Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svala mætir fordómum vegna sjúkdóms síns: „Ég er svo verkjuð í öllum líkamanum“

Svala mætir fordómum vegna sjúkdóms síns: „Ég er svo verkjuð í öllum líkamanum“
Svala Bergmann Hjalta­dóttir

„Ég grein­ist fyrir 15 árum en hef lík­lega verið með vefja­gigt síðan ég var barn eða ung­lingur,“ segir Svala Bergmann Hjalta­dóttir, 39 ára gömul kona sem hefur mátt þola það að vera kölluð let­ingi og aum­ingi vegna sjúk­dóms síns. Hún seg­ist end­an­lega hafa verið stimpluð þegar hún þurfti að end­ingu að fara á örorku árið 2003 vegna þess að hún gat ekki sinnt starfi sínu lengur vegna verkja og van­líðan.

Ein­kennum vefja­gigtar er svo lýst á vef Gigt­fé­lags­ins:

Aðal­ein­kenni vefja­gigtar eru langvar­andi útbreiddir stoð­kerf­is­verkir, þreyta og skert lík­am­legt úthald. Verkirnir virð­ast vera í vöðv­unum eða í kringum lið­ina í hand­leggjum, fót­leggjum, hálsi, öxlum og baki. Ástæður verkj­anna eru óljósar og hafa verkirnir til­hneig­ingu til að breið­ast út um allan lík­amann. Sjúk­ling­ur­inn lýsir líð­an­inni þannig að honum „sé alls staðar illt“. Vöðvarnir virka stífir eins og um sé að ræða harð­sperrur og verkirnir eru á mis­mun­andi stöðum í lík­am­anum. Verkirnir sveifl­ast í styrk­leika og hversu lengi þeir vara. Jafnvel minnsta álag eða áreynsla getur leyst úr læð­ingi bæði verki og þreytu sem valda oft erf­ið­leikum í dag­legu lífi.

Svala á góðum degi

„Þetta hefur algjör­lega litað allt líf mitt og tekið frá mér orku og lífs­vilj­ann,“ segir Svala.

Hún fer í sjúkra­þjálfun tvisvar í viku, sem hún segir hjálpa. Svala er einnig dug­leg að fara út að labba þegar lík­am­inn býður upp á það, en göngut­úra segir hún bæta geðið. „Svona við­var­andi lík­am­leg van­líðan hefur nátt­úru­lega áhfrif á and­lega heilsu.“

Svala getur ekki verið með fasta rútínu í lífi sínu, því hún seg­ist aldrei vita hvernig líðan hennar verði næsta dag. „Vefja­gigtin stjórnar gjör­sam­lega lífi mínu, þetta er mjög hamlandi. Þetta hamlar mér í öllu, alveg sama hvað mig langar að gera,“ segir hún auð­heyri­lega lang­þreytt á þeim tak­mörk­unum sem vefja­gigt­inni fylgir.

Svala er með heima­hjúkrun alla morgna sökum sjúk­dóms síns, en stundum þarf hún meira að segja aðstoð við að klæða sig vegna verkja í lík­am­anum.
Hún er einnig með heima­þrif og fer­il­þjón­ustu til að kom­ast á milli staða, því stundum á hún erfitt með gang.

Hún er beðin um að lýsa góðum og slæmum degi

„Á góðum degi vakna ég um klukkan sex, ég fer alltaf að sofa klukkan tíu, ég klæði mig og fer svo í Lautina,“ segir Svala.

Lautin er athvarf á Akureyri fyrir fólk með geð­rask­anir. Þangað getur það komið, hitt annað fólk, spjallað, spilað, prjónað, borðað hádeg­is­mat og ýmis­legt fleira.

Segist Svala fara þangað alla þá virku daga sem heilsan leyfi.

„En já á góðum degi fer ég þangað frá klukkan korter yfir tíu til eitt og tek þátt í starf­inu þar. Ég fer svo heim set í þvotta­vél og tek úr og hengi upp, vaska upp leir­tauið, fæ mér svo stutta göngu og þá er ég búin á því og tek því rólega sem eftir er dags. Já og auð­vitað fer ég í sjúkra­þjálfun­ina tvisvar í viku.“

Slæmur dagur er aftur á móti tölu­vert frá­brugð­inn. „Ég sef sama sem ekk­ert og gefst venju­lega upp á rúm­inu um klukkan fjögur og stjákla þá um og æja og óa af verkjum,“ segir Svala. En svo tekur hún lyfin sín og reynir að leggj­ast aftur.

Svala reynir að halda í jákvæðn­ina, þrátt fyrir að vera oft sár­kvalin.

„Ég er svo verkjuð í öllum lík­am­anum,“ segir hún og leggur áherslu á orð sín, „og hár­inu líka að mér finnst.“

Allan daginn í náttfötunum

Þessa daga orkar Svala ekki einu sinni að klæða sig í föt og er því í nátt­föt­unum allan dag­inn. Hún seg­ist ekk­ert gera og borða lítið sem ekk­ert, því henni sé svo óglatt af verkjum.

„Seinni­part­inn þessa daga er and­lega heilsan orðin mjög slæm,“ segir hún og aug­ljóst að það er henni erfitt að segja frá þessu. „Þá er ég komin með sjálfs­vígs og sjálf­skað­andi hugs­anir því að ég er orðin svo þreytt á þessum eilífu verkjum.“

Svala tekur kvöld­lyfin sín fyrr á slæmum degi og reynir að sofna snemma því hún geti ein­fald­lega ekki meir.

Svala seg­ist oft reyna fela vefja­gigt­ina fyrir ókunn­ugum því hún vilji ekki vera stimpluð aum­ingi, en hún hefur upp­lifað mikla for­dóma í garð sjúk­dóms­ins. „Mér finnst skárra að segja frá geð­sjúk­dómum mínum og að ég er óvirkur alkó­hólisti, heldur en að segja frá því að ég sé með vefja­gigt, því það er meiri skiln­ingur fyrir hinu. Þetta er fárán­legt,“ segir hún döpur í bragði.

Eitt sinn hélt Svala fyr­ir­lestur um vefja­gigt á Hótel Kea, en hún von­ast til að með meiri fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu fari fólk að sýna sjúk­dóm­inum meiri skiln­ing og for­dómar sam­fé­lags­ins minki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina