Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórhildur ólst upp í líkama drengs: „Það var bæði starað og hvíslað“

Þórhildur ólst upp í líkama drengs: „Það var bæði starað og hvíslað“

„Þegar ég var í kringum þrettán ára ald­ur­inn fór ég að taka eftir því að ég var farin stór­auka það að vera í kven­manns­fötum og mála mig. Mér fannst það bara mjög þægi­legt og var svo sem ekk­ert að pæla í hvort ég væri trans eða ekki,“ segir Þór­hildur Sara Svein­björns­dóttir sem bíður eftir að hefja horm­óna­ferli á næstu dögum eða vikum.

„Ég fór síðan að hugsa meira út þetta og í sept­em­ber í fyrra kom ljósa­peru­mó­mentið og ég vissi nákvæm­lega hvað ég vildi og þyrfti að gera. Það var mik­ill léttir“.

Fékk ekki stuðning foreldra

Þór­hildur Sara segir vini sína hafa sýnt sér mik­inn stuðn­ing og vera jákvæða fyrir umbreyt­ing­ar­ferl­inu sem nú er að fara af stað. Fjöl­skyldan var aftur á móti lengur að átta sig og stendur það ferli yfir enn.

„Frænka mín, sem má kannski kalla mjög frædda, skildi þetta reyndar mjög vel en mamma var ekki alveg að taka þessu fyrst verð ég að segja. Síðar fór ég með mömmu og pabba á fundi með tran­steym­inu og þá fengu þau aðeins meiri og betri útskýr­ingar á hvernig þetta virkar allt saman“.

„Það ger­ist síðan síð­asta laug­ar­dag, einmitt á þrí­tugs­af­mæl­inu mínu, að for­eldrar mínir sögð­ust vera reiðu­búin að fara milli­veg­inn“.

Aðspurð um hvað milli­veg­ur­inn feli í sér segir Þór­hildur að í sínu til­felli felist það í nafn­gift­inni.

„Ég mætti máluð í kjól og hælum og það var ekk­ert vanda­mál en þau eru ekki reiðu­búin að kalla mig mig mínu rétta nafni heldur vilja þau nota eitt­hvað áfram það nafn sem mér var gefið sem dreng í æsku. Þau eru ein­fald­lega ekki reiðu­búin að skipta því út strax, þangað til verða kannski notuð gælu­nöfn og annað slíkt. Nafngjöf for­eldra til barns er mjög per­sónu­leg“.

Þór­hildur er áber­andi róleg og yfir­veguð en getur þó ekki leynt spenn­ingi sínum yfir að hefja horm­óna­með­ferð. Hún segir að fljót­lega eftir að hún hefj­ist muni verða breyt­ingar á lík­ama hennar.

„Ég hef heyrt að fitu­jöfn­unin í lík­am­anum breyt­ist, ég fæ senni­lega stærri mjaðmir og stærri brjóst. Húðin verður mýkri og betri og röddin mun eitt­hvað aðeins mýkj­ast meira upp”.

Þór­hildur hefur þegar hafið und­ir­bún­ing að breyttri tón­teg­und með aðstoð tal­meina­fræð­ings.

„Sjálf er ég dimm­rödduð en í tímunum er mér kennt að fara á tón sem mér finnst þægi­legur og vinna mig síðan hægt og rólega upp á næsta stig sem mér finnst þægi­legt”.

Langur biðlisti

Þór­hildur gerir ráð fyrir tveimur til þremur árum á horm­ónum áður en hægt er að skoða í að fara í aðgerð og fara hugs­an­lega á biðlist­ann sem henni skilst að sé afar langur og því ómögu­legt að segja hvenær að henni kemur.

„En ég ætla alla leið! Alveg hund­rað pró­sent! Ég er ógeðs­lega spennt fyrir þessu. Ég er farin að versla meira í kvenn­manns­deildum versl­ana, get leyft mér að finna minn eigin stíl og vera loks­ins ég eins og ég á að vera.“

Þór­hildur heldur úti YouTube rás þar sem hún kennur förðun undir nafn­inu Sapphire Makeup. Hún er sjálf­menntuð en hefur farðað ætt­ingja og vini fyrir við­burði. Hún neitar ekki að sé finn­ist gaman að fara alla leið í mei­köppi.

„Ég auð­vitað var og er dragdrott­ing og þar liggja styrk­leikar mínir en ég get alveg tónað mig og málað fyrir afmæli og brúð­kaup“.

Þór­hildur ólst upp í lík­ama drengs en kveðst ávallt hafa verið kven­leg í allri fram­göngu. Vegna þessa varð hún fyrir heift­ar­legu ein­elti frá þriðja bekk og út alla grunn­skóla­göng­una. Hún var bæði beitt and­legu ofbeldi svo og lík­am­legu. Þór­hildur er yfir­veguð og vill lítið úr því gera en kallar eftir breyt­ingum.

„Enn þann dag eru for­dómar og störur. Ég fór til dæmis dressuð út síð­ast í gær og það var bæði starað og hvíslað þar sem ég gekk um. Þetta er af því að fræðslan er ekki nógu mikil, hún þarf að vera marg­falt meiri“.

Orð geta sært

Per­sónu­lega myndi ég vilja sjá sér­stakan hinsegin áfanga í skólum til að stór­auka þekk­ingu á hvað má segja og hvað er aftur á móti meið­andi að segja. Það skiptir svo miklu máli hvernig hlut­irnir eru sagðir. Orð geta sært. Aðspurð um hvernig hún hafi tekið á ein­elti og störum á lífs­leið­inni seg­ist Þór­hildur ein­fald­lega alltaf reynt að vera jákvæð.

„Það er eins og RuPaul [Innskot blaða­manns: Heims­þekkt banda­rísk dragdrottn­ing] hefur alltaf sagt, þú getur ekki sýnt ást ef þú elskar ekki sjálfa þig.“

Umræðan um sund­stað­ina kemur upp spjall­inu.

„Það er að verða meira um að það sé aðstaða fyrir fólk, sér­klefar og svo­leiðis, en má vera mun meira. Ég bý í Vesturbæ Reykja­víkur og fór tvisvar í Vest­ur­bæj­ar­laug­ina áður en sér­klef­arnir opn­uðu og þurfti því að fara í karla­klef­ann. Þar leið mér ekki vel og alls ekki eins og ég væri partur af heild­inni. Það mega fleiri sund­staðir taka núver­andi aðstöðu í Vest­ur­bæj­ar­laug­inni til fyr­ir­myndar,“ segir Þór­hildur Sara að lokum og ætlar að halda jákvæð inn í sum­arið, á þeirri veg­ferð sem henni var lögð, og hún hefur nú ákveðið af feta alla leið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una