Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dóttirin var beitt kynferðisofbeldi fimm ára gömul: „Af hverju kom ég ekki í veg fyrir þetta?“

Dóttirin var beitt kynferðisofbeldi fimm ára gömul: „Af hverju kom ég ekki í veg fyrir þetta?“

„Maður á ekk­ert að treysta öllum, af hverju ætti maður að treysta öllum. Oftar en ekki er þetta innan fjöl­skyld­unnar eða mjög nálægt fjöl­skyld­unni, fólkið sem maður vill treysta sem best fyrir börnum sínum. Þessi aðili sem braut á dóttur minni var mikið inni á heim­il­inu og umgekkst börnin mín mikið,“ segir móðir í við­tali við Frétta­blaðið. Hún kemur ekki fram undir nafni til verndar dóttur sinni.

Í við­tal­inu rekur móð­irin sögu þeirra mæðgna en dóttir henn­ar­varð fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi aðeins fimm ára að aldri.

Teikn voru á borði

Hún segir teikn hafa verið uppi á borð­inu, mað­ur­inn hafi notað ósæmi­legt orða­lag við eldri börn hennar og þannig gefið í skyn hvernig maður hann var. Hún reikn­aði þó ekki með að yngsta barnið væri í hættu. „Ég tók hann á teppið og sagði honum að slík fram­koma væri ekki í lagi og ekki boð­leg. Ég var alltaf á varð­bergi en þó greini­lega ekki nægi­lega vökul.”

Sjálf varð móð­irin fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem barn, reynslu sagði hún ekki frá fyrr en þrjá­tíu árum síðar. Þessi erf­iða reynsla varð til þess að hún hefur ávallt verið dug­leg að ræða við börnin sín um mörk og fræða þau um hvað sé rétt og rangt og í þessum efnum. Hennar eigin reynsla varð einnig til þess að hún taldi sig vita hvað hefði gerst, þegar yngsta dóttir hennar fór að sýna af sér óeðli­lega hegðun um fimm ára aldur. „Ég var alltaf með þessa umræðu opna á heim­il­inu. Alla þessa punkta sem voru mjög vak­andi í mér. Þrátt fyrir það sagði hún mér ekki frá því hvað hefði komið fyrir hana fyrr en en fimm árum síðar. Þegar hún var orðin tíu ára gömlu.“

Fimm ára gömul fór dóttirin að sýna hegðun sem móð­irin tengdi sjálf við af eigin reynslu af kyn­ferð­is­of­beldi, reiði­köstu, óánægju og óör­yggi, en fékk ekk­ert upp úr henni, sama hvaða leið var reynd. Barnið var þög­ult sem gröfin.

Málið reyndist fyrnt

„Eitt sinn þegar við vorum búnar að vera einar lengi og njóta okkar tíma án trufl­an­ana, gerð­ist það að dóttir mín opn­aði sig og það var eins og flóð­gáttir hefðu opn­ast og fyr­ir­staðan var engin. Fyrir guðs mildi brást ég rétt við. Ég hlust­aði á hana og sagði henni að ég heyrði hvað hún væri að segja, leyfði henni bara að tala. Ég sagð­ist trúa henni og pass­aði mig á að útskýra ekki né tala heldur leyfði hennig bara að fá sinn tíma. Eða í raun þurfti ég ekki að passa mig, heldur varð van­mátt­ur­inn algjör og ég dvaldi í honum lengi vel.”

Hún seg­ist strax hafa gert dótt­ur­inn grein fyrir að hún vildi að ger­and­inn svar­aði fyrir sakir sínar. Hún myndi þó ekk­ert aðhaf­ast án hennar sam­þykkis. Dóttir hennar sam­þykkti það og bað móðir sína einnig að tala við föður sinn þar sem hún treysti sér ekki það.

Þær mæðgur fóru með málið fyrir dóm en reynd­ist það þá fyrnt. Á þeim tíma var fyr­in­ing­ar­tím­inn fimm ár, jafn langur tími og liðið hafði frá brot­inu. Nokkur ár eru liðin frá því mála­ferlum lauk og við­ur­kennir móð­irin að það haf reynt á dótt­ur­ina að að kom­ast að því að málið væri fyrnt, henni hafi sárnað að fara í gegnum allt ferlið til þess eins að  kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu.

Það er engir útvaldir

„Ég skil í dag fólk sem treystir sér ekki í þennan slag, er ekki nógu sterkt. Ég tel mér það til tekna að ég er nógu sterk og rétt­læt­is­kennd mín nægi­lega rík til að ég gat bara ekki látið þetta mál fara for­görðum. Barnsins míns vegna. Og allra hinna barn­anna. Ég finn þegar ég tala um þetta að ég fyllist orku því mér finnst ég þurfa að passa öll börnin. Það finnst mér ég gera með því að tala um þetta og minna for­eldra á að tala við börnin sín og opna eyrun. Þetta ger­ist alls staðar, það eru engir útvaldir, við erum öll með í val­inu og það er bara spurn­ing hver verður fyrir val­inu.“

Hún vill leggja meiri áherslu á for­varn­ar­starf og að fólk þekki táknin og geti lesið í þau. Hún segir það mik­il­vægt að for­eldrar færði börn sín um eðli­leg mörk í kyn­lífi. „Sú fræðsla verður að byrja nokkuð snemma, alla­vega um það leyti sem kyn­þrosk­inn fer af stað. Kyn­fræðsla hefur alltaf farið fram á mínu heim­ili og það þarf að taka hana þar. Það er partur af upp­eld­inu. Best af öllu er þó í öllum til­fellum að fyr­ir­byggja kyn­ferð­is­of­beldi.“

Þarf að sættast við sjálfa mig

Móðirin segir að um ofboðs­legt högg hafi verið að ræða og stærra áfall en hún gerði sér grein fyrir á sínum tíma. Hún lam­að­ist og gat ekki einu sinni rætt þetta við nán­ustu vin­konur sínar. Samtalið við pabba stúlkunnar tók viku að mana sig upp í. „Getur maður ein­hvern­tíma verið til­bú­inn að taka á móti svona upp­lýs­ingum? Ég held ekki. En ég þarf að  takast á við þetta með barn­inu mínu og hjálpa því í gegnum ferlið. Ég þarf líka að sætt­ast við sjálfa mig því það var ég sem klikk­aði. Af hverju kom ég ekki í veg fyrir þetta og af hverju þetta og hitt.”

Sjálf beið móð­irin í þrjá ára­tugi með að segja frá ofbeld­inu sem hún varð fyrir því hún taldi engan myndi trúa sér. „Dóttir mín vissi aftur á móti að hún gæti sagt mömmu sinni og að hún myndi trúa henni. Allt hefur þetta áhrif og því opn­ari sem umræðan er, því meiri líkur á að ger­and­inn þori ekki að fara af stað. Hugsaðu ef ég hefði aldrei talað um þetta? Þá hefði hún kannski aldrei sagt frá þessu.”

Báðar leit­uðu mæðgurnar sér hjálpar fag­að­ila segir móð­irin dóttur sína vera á góðum stað í dag.

„Við eigum þessu umræður eins oft og hún hefur þörf fyrir. Ég ýti ekki á það. Hún á fjöl­skyldu sem hefur stutt hana í gegnum þetta ferli. Hún hefur komið vel út úr þessu og er að efl­ast og þroskast. Hún losnar aldrei við lífs­reynsl­una en er er von­andi að nýta sér hana til góðs. Það er mikið gleði­efni að hún ætlar ekki að fest­ast í for­tíð­inni heldur nýta reynsl­una áfram,” segir móð­irin að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við