Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigurborg reyndi að fela veikindin en gat svo ekki meir: „Ég var hætt að geta staðið í lappirnar“

Sigurborg reyndi að fela veikindin en gat svo ekki meir: „Ég var hætt að geta staðið í lappirnar“

Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, borg­ar­full­trúi Pírata, gerði allt til að fela veik­indi sín og sýn­ast vera nógu sterk. Hún ætl­aði ein­fald­lega að harka af sér og bera harm sinn í hljóði en gat svo ekki meir. Hún segir skilið við póli­tík­ina og setur sjálfa sig í fyrsta sætið.

Sig­ur­borg ræðir veik­indi sín í við­tali við Frétta­blaðið. Hún rekur þau til of mik­ils álags í of langan tíma enda þurfi stjórn­mála­menn að sætta sig við ótrú­leg­ustu ofsóknir. Yfir Sig­ur­borgu hefur meðal ann­ars verið hraunað í sturt­unni í Vest­ur­bæj­ar­laug­inni og hún fær ítrekað heift­úð­leg skila­boð. „Þau eru yfir­leitt frá eldri karl­mönnum. Sumir skilja eftir bréf heima hjá mér. Aðrir senda manni SMS svo maður kemst ekki hjá því að sjá það. Ég upp­lifi áreiti úti á götu … ég er að hjóla ein­hvers staðar og það er öskrað á mig. Það er baunað yfir mig þegar ég er í sturtu í Vest­ur­bæj­ar­laug­inni, þegar ég er að taka leigu­bíl eða hvað sem er, það bara stoppar ekk­ert,“ segir Sig­ur­borg og heldur áfram:

„Þegar maður vinnur í póli­tík … þá ertu bara í vinn­unni frá því að þú vaknar og þangað til að þú sofnar. Ég var að vinna frá morgni til kvölds, dag eftir dag eftir dag, viku eftir viku. Þú færð ekk­ert frí um helgar eða á sumrin. Það er ekki þannig. Mér fannst ég aldrei vera að gera nóg, mér fannst ég aldrei standa mig og var alltaf að reyna að gera betur hvern ein­asta dag.“

Vildi ekki sýna veikleika

Í dag er Sig­ur­borg í gigt­arr­rann­sóknum og glímir við mikið þung­lyndi. Á und­an­förnum miss­erum fór hún tví­vegis í löng veik­inda­leyfi frá vinnu en reyndi allt til að fela það. „Ég vildi ekki að fólk héldi að ég væri í veik­inda­leyfi og gerði allt til að fela það. Mér fannst ég þurfa að fela það. Ég vildi sýn­ast vera nógu sterk,“ segir Sig­ur­borg en í nóv­em­ber síð­ast­lið­inum gafst lík­am­inn upp.

„Ég var bara alveg komin upp að vegg. Ég var hætt að geta staðið í lapp­irnar. Ég var algjör­lega búin með alla orku og komst ekki fram úr á morgn­ana, gat ekki hugsað um mig né börnin mín. Þetta er í raun­inni algjör örmögnun, þar sem þú ert bara algjör­lega mátt­laus, hefur enga orku og ert bara síþreytt.“

Sig­ur­borg segir að veik­indin hafi hlað­ist smátt og smátt saman upp. „Ég vildi aldrei við­ur­kenna að ég væri þung­lynd. Af því að mér fannst ég ekki eiga rétt á því. Ég væri bara á góðum stað í líf­inu, með heil­brigð börn og vinnu, af hverju í ósköp­unum ætti ég að vera þung­lynd? Ég er nátt­úru­lega bara númer eitt, tvö og þrjú núna að hugsa um að ná heilsu aftur. Ég hef ekk­ert leyft mér að hugsa neitt lengra út af því að ég get bara tekið eitt skref í einu,“ segir Sig­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina