við það“

Atlaga með hnífi

Þá var mað­ur­inn einnig ákærður fyrir vopna­laga­brot með því að hafa sunnu­dag­inn 3. febr­úar 2019 veist að ein­stak­lingi með hnífi í íbúð í Hafnar­firði. Hann er sagður í­trekað hafa reynt að leggja að leggja hnífnum að ein­stak­lingnum sem við það flúði frá honum út á svalir í­búð­ar­innar og lok­aði svala­dyr­unum. Á­kærði hélt á­fram at­lögu sinni og sló hnífnum ítrekað í gler í rúðu svala­hurð­ar­innar uns það brotn­aði.

Maðurinn er einnig á­kærður fyrir að hafa sent ó­nefndum aðila skila­boð gegnum Facebook og hóta honum líf­láti meðan hann hand­lék skot­vopn.

„Hlustaðu á mig ég og gengið mitt mun berja þig í klessu ef þú lætur ekki H vera. Hún er konan mín og ég er að segja þér það ég mun finna út úr því hvar þú býrð og fara þangað vopn­aður með vinum mínum ef þess þarf“

„Hlustaðu núna þú talar ekki við hana aftur eða ég mun finna þig. Ég mun tæma í­búð­ina þína og skilja þig eftir með ekk­ert. Ég mun kreista úr þér allan pen­ing sem þú átt.“

Þá er hann á­kærður fyrir að hafa ráð­ist á sama aðila í Reykja­vík síð­asta sumar og veist að honum með of­beldi með þeim af­leið­ingum að hann hlaut brot bæði í nef­beini og kinn­beini. Hann fór einnig að lokum heim til aðil­ans þar sem hann var með „H“ og braut gler í 7 svalarúðum með hamri.

Laus eftir 17 mánuði

Maðurinn er einnig á­kærður fyrir í­trekuð brot í nánu sam­bandi með því að hafa veist að þá­ver­andi kær­ustu sinni kýlt hana hana með krepptum hnefa í and­litið á heim­ili hennar 22. maí og í bif­reið sinni 4. júní 2020. Þá hót­aði hann henni einnig of­beldi með skila­boðum 26. júní:

„Ég er að fara fokk­ing berja þig í klessu ef þú borgar mér ekki þó ég fari inni fang­elsi nú er mér orðið drullu sama. Fokkar ekk­ert svona í mér og kemur svona fram við mig, ég var bara góður við þig hel­vítis mellan þín. Þú færð það sem þú gefur mundu það. Ég er að fara finna þig. Ég veit að þú lentir í Reykja­vík klukkan 5 í dag. Shit eg er að fara fokk­ing eta þig. Ég er að fara stúta þér,“ segir í skila­boðum manns­ins.

Sem fyrr segir var mað­ur­inn dæmdur í fang­elsi í tvö ár en til frá­dráttar refs­ingu kemur gæslu­varð­hald sem á­kærði hefur sætt ó­slitið frá 1. októ­ber 2020 til dags­ins í dag. Maðurinn mun því að óbreyttu verða laus eftir 17 mán­uði.

Gerð voru upp­tæk 2.367,6 g af kanna­bis­laufum, 663,4 g af kanna­bis­stönglum, 231,95 g af maríjúana, 25 kanna­bis­plöntur, 24 stykki af ana­ból­ískum sterum af ó­þekktri gerð, 7 milli­lítrar af ana­ból­ískum sterum í formi stungu­lyfs­ins nandrolon, 2,5 milli­lítrar af ana­ból­ískum sterum í formi stungu­lyfs­ins testosteron og lit­bolta­byssa.

Á­kærða var einnig gert að greiða 1,4 millj­ónir króna í miska­bætur á­samt máls­varnar­laun verj­anda síns að upp­hæð 5 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina