Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heiður horfir upp á systur sína visna upp og fær enga hjálp: „Við erum uppgefin, reið og sorgmædd“

Heiður horfir upp á systur sína visna upp og fær enga hjálp: „Við erum uppgefin, reið og sorgmædd“

Heiður Ósk Þor­geirs­dóttir er bæði reið og sár yfir heil­brigð­is­kerf­inu íslenska sem trekk í trekk hefur brugð­ist systur sinni. Nú sé svo komið að systirin er horfin í heim veik­inda, van­líð­unar og verkja án þess að læknar geri nokkuð til hjálpar að mati Heiðar

Heiður rit­aði færslu á Facebook um veik­indi systur sinnar, sem glímir við Endó­metríósu, legs­límuflakk, og von­brigðin með heil­brigð­is­kerfið sem hafi gjör­sam­lega brugð­ist. Henni liggur mikið á hjarta og kemur færsla hennar hér í heild sinni:

„Sjáið þið þessa konu?

Tæp tvö ár eru á milli mynd­anna og þessi lífs­glaða, ham­ingju­sama og dug­lega kona sem sést hér á vinstri mynd­inni er horfin inn í heim veik­inda, van­líð­unar og verkja. Grá í framan, lífs­laus, með stöðuga verki og áhyggjur af sér og sínum á hún erfitt með vinnu, heim­il­is­störf og áhuga­mál. Hún er hætt að keyra því mátt­leysið er orðið of mikið og hætt að hafa sig til því hún hefur ekki orku til þess. Í gær fékk ég enn eitt sím­talið frá henni, þar sem við grétum saman, meðan hún og mágur minn lýstu fram­kom­unni og við­horf­inu sem þau fá frá heil­brigð­is­stofn­un­inni í þeirra bæ. Komin í tvær peysur og undir dúnsæng hélt hún varla aug­unum opnum því lík­am­inn er hægt og rólega að gef­ast upp.

Þessi kona er ynd­is­lega systir mín, stóra fyr­ir­myndin og klett­ur­inn minn. Alltaf til staðar fyrir allt og alla, til­búin til að aðstoða og gleðja. Hún á ekk­ert meira eftir. Endó­metríósan er að ganga að henni dauðri. Og hvað gera lækn­arnir? Lítið sem ekk­ert! Hún upp­lifir sig móð­ur­sjúka, stöðugt að biðj­ast afsök­unar á því að erf­iða okkur hinum lífið og flakkar á milli þess að sjá engan til­gang með líf­inu lengur og því að hún geti bara harkað af sér og hætt þessu væli.

Í jan­úar átti hún að fara í aðgerð vegna mik­illa sam­grón­inga og fleira sem var svo frestað vegna þess að önnur mál voru í for­gangi. Þá var gripið á það ráð að senda hana í verkja­still­ingu fram að aðgerð sem taka átti þrjá mán­uði. Gott og blessað. Örlítil reiði greip okkur vegna þess­arar frest­unar en við horfðum þó bjart­sýnum augum á þessa verkja­still­ingu með von í hjarta um að hún myndi gera gagn og auð­velda henni örlítið lífið. Henni er komið inn í verkjateymi á vegum kvenna­deild­ar­innar til að verkja­stilla hana fram að aðgerð. Eitthvað sem átti að auð­velda henni aðgengi að verkja­lyfjum og veita henni betra utan­um­hald. Gekk það eftir? Svo aldeilis ekki. Allan tím­ann meðan á verkja­still­ing­unni stóð gekk henni alltaf illa að ná á lækn­inum til að fá lyfin sem áttu að hjálpa henni og verkja­stilla hana. Ekki nóg með það, þá fær hún síðan sím­tal, nokkrum dögum fyrir aðgerða­dag núna í apríl, frá lækn­inum sem stjórn­aði verkjateym­inu þar sem hann til­kynnir henni að hann ætli að útskrifa hana úr verkja­með­ferð­inni (hans orð) á þeim for­sendum að hún hafi ekki borið neinn árangur. Algjör­lega orð­laus, slegin og dofin stóð hún eftir í lausu lofti með spurn­ingar eins og: Hvað á ég að gera? Hvert á ég að leita til að halda verkja­still­ingu áfram? Hvað nú? Hún hefur sam­band við heim­il­is­lækni og kvenna­deild til að leita svara en fær lítið um svör því allir eru jafn undr­andi og hún. Hún var ekki í verkja­með­ferð heldur verkja­still­ingu fram að aðgerð en er svo bara hent út.

Í apríl, þremur mán­uðum eftir að aðgerð­inni var frestað kom svo loks að því. Eða hvað? Aðgerð­inni aftur frestað um mánuð þar sem önnur mál eru í for­gangi. Nú eru 12 dagar í áætl­aðan aðgerð­ar­dag og við horfum á frek­ari frestun. Ekkert hefur verið haft sam­band við hana og eng­inn læknir hringir til baka. Enginn heldur utan hennar mál, boðar hana og mág minn á fund til að leggja allt á borðið fyrir þau eða styðja við bakið á þeim. Það horfir eng­inn á áhrifin sem sjúk­dóm­ur­inn er að hafa á hana og fjöl­skyld­una hennar. Á meðan hún bíður eftir aðgerð, versna verkirnir og guð einn veit hvaða áhrif þessi bið er að hafa á líf­færin hennar. Henni er sagt að taka lyf við verkj­unum en svo þegar kemur að því að nálg­ast lyfin lendir hún á vegg og fær ræðu um það að hún megi ekki taka svona mikil lyf. Síðast þegar hún var lögð inn þurfti hún sjálf að kaupa lyfið sem hana vant­aði að beiðni lækn­is­ins. Hversu eðli­legt er það?

Hún hefur farið ótelj­andi ferðir á sjúkra­húsið gjör­sam­lega búin á sál og lík­ama því verkirnir eru orðnir of miklir. En fær hún þá aðstoð sem hún þarf? Nei! Alltaf send heim og sagt að koma bara aftur ef þetta lag­ast ekki. Hafið þið heyrt þessa setn­ingu? Í gær­morgun fór hún enn eina ferð­ina á spít­al­ann því nýir og meiri verkir sem hún hefur aldrei upp­lifað áður herj­uðu á hana eins og þeim væri launað fyrir. Orðin grá, köld og hálf með­vit­und­ar­laus horfði mágur minn á hana og hélt í alvör­unni að hann væri að fara að missa hana. Á sjúkra­hús­inu fékk hún engin svör við þessum nýju verkjum og engin blóðprufa var tekin. Lækn­ir­inn sem tók á móti henni sendi hana heim eftir stutt spjall og skildi hana eftir grát­andi frammi á gangi án þess að svo mikið sem spyrja hana hvort hún hefði ein­hvern til að sækja sig.

Í jan­úar og aftur í apríl var hún sprautuð með þriggja mán­aða skammti af lyfi sem átti að bæla niður endó­metríós­una. Í ljós kom svo í gær að þetta lyf er notað við fjórða stigs blöðru­háls­kirtil­skrabba­meini í körlum en sagði henni það ein­hver? Nei. Hún fékk að heyra það frá konu sem þurfti að leita hjálpar alla leið til útlanda því ekki var hlustað á hana hér á Íslandi. Auka­verk­an­irnar af lyf­inu eru það miklar að flestar konur sem eru á því verða veik­ari en þær hafa nokkurn tím­ann verið. Eftir sam­tal við þessa konu og mann­inn hennar í dag sjáum við svo margt að heil­brigð­is­kerf­inu hér á landi þegar kemur að konum með endó­metríósu, því þrátt fyrir enda­lausar heim­sóknir á sjúkra­húsið og lýs­ingar á því hvað er að ger­ast hjá henni er ekk­ert gert.

Hvað þarf að ger­ast til þess að hlustað verði á hana? Hvað þarf að ger­ast til þess að hún fái við­eig­andi aðstoð? Hvað þarf að ger­ast til þess að hún fái aftur eðli­legt líf og upp­lifi sig ekki stöðugt sem ein­hverja byrði á fjöl­skyld­una? Við erum upp­gefin, reið og sorg­mædd fyrir hennar hönd og sjáum þessa ynd­is­legu systur, móðir, unn­ustu og frænku visna hægt og rólega upp á meðan heil­brigð­is­kerfið bregst henni trekk í trekk!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við