Hilda Jana Gísladóttir gat ekki orða bundist að loknum bæjarstjórnarfundi í gær, en hún situr í bæjarstjórn Akureyrar fyrir hönd Samfylkingarinnar. Hilda Jana tjáði sig í færslu á Facebook um skipulagsmál sem samþykkt var á fundinum með sex atkvæðum gegn fimm.
„Til þess að gera mjög langa sögu stutta þá má segja að meirihluti bæjarstjórnar hafi samþykkt að úthluta einu verktakafyrirtæki fjölbýlishúsalóð án auglýsingar,“ skrifar Hilda Jana í færslu sinni.
En á fundinum var byggingarverktakanum SS Byggi veitt heimild til að vinna að gerð breytinga á deiliskipulagi á lóð við Tónatröð á Akureyri. Fyrirtækið sótti um fimm lóðir við götuna og kynnti í kjölfarið hugmyndir sínar um fimm há fjölbýlishús.
Segir í fundargerð skipulagsráðs að umsækjanda yrði veitt vilyrði fyrir lóðunum „en endanleg úthlutun færi þó ekki fram fyrr en að loknum skipulagsbreytingum, náist samkomulag um breytingu á skipulagi svæðisins að loknu skipulagsferli.“
Hilda Jana skrifar: „Umræddar lóðir hafa hins vegar aldrei verið auglýstar með þeim skilmálum að unnt sé að breyta þar skipulagi og enn er í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir einbýlishúsalóðum á svæðinu.“
Hún segir jafnframt frá því að núverandi bæjarstjórn hafi hafnað öðru fyrirtæki sem sóttist eftir lóðinni og vildi gera á henni mun umfangsminni breytingar á skipulagi en SS Byggir.
Var því hafnað á þeim forsendum að bygging fjölbýlishúsa á umræddum lóðum samræmdist ekki útliti og yfirbragði nærliggjandi byggðar.
Hilda Jana segir það að tryggja jafnræði ætti að vera algjört grundvallaratriði í góðri stjórnsýslu hins opinbera, en í þessu tilfelli hafi meirihluti bæjarstjórnar nú kosið að fylgja ekki þeirri meginreglu.
„Ég er satt best að segja döpur og slegin yfir því að þetta hafi orðið niðurstaðan. Fyrirfram hefði ég ekki trúað því að meirihluti bæjarstjórnar væri sáttur við að starfa með þessum ósanngjarna hætti,“ skrifar Hilda Jana að lokum.































Athugasemdir