Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Mesta afrek Ivans að opna hjarta sitt meira fyrir ástinni

Mesta afrek Ivans að opna hjarta sitt meira fyrir ástinni

Hinn hæfi­leik­a­ríki og sjar­mer­andi tón­list­ar­maður, Ivan Mendez var undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs í vik­unni.
Akur­eyr­ing­ur­inn Ivan býr, starfar og stundar nám í Berlín um þessar mundir.
Hann var áður í hljóm­sveit­inni GRINGLO, en er nú sóló lista­maður. Ivan vinnur nú að nýrri plötu sinni sem ber nafnið FAR-FÜGL. En nú þegar eru komin út tvö lög af plöt­unni, hægt er að hlusta á þau ásamt fleiri lögum Ivans á Spotify.

Mannlíf komst að því að Ivan á ekki sjón­varp, hann elskar villt kakó og hann gerði samn­ing við ömmu sína þegar hann var lít­ill sem stendur enn.

Ivan Mendez

Fjöl­skyldu­hagir? Hagur fjöld­ans er skylda. Ég er fjöl­hleypur og eina barnið sem ég þarf að bera ábyrgð, á eins og staðan er núna, er það sem býr innra með mér.

Menntun/atvinna? Mennt­aður hár­snyrtir, núver­andi í námi við Catalyst Berlin í „Music Production & Sound Engineering.” Annars legg ég stund á tón­list­ar­sköpun og Cacao athafnir.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Á ekki sjón­varp en lendi oft­ast inni á ein­hverju YouTube channeli að nör­dast yfir tón­list þegar mig langar að tengja mig við staf­ræna heim­inn.

Leikari? Jim Carrey, alla leið alltaf.

Rit­höf­undur? Gunnar Dal, Carlos Castaneda, Hermann Hesse, Ási í Bæ, Rudolf Steiner…

Bók eða bíó? Fer eftir skapi að aðstæðum auð­vitað, en ég er ástríðu­fullur bóka­ormur.

Besti matur? Kól­umbískar Arepas og villt Cacao.

Kók eða Pepsí? Ég lof­aði ömmu að hætta að drekka kók þegar ég var lít­ill, í stað­inn hætti hún að reykja. Við höldum okkar lof­orði enn.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Hjartað.

Hvað er skemmti­legt? Að muna að maður er til.

Hvað er leið­in­legt? Að gleyma því óvart.

Hvaða flokkur? Þursa­flokk­ur­inn. Þegar það kemur að rusla­flokkun hef ég dálæti af pappa.

Hvaða skemmti­staður? Bara hvar sem ég geti verið ber­fættur að dansa í sól­inni!

Kostir? Ástríðu­fullur, ein­beittur, mis­kunn­samur, hjart­næmur.

Lestir? Aðallega neð­an­jarð­ar­lestir, en þær fara með mig heim á end­anum.

Hver er fynd­inn? Sá sem leitar.

Hver er leið­in­legur? Sá sem sjálfur heldur sig vera það.

Trúir þú á drauga? Ég hafði mikla trú á Casper hér áður fyrr, en eftir að Laddi lék draug í mynd­inni „Ófeigur” missti ég alfarið trú á draugum.

Stærsta augna­blikið? NÚNA.

Mestu von­brigðin? Vonin hefur ekki brugð­ist mér enn þá. En hún kemur mér oft á óvart.

Hver er draum­ur­inn? Þessi hérna, sem við lifum öll í saman.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að klára plöt­una mína og að opna hjarta mitt meira fyrir ást­inni. 

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Það yrði þver­sögn, þar sem eitt af mark­miðum mínum er að hafa alltaf mark­mið.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Nei en ég skal skálda kosmískan brand­ara.
Guddi vildi upp­lifa eitt­hvað nýtt svo að hann breytti sér tíma­bundið í Góa og gleymdi því sam­stundis hver hann í raun og veru var. Gói var ringlaður í þessum nýja lík­ama og hélt lengi vel að hann væri bara Gói. Einn dag­inn vildi hann vita meira og ákvað að horfa á sjálfan sig í spegli. Í fyrstu sá hann ekk­ert svo hann færði sig nær. Á end­anum var Gói kom­inn svo nálægt spegl­inum að hann horfði inn í augun á sjálfum sér. Þegar hann gægð­ist inn um þær gáttir sá hann alheim­inn, sól­kerfi, stjörnur, plánetur, svart­hol, ljós, myrkur, rými, efni og allt sem til er í efn­is­heim­inum. Hann brosti, hló óstjórn­lega og mundi þá að hann hafði í raun alltaf verið Guddi.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Einu sinni, þegar ég var 6 ára, datt ég og missti bux­urnar niður um  mig sam­tímis. Þegar ég leit upp sá ég stelpuna sem ég var skot­inn í, hún benti á mig og hló. Þessi minn­ing hefur fært mér mikið á hlátri og gleði allar götur síðan. Alltaf vin­sæl saga í partýjum.

Sorg­leg­asta stundin? Að kveðja Tuma, hund­inn minn.

Mesta gleðin? Að elska.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Að elska.

Hægt er að hlýða á tón­list Ivans hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina