Tvær konur hafa leitað til lögreglu vegna meints ofbeldis af hálfu Sölva Tryggvasonar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögmaðurinn Kristrún Elsa Harðardóttir sendi að beiðni kvennana. Kristrún segir umbjóðendur sína kjósa að koma ekki fram undir nafni.
Í yfirlýsingunni kemur fram að önnur konan hefur kært Sölva fyrir líkamsárás. Hún segir atvikið hafa átt sér stað á heimili hennar þann 14. mars síðastliðinn. Lögregla kom á vettvang. Farið var með Sölva á lögreglustöð og skýrsla tekin af honum þar. Síðar um kvöldið var tekin skýrsla af umbjóðanda mínum á heimili hennar.“
Sjá einnig: Catalina hótar Sölva – Kallar hann lygara og segist ætla birta viðkvæm gögn: „Ég mun dreifa öllu“
Þá segir í yfirlýsingu Kristrúnar að önnur kona til sín í dag í kjölfar fréttaumfjöllunnar síðustu daga.
„Hún kveðst hafa orðið fyrir kynferðisbroti af hálfu Sölva á heimili hans hinn 22. júní 2020 og kveðst loks nú hafa hugrekki til að kæra brotið til lögreglu. Beiðni um skýrslutöku til að leggja fram kæru hefur þegar verið send lögreglu,“ segir í yfirlýsingunni og kemur þar fram að konan hafi kynnst Sölva á stefnumótaforritinu Tinder og jafnframt að hún væri með reikning á Onlyfans.
„Hann hafi þá boðist til að vera með henni í myndbandi án þess að sæist í andlit hans en hún hafi þá sagt honum að hún ynni eingöngu með einstaklingum sem hún þekkir og treystir. Í framhaldi kveður hún þau hafa ákveðið að hittast á heimili Sölva til að kynnast og spjalla. Sú heimsókn endaði að hennar sögn með því að hann braut á henni kynferðislega,“ segir í yfirlýsingunni.
Sjá einnig: Yfirlýsing kvennanna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“































Athugasemdir