Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Brúðkaupsferð Spánarhjóna breyttist í martröð: „Grínlaust, við förum aldrei aftur til Íslands“

Brúðkaupsferð Spánarhjóna breyttist í martröð: „Grínlaust, við förum aldrei aftur til Íslands“

Spænsk hjón sem hugð­ust fagna 25 ára brúð­kaups­af­mæli hér á landi segja ferða­lagið hafa breyst í martröð þegar þau voru stöðvuð við landamæra­eft­ir­lit í Leifs­stöð og meinað að koma inn í landið vegna nýrrar sótt­varn­ar­reglu­gerðar sem tók gildi þann 7.maí síð­ast­lið­inn. Hjónin höfðu gert ráð fyrir að dvelja í þrjár vikur hér á landi en voru þess í stað flutt í lög­reglu­fylgd á sótt­varn­ar­hótel og gert að yfir­gefa landið sól­ar­hring síðar.

Í sam­tali við spænska frétta­mið­il­inn La Razon rekja hjónin Conchi og Jordi raunir sínar en það var lang­þráður draumur beggja að fagna brúð­kaups­af­mæl­inu á Íslandi.

Segja aðra farþega hafa farið í gegn

Þau segj­ast hafa farið eftir fyr­ir­mælum íslenskra sótt­varn­ar­yf­ir­valda í einu og öllu við und­ir­bún­ing ferð­ar­innar. Þau fóru í skimun, höfðu tekið á leigu íbúð sem upp­fyllt skil­yrði varð­andi sótt­kví og voru búin að fá strik­a­merki í sím­ann til að sýna á landa­mær­unum.

Þegar hjónin lentu í Keflavík þann 8.maí. síð­ast­lið­inn tók við COVID-19 sýna­taka (PCR-próf). Conchi segir þau hafa verið full eft­ir­vænt­ingar að lok­inni sýna­tök­unni en á næstu eft­ir­lits­stöð kárn­aði gam­anið þegar lög­reglu­menn ávörp­uðu þau og tjáðu þeim að þau mættu ekki koma inn í landið, sam­kvæmt nýrri reglu­gerð taki gildi á landa­mærum Íslands dag­inn áður, þann 7. maí s.l.

Með umræddri reglu­gerð­ar­breyt­ingu hefur skil­grein­ing háá­hættu­svæða áhrif á hverjir þurfa að sæta sótt­kví í sótt­varna­húsi eða ekki við kom­una til Íslands. Farþegar sem koma frá landi eða svæði þar sem nýgengi smita er 700 eða meira þurfa skil­yrð­is­laust að fara í sótt­kví í sótt­varna­húsi.

Conchi segir það furðu­legt að þau hjónin hafi verið einu far­þeg­arnir úr þessi til­tekna flugi sem voru stöðvuð. „Við vorum stoppuð en á sama tíma horfðum við á rest­ina af far­þeg­unum fara í gegnum flug­völl­inn án nokk­urra vand­kvæða og halda síðan upp í rútu sem flutti þá niður í mið­borg­ina.“

Hún segir þau hjónin hafa gert ráð fyrir að eyða fyrstu fimm dög­unum á Íslandi í sótt­kví, eins lög gera ráð fyrir, og þau hafi verið fylli­lega und­ir­búin fyrir það. „Við ætl­uðum að sinna fjar­vinnu og fram­lengja dvöl­ina um leið.“ Þá undr­ast Jordi að þeim hafi verið leyft að ferð­ast til Íslands þrátt fyrir þessar nýju reglur. „Okkur var ekk­ert sagt áður en við stigum upp í flug­vél­ina, eða dag­ana á undan.“

Upplifðu sig eins og „glæpamenn“

Hjónin lýsa því hvernig þau voru þvínæst flutt í lög­reglu­fylgd á sótt­varn­ar­hótel.

„Við vorum þegar búin að leigja íbúð, en það var ekk­ert hlustað á það,“ segir Conchi. Hún segir lög­reglu­menn hafa fylgt þeim alla leið að hót­el­her­berg­inu, þvínæst lagt hald á öll ferða­gögn og ekki afhent þau aftur fyrr en sól­ar­hring síðar, með því skil­yrði að þau hjónin færu heim til Spánar dag­inn eftir. Í milli­tíð­inni hafi tveir lög­reglu­menn vaktað her­bergið og segj­ast hjónin hafa upp­lifað sig eins og glæpa­menn. Þau hafi þó ekki þorað annað en að hlýða.

Hjónin segj­ast hafa haft sam­band við spænska kon­súl­inn í von um að bjarga Íslands­ferð­inni. Hann hafi verið boð­inn og búinn til að hjálpa en mætt lít­illi samúð hjá íslenskum yfir­völdum. „Hann reyndi, en það var ekki hlustað á hann,“ segir Conchi.

Hjónin segja drauma­ferð­ina hafa breyst í martröð og vakið hjá sér andúð á Íslandi. „Grín­laust, við förum aldrei aftur til Íslands.“

Texti: Auður Ösp Guð­munds­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina