Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hildur Lillendahl gefur lítið fyrir iðrun Kolbeins: Vonast eftir lækningu fyrir ofbeldismenn

Hildur Lillendahl gefur lítið fyrir iðrun Kolbeins: Vonast eftir lækningu fyrir ofbeldismenn

Hildur Lil­lendahl segir skrif Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé þing­manns sem boðar brott­hvarf úr stjórn­málum, vera gegn­sýrð af sömu gas­lýs­ingu og konur hafa verið að lýsa af hans hálfu í lok­uðum hópum.

Kolbeinn skrif­aði færslu á Facebook síðu sinni fyrr í kvöld þar sem hann til­kynnti að hann dragi fram­boð sitt til baka í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík. Brott­hvarf Kolbeins kemur í fram­haldi af upp­nám­inu vegna Sölva Tryggva­sonar sem hófst með frétt Mannlífs um síð­ustu helgi.

Ástæðan mun vera sú að á dög­unum var leitað til fagráðs VG með kvart­anir vegna hegð­unar Kolbeins í garð kvenna. Það hafi opnað augu hans fyrir því að ýmis­legt hafi verið ábóta­vant í hans hegðun. Í kjöl­far umræðu und­an­far­inna daga hafi hann því ákveðið að end­ur­í­huga fram­boð sitt og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að best væri draga það til baka.

„Ég hef mína djöfla að draga og ýmis­legt óupp­gert úr for­tíð­inni. Und­an­farna mán­uði hef ég fundið að eitt­hvað sé að breyt­ast innra með mér, ég er að verða opn­ari og óhrædd­ari, í minni vörn. Þegar mér svo barst til eyrna að hegðun mín hefði valdið konu mik­illi van­líðan varð ég fús til að leita mér aðstoðar vegna þessa. Ég vil ekki koma þannig fram að öðru fólki líði illa. Ég vil ekki sýna af mér hegðun sem konur upp­lifa sem óeðli­lega,“ skrifar Kolbeinn.

Útskýrir hann að hegðun sín orsak­ist af erf­ið­leikum sínum með að mynda náin tengsl og lýsir því hvernig hræðslan við að verða særður taki yfir. Kolbeinn seg­ist oft hafa hrokkið skyndi­lega í bak­lás í sam­böndum sínum, hlaupið í felur og brostið undan. „Hugsa meira um að verja mig mögu­legum skaða en það hvernig ég kem fram. Geri það því illa, kem illa fram“.

Kolbeinn biðst afsök­unar á hegðun sinni og segir best að hann boði brott­för sína úr hinu opin­bera rými í haust.

„Ég er hluti af valda­kerf­inu og ég er hluti af femíniskum flokki sem á alltaf að standa með konum. Ég held að ég geti ekki staðið bæði með mér og kon­unum sem líður illa mín vegna á meðan ég er í fram­boði fyrir VG. Og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, eða nokkur þar innan borðs, á ekki að þurfa að svara fyrir mína hegðun.“

Hildur Lil­lendahl virð­ist vera fjúk­andi reið yfir skrifum Kolbeins og skrifar athuga­semd við færslu hans: „Einhvern veg­inn ert þú orð­inn þol­andi ekki síður en ger­andi. Nákvæm­lega eins og þvælan í Birni Inga í gær­kvöldi,“ skrifar Hildur og er þá vænt­an­lega að vísa til Kvöld­við­tals Mannlífs við Björn Inga Hrafns­son.

Hún seg­ist jafn framt von­ast til þess að hann haldi sig alfarið frá öllu sviðs­ljósi það sem eftir er þolenda hans vegna. „Og ég vona að lækn­is­fræðin finni einn dag­inn leið til að lækna karla af ofbeld­is­hneigð og nars­iss­isma,“ skrifar Hildur að lokum.

Færsla Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé í heild sinni:

Dreg fram­boð mitt til baka

Ég hef í all nokkur ár átt í erf­ið­leikum með að mynda náin tengsl. Kemur þar ýmis­legt til, en í grunn­inn held ég að undir búi varn­ar­mek­an­ismi. Meðvitað og ómeð­vitað er ég svo log­andi hræddur við að verða særður að sú til­finn­ing tekur yfir. Á sama tíma er ég hrif­næmur og þegar við bæt­ist löngun og von til að verða ekki einn, hafa ný sam­bönd við hitt kynið stundum farið af stað eins og flug­eldar. Allt er gott og ég sann­færður um að nú sé ég kom­inn á þann stað að geta myndað ný og var­an­leg tengsl.

En svo hef ég rek­ist á vegg. Það getur verið ein­hver ákveð­inn við­burður sem það kveikir eða bara að eitt­hvað rennur upp innra með mér. Ég dreg tjöldin fyrir, verð kaldur og fjar­lægur og reyni að koma mér í burtu.

Með þessu hef ég komið illa fram við konur. Ég hef gefið til kynna lang­tíma­sam­band, byggt á heitum og djúpum til­finn­ingum. Og þær hafa verið það. En svo hleyp ég í felur, brest undan. Hugsa meira um að verja mig mögu­legum skaða en það hvernig ég kem fram. Geri það því illa, kem illa fram. Læt kon­unum líða eins og þær hafi ekki skipt mig máli, sem er kol­rangt. Að þær geri það ekki lengur, sem er líka kol­rangt. Skríð inn fyrir skel­ina mína og í öryggið og ein­mana­leik­ann þar.

Á sama tíma hef ég oft og tíðum verið svo ein­mana að sú til­finn­ing hefur á stundum hel­tekið mig að ég verði alltaf einn. Minn mesti ótti er að ég sé dæmdur til að vera einn af því að ég geti ekki gefið það af mér sem þarf til að koma í veg fyrir einmitt það.

Ég hef mína djöfla að draga og ýmis­legt óupp­gert úr for­tíð­inni. Und­an­farna mán­uði hef ég fundið að eitt­hvað sé að breyt­ast innra með mér, ég er að verða opn­ari og óhrædd­ari, í minni vörn. Þegar mér svo barst til eyrna að hegðun mín hefði valdið konu mik­illi van­líðan varð ég fús til að leita mér aðstoðar vegna þessa. Ég vil ekki koma þannig fram að öðru fólki líði illa. Ég vil ekki sýna af mér hegðun sem konur upp­lifa sem óeðli­lega.

Nú er mikil og þörf bylgja í gangi þar sem konur segja frá. Það er aðdá­un­ar­vert að þær geri það og ég vona inni­lega að gott komi út úr því. Á dög­unum var leitað til fagráðs VG með kvart­anir vegna hegð­unar minnar. Það ferli sem þá fór af stað opn­aði augu mín fyrir því að ýmis­legt hefur verið ábóta­vant í minni hegðun. Ég ákvað engu að síður að gefa kost á mér í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík. Umræða und­an­far­inna daga hefur hins vegar gert það að verkum að ég hef end­ur­skoðað þá ákvörðun.

Ég er hluti af valda­kerf­inu og ég er hluti af fem­inískum flokki sem á alltaf að standa með konum. Ég held að ég geti ekki staðið bæði með mér og kon­unum sem líður illa mín vegna á meðan ég er í fram­boði fyrir VG. Og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, eða nokkur þar innan borðs, á ekki að þurfa að svara fyrir mína hegðun.

Á henni ber ég einn ábyrgð. Mér þykir leitt hvernig ég hef hagað mér, ég biðst afsök­unar á því. Það góða kom út úr þessu öllu að ég er að leita mér aðstoðar til að ráða betur við sam­skipti og tengsl og mun halda því áfram. Það er hins vegar best fyrir öll að ég boði brott­för mína úr hinu opin­bera rými í haust.

Ég dreg fram­boð mitt í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík til baka og verð því ekki í fram­boði í kosn­ing­unum. Ég þakka öllu því góða fólki sem hvatti mig og studdi og þykir leitt að valda því von­brigðum.

Ég hef ýmis­legt að læra og mun leggja mig fram við að verða að betri manni. Ég vona að þessi ákvörðun mín verði til ein­hvers góðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina