Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón Bjarki uppfyllti ósk afa síns: „Ekkert vit í að endurtaka leikinn“

Jón Bjarki uppfyllti ósk afa síns: „Ekkert vit í að endurtaka leikinn“

„Það var eitt­hvað gríð­ar­legt mik­il­vægi falið í því að reyna að fanga, þó ekki væri nema brota­brot af ver­öld þeirra, áður en það yrði um seinan,“ segir Jón Bjarki Magn­ús­son, sem dag nokkurn fékk þá hug­mynd um að fylgja afa sínum og ömmu og skrá­setja til­veru þeirra með mynd­brotum. Hann fann sig knú­inn til að útbúa verk­efni sem myndi festa á mynd þau augna­blik sem aldrei yrðu end­ur­tekin. Hægt og rólega fór myndefnið að safn­ast saman og útkoman varð að Hálfum Álfi, heim­ild­ar­mynd sem tekin verður til sýn­inga í vik­unni.

Í sam­tali við Mannlíf segir Jón Bjarki það hafa tekið strembið ferli að útbúa svona mynd, svo gott sem án fjár­magns, og hafi einnig verið gríð­ar­leg áskorun að finna jafn­vægi milli hlut­verka kvik­mynda­gerð­ar­manns og aðstand­anda. Að sögn kvik­mynda­gerð­ar­manns­ins voru jarð­ar­förin lengi afa hans mikið hjart­ans mál og krafð­ist hann þess af Jóni Bjarka að hún yrði fest á upp­töku.

„Afi var 98 ára og amma 95 þegar tökur hófust og verk­efnið allt því eins konar kapp­hlaup við tím­ann.“ segir hann. Þá var dauð­inn þarna á sveimi á meðan ferl­inu stóð og bauð það upp á mikla óvissu að stunda heim­ilda­mynda­gerð í nálægð hans.

„Afi veikt­ist til dæmis heift­ar­lega á meðan á ferl­inu stóð og var lagður inn á spít­ala nær dauða en lífi. Ég var staddur í Vín­ar­borg þegar þetta gerð­ist og var kom­inn til Íslands nokkrum dögum síðar. Það reyndi oft veru­lega á að gera þessa mynd og á svona stundum þurfti ég að vega og meta í hvaða hlut­verki ég væri, segir Jón Bjarki og bætir við:

„Í þessu til­viki lagði ég mynda­vél­ina á hill­una til þess að vera til staðar fyrir hann.“

Þá rifjar Jón Bjarki upp annað atvik úr tökum þegar amma hans brast í skyndi­lega söng en þá var hún að þylja Svarkinn eftir Grím Thomsen. „Þarna var þessi gamla kona, sem hafði framan af verið svo­lítið feimin fyrir framan mynda­vél­ina, skyndi­lega farin að syngja af lífs og sál­ar­kröftum fyrir framan mig, eitt­hvað sem ég hafði aldrei áður séð hana gera,“ segir Jón Bjarki.

„Ég þurfti að hafa mig allan við til að ná þessu augna­bliki á filmu og var hreint ekki viss um hvernig hefði til tek­ist. Ég bað hana því um að gera þetta aftur svo ég gæti und­ir­búið skotið betur en þá fór hún að hlæja, virt­ist hissa á því að vera farin að syngja með þessum hætti fyrir barna­barnið. Henni þótti ekk­ert vit í að end­ur­taka leik­inn. Mómentið var farið og þessi taka yrði því að duga.“

Dyr að nýjum víddum

Jón Bjarki útskrif­að­ist með BA í rit­list úr Háskóla Íslands árið 2012 og hefur starfað í blaða­mennsku í yfir ára­tug. Síðustu ár hefur heim­ilda­mynda­gerðin hins vegar átt hug hans allan og von­ast hann til þess geta lagt áfram rækt við hana. Vegurinn að þeirri braut fór þó smám saman að mynd­ast um haustið 2016 þegar hann hóf meist­ara­nám í sjón­rænni mann­fræði við Freie Uni­versitat í Berlín.

„Ég hafði lengi haft áhuga á heim­ilda­mynda­gerð en vissi ekki hvert fyrsta skrefið í þá átt ætti að vera, auk þess sem mér þótti for­vitni­legt að kynn­ast aðferðum mann­fræð­innar betur. Námið hent­aði mér vel og opn­aði dyr að víddum sem ég hafði lengi vitað að væru þarna en þekkti vart leið­irnar um. Það má segja að maður hafi þarna fengið í hend­urnar ákveð­inn verk­færa­kassa sem reynslan kennir manni síðan að nota,“ segir Jón Bjarki.

Þessi áhersla mann­fræð­innar á að dvelja lengi með þeim sem fjallað er um, að kynn­ast lífi þeirra innan frá ef svo má segja, og að leyfa efn­inu að spretta frá þeim er eitt­hvað sem mér finnst skipta sífellt meira máli þegar kemur að þess konar heim­ilda­mynda­gerð sem ég hef mestan áhuga á. Maður reynir sitt besta til þess að þýða það sem ann­ars er falið yfir á form sem aðrir geta skilið.“

Þegar allt breyttist

Hálfan Álf fram­leiðir Jón Bjarki ásamt unn­ustu sinni Hlín Ólafs­dóttur, sem semur einnig tón­list­ina fyrir verkið. Myndin var valin inn á kvik­mynda­há­tíð­ina Skjald­borg en hátíð­inni var frestað fram á sumar vegna kór­ónu­veirunnar.

„Í kjöl­far and­láts afa beið amma auð­vitað spennt eftir því að geta von­andi fylgt mynd­inni eftir í bíó, mögu­lega á Skjald­borg­ar­há­tíð­ina þá um vorið, svo fram­ar­lega sem við kæm­umst inn. Hún var orð­inn veru­lega spennt fyrir þess­ari hug­mynd og ætl­aði sér sko aldeilis vestur á Pat­reks­fjörð ef þetta gengi eftir, þrátt fyrir að vera þá orðin 99 ára gömul.

Eftir að hátíð­inni var frestað fram á sumar og gamla konan féll frá í byrjun maí breytt­ist auð­vitað allt, svo hún náði því miður ekki heldur að sjá mynd­ina á hvíta tjald­inu,“ segir Jón Bjarki.

Féllu frá með skömmu bili

Afi og amma Jóns Bjarka, þau Trausti Breið­fjörð Magn­ús­son og Hulda Jóns­dóttir, féllu frá með skömmu bili, hann í mars 2019 og hún í maí 2020. Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn segir Hálfan Álf fjalla að hluta til um það að fylgja afa hans eftir ofan í gröf­ina, en hvor­ugt þeirra náði að sjá loka­út­komu mynd­ar­innar. Þó hafi þau fengið að sjá svo­kallað gróf­klipp og lýsir leik­stjór­inn þeirri upp­lifun sem afar mik­il­vægri og súr­sætri.

„Afi var fluttur inn á Hrafn­istu þegar við náuðum loks að sýna þeim mynd­ina, en við fengum að setja upp sér­staka sýn­ingu fyrir íbúa heim­il­is­ins sem og ömmu gömlu, í sam­eig­in­legu stofu­rými á deild­inni hans afa. Þetta var fal­leg stund þar sem við jöpluðum á poppi og sötr­uðum á lím­on­aði á meðan ræman leið í gegn við góðar við­tökur við­staddra. Þau gömlu voru bæði hæstá­nægð með afrakst­ur­inn þó þau hafi kvartað svo­lítið yfir því hve illa þau sáu á sjón­varpið og hve lítið þau heyrðu á stundum,“ segir Jón Bjarki.

„Það er vissu­lega sárt að þau hafi ekki fengið tæki­færi til þess að sjá sig á hvíta tjald­inu, enda voru þau að ein­hverju leyti fædd í þetta hlut­verk. Að sama skapi er veru­lega ánægju­legt að mér hafi þó tek­ist að draga ríku­lega per­sónu­leika þeirra fram með þessum hætti áður en það var um seinan. Þó að þau eigi þess ekki lengur kost að vera á meðal áhorf­end­anna í bíósalnum þá eru þau samt sem áður ein­hvern veg­inn ennþá yfir og allt um kring þegar kemur að verk­inu sjálf. Ég vona og trúi að þau séu stolt af þeirri mynd sem okkur tókst að skapa í sam­ein­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina