Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Neytandi vikunnar – Inda Björk er öryrki með sex manns og hund í mat

Neytandi vikunnar – Inda Björk er öryrki með sex manns og hund í mat

Inda Björk er neyt­andi vik­unnar. Hún er 45 ára öryrki sem vinnur eins mikið og heilsa hennar leyfir. Inda er gift og á þrjá syni. Heimili Indu er þriggja kyn­slóða hús sem sam­anstendur af þeim hjónum, föður Indu og syni sem er enn búandi heima, dásam­legri tengda­dóttur að ógleymdum hund­inum Bóas.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst ?

„Það er mjög mis­jafnt eftir því hvað við erum mörg heima hverju sinni. Við erum á bil­inu þrjú upp í sex manns í mat hér svo maður þarf að vera ansi klókur til að láta jöfn­una ganga svo útgjöldin rjúki upp úr ölli valdi. Miðað við síð­asta visa­reikn­ing­inn minn sem ein­göngu er not­aður til heim­il­is­rekst­urs, þá er þetta um 180.000 – 220.000 á mán­uði. Við verslum yfir­leitt í Krónunni en ég var að prófa í gær að frá heim­sent frá Heimkaup“.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

„Á mínu heim­ili held ég að  magninn­kaup séu hag­stæð sem og gott geymslu­rými. Á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er orðið tíma­bært að hætta sífelldu inn­liti í búð­ina og skipu­leggja inn­kaupin betur. Ég ætla að athuga hvort Heimkaup sé eitt­hvað sem hentar mér og þannig spara þannig að mestu ferðir í búð­ina og kostnað við bíl­ferð­ina. Það er líka ágætt að gera þetta á net­inu og hafa þannig sæmi­lega heild­ar­sýn yfir það sem maður er að versla, auk þess lít ég svo­lítið til­þess að slíkir versl­un­ar­hættir séu atvinnu­skap­andi. Mér finnst ég ekki vera að skapa atvinnu með notkun sjálfs­af­greiðslu­kassa í Krónunni“.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er ?

„Ég legg fyrir á vörslu­safn hjá bank­anum“.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Ég hef haldið heim­ili síðan ég var 16 ára eða í næstum því 30 ár og ég hef aldrei skilið álagn­ing­ar­kerfið hérna á Íslandi. Mig langar til þess,  af því ég hef tæki­færi til þess, að nefna það að ég keyri um á bif­hjóli, tryggi það fullu verði og af mér er ætl­ast til í lögum að ég noti hjálm sem dæmi. Samt er hjálm­ur­inn toll­aður í sama flokki og galla­buxur í tísku­vöru­verslun! Allur hlífð­ar­fatn­aður sem ég nota er toll­aður sem tísku­vara! Þetta er auð­vitað tómt rugl.

En ég geri oft verð­sam­an­burð, til dæmis ef ég þarf að kaupa mér gler­augu eða slíkt en oft reikn­ast mér til að það sé hag­stæð­ast fyrir mig að versla í minni heima­byggð og ég reyni að sækja mest alla þjón­ustu innan míns bæj­ar­fé­lags. Það kostar að hreyfa bíl­inn og stundum hrein­lega nenni ég ekki að setja hann í gang vegna vöru eða þjón­ustu sem er í boði hér í nágrenn­inu, ef ég get notað tvo jafn­fljóta og hreyft hund­inn í leið­inni“.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

 „Engin lán og það verða engin lán. Ég hugsa um lán með hrolli og þakka fyrir það að vera búin að losa mig við öll slík af bak­inu“.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

„ Umhverf­is­vernd, nú settir þú tíkall í trúð­inn. Íslend­ingar yfir höfuð eru ótrú­lega miklir sóðar. Ég er ekki á þeim stað að ég sé til í að fara að telja kolefn­is­spor eftir mig eða fjöl­skyld­una en rusl fer í rusl, hunda­skítur fer í poka og næstu tunnu. Þegar maður er eins mikið í göngut­úrum og utan­vega­hlaupum og ég, þá fer ekk­ert jafn mikið í taug­arnar á manni eins og sígar­ettu­stubbar, nikótín­púðar, rusl, dósir og annað drasl eftir fólk út um allt.

Sem flutn­inga­bíl­stjóri sá maður ólík­leg­asta rusl liggja eins og hrá­viði út um allan þjóð­veg af því að fólk skrúfar niður bíl­rúð­una og losar sig við það sem því hentar ekki að hafa í bílnum. Ég veit ekki hvar við sem sam­fé­lag erum að klikka en það er ein­hvers staðar. Svifryks­mengun er eitt dæmið. Vega­gerðin og sveit­ar­fé­lögin  mættu hysja upp um sig, vanda mal­bikun betur, þrífa og sópa götur oftar, en reyndin er sú að í stað þess er bent á nagla­dekk og hraða sem skað­vald í meng­un­ar­jöfn­unni. Við eigum alltaf öll, hönd í hönd, að ganga vel um umhverfið okkar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina