Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Við vorum 12 ára“: Segir dóttir Guðbjörns ekki eina fórnarlambið: „Byrlarinn í MH“ sonur elítunnar

„Við vorum 12 ára“: Segir dóttir Guðbjörns ekki eina fórnarlambið: „Byrlarinn í MH“ sonur elítunnar

„Ég titra við að skrifa þetta og finnst eins og hend­urnar virki ekki. Las grein í dag sem sagði frá því að 16 ára stelpa hefði tekið sitt eigið líf eftir að hafa verið nauðgað og kært og hann sýkn­aður. Þetta eyði­lagði lífið hennar. Þetta er ekki fyrsta kæran á hann.“

Þetta skrifar Júlía Hrefna Rokk Bjarna­dóttir leik­stjóri á Twitter en hún opnar sig þar um kyn­ferð­is­brot, líkt og ótal aðrar konur hafa gert und­an­farnar daga eftir að önnur Metoo-bylgja braust út. Byrjun bylgj­unnar má rekja til frétta Mannlífs.

Færsla Guð­björns Guð­björns­sonar á föstu­dag­inn vakti mikla athygli en þar sagði hann sögu dóttur sinnar, Sól­veigar Elísa­betar. Hún svipti sig lífi árið 2019 en Guðbjörn segir hana aldrei hafa jafnað sig á nauðgun sem hún varð fyrir á ung­lings­aldri. Sú nauðgun var kærð en Hæsti­réttur sýkn­aði mann­inn. Guðbjörn segir mann­inn koma úr elít­unni í Reykja­vík. Hann lýsti máls­at­vikum svo á föstu­dag­inn:

„Nauð­gar­inn var huggu­legur ungur strákur sem spil­aði meira að segja fót­bolta og kom úr „high society“ í Reykja­vík. Faðirinn er „aka­demíker“ og móð­irin var áber­andi póli­tíkus og lista­spíra í borg­inni úr aðal „hipp & kúl“ stjórna­mála­flokknum á þeim tíma. Á yfir­borð­inu var þetta allt slétt og fellt. En allt kom fyrir ekki og Hér­aðs­dómur Reykja­víkur trúði ekki dóttur minni heldur nauð­gar­anum.“

„Þessi sami strákur nauðg­aði mér þegar við vorum 12 ára. Er í fyrsta skipti að segja það upp­hátt í dag. Sann­færði mig um að ég hafi leyft þessu að ger­ast. Ég sagði ótelj­andi sinnum nei,“ skrifar Júlía.

„Reyndi að hlægja og breyta þessu í djók til að kom­ast í burtu þegar hann hélt mér upp að vegg með putt­ana inní mér. Þetta end­ur­tók sig marg oft í þessum göngutúr. Ein­hvernti­mann hætti ég að segja nei og end­aði hálf ber á frosnu grasi og beið eftir að hann kláraði.“

Hún segir mann­inn aldrei hafa fengið dóm. „Hann er búin að vera nauðga stelpum alla­vega frá því hann var 12 ára. Hefur aldrei verið dæmdur. Versta er að ég á svo margar svona svip­aðar sögur. Svo margar. Og svo margar!!!!! konur sem ég þekki. Hversu oft þurfa konur að opna á sömu sárin aftur og aftur og aftur þangað til eitt­hvað breyt­ist hvað ætlum við að gera í þessu?“

Svo virð­ist sem mað­ur­inn hafi verið alræmdur í mennta­skóla. Kristlín Dís Ingi­lín­ar­dóttir, blaða­maður á Frétta­blað­inu, segir hann hafa átt við­ur­nefni í MH: Byrl­ar­inn. Kristlín skrifar: „Ger­and­inn í þess­ari sögu var þekktur sem byrl­ar­inn í MH þegar ég var þar. Henni var ekki trúað. Hann var sýkn­aður. Hún tók eigið líf. Hann hefur ekki þurft að svara fyrir neitt.“

Tómas Gauti Jóhanns­son, hand­rits­höf­undur og leik­list­ar­nemi, var í þessum árgangi í MH. Hann seg­ist tek­ist á við mann­inn í útskrift­ar­ferð árgangs­ins. „Ég vildi hann ekki með í útskrift­ar­ferð okkar. Called him out eitt kvöldið og vinir hans urðu reiðir og ósáttir að ég skyldi segja svona hluti. Varaði við honum í ferð­inni en margir tóku upp hansk­ann fyrir honum og leyfðu honum að njóta „vafans“,“ skrifar Tómas í athuga­semd við færslu Krist­línar.

Hann bætir svo við: „Mikið verið rætt um skrímsla­væð­ingu und­an­farið og hvað hún gerir ekk­ert gott.En ég virki­lega hata þennan mann og jú fyrir mér er hann skrímsli. Sagði við mig í lok ferðar að ég hefði eyði­leggt fyrir sér ferð­ina og ég væri það versta fyrir hann í þess­ari ferð. Hvað sem það þýddi.“

Rang­hermt var í fyrri útgáfu að Júlía Hrefna hefði kært mein­tan ger­anda.

Greinin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina