Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Langveikur maður geymdur inn á Vífilsstöðum – Verið hafnað 18 sinnum

Langveikur maður geymdur inn á Vífilsstöðum – Verið hafnað 18 sinnum

Nýrna­veikum manni hefur verið hafnað 18 sinnum um vistun á öldr­un­ar­heim­ilum. Hann hefur nú verið geymdur inni á spít­ala í að verða eitt ár og eigir enga von um að hann öðlist rétt­læti og breyt­ingar á högum sínum. Systir manns­ins er í við­tali við Mannlíf og lýsir því órétt­læti og úrræða­leysi sem bróðir hennar þarf að lifa við.

Tæplega 69 ára karl­maður sem hald­inn er nýrna­bil­un­ar­sjúk­dómi og hefur af hans völdum misst báða fætur og hluta af fingrum, hefur verið geymdur inni á Víf­il­staða­spít­ala í tæpt ár. Honum hefur verið hafnað 18 sinnum um við­un­andi lausnir. Systur manns­ins hafa barist hetju­lega en alltaf gengið á vegg því það eru engin úrræði til handa mann­inum og á meðan grotnar hann niður inni á sjúkra­húsi.

Gleymdur

Maðurinn sem hefur barist lengi við nýrna­bilun missti annan fót­inn fyrir tveimur árum, í júní 2019, vegna lélegs blóð­flæðis niður í fætur. Hann var í sex mán­uði inni á Land­spít­al­anum og síðan á Landa­koti í kjöl­farið. Maðurinn leigði sér íbúð eftir dvöl­ina þar og fékk hefð­bundið inn­lit tvisvar sinnum á dag. Það reynd­ist alls ekki næg umönnun fyrir mann­inn auk þess sem heilsu hans fór að hraka. Nið­ur­staðan varð sú hann fór inn á Land­spít­ala á ný og aftur er honum vart hugað líf. Í þetta sinn þurfti að taka hinn fót­inn af mann­inum og hluta af tveimur fingrum. Þetta var í mars 2020. Maðurinn var svo færður á Víf­il­staða­spít­ala í júlí 2020 og hefur verið fastur þar síðan, í bráðum að verða eitt ár.

Hvar eru úrræðin ? Hann er mann­eskja ekki gam­alt geymslu­dót ! Mynd í einka­eigu

Alls ekki einsdæmi

Í sam­tali við systur manns­ins segir hún að bróðir sinn segi oft, ég hlýt að hafa gleymst hérna, það er alltaf verið að end­ur­nýja á gang­inum en ég fer aldrei. Hún segir að ekk­ert úrræði sé til fyrir bróður hennar og segir að staða hans síns sé langt því frá að vera eins­dæmi. Hún segir bróður sinn vera algjör­lega skýran í hugsun og ekki háaldr­aðan en þrátt fyrir það sé hann geymdur með veiku öldr­uðu fólki. Vist­ar­verur manns­ins eru eins og á á hverju öðru sjúkra­húsi. Hann getur ekki haft hjá sér neina per­sónu­lega muni, þetta er bara spít­ali. Systir manns­ins segir að þetta sé ekki einu sinni spít­ali í til­felli bróður síns heldur geymsla. Engin virkni er á staðnum, fólk er bara að bíða og hann búinn að bíða í bráðum eitt ár og horfir alltaf á eftir fólki fara.

Öldr­un­ar­deildin á Víf­il­stöðum er ekki hugsuð sem lantíma vistun og það er ekk­ert upp á hana að klaga, heldur kerfið.

Synjað í 18. sinn

Systir manns­ins hringir reglu­lega í Heilsu- og færn­is­nefnd til þess að athuga hvar bróðir hennar stendur innan kerf­is­ins. Í síð­asta sím­tali sem hún átti við nefnd­ina var henni tjáð það að búið væri að hafna mann­inum 17 sinnum um vistun á Hrafn­istu­heim­il­unum. Þar fengi hann þá umönnun sem hann þarfn­ast og gæti átt sitt athvarf með sínum per­sónu­legu munum. Það fauk skilj­an­lega í systur manns­ins við þessar fréttir og spurð­ist hún því fyrir á Víf­ils­stöðum hvað væri eig­in­lega í gangi. Í kjöl­farið fær hún sím­tal frá heil­brigð­is­starfs­manni á Land­spít­al­anum, sem biður hana að senda kvörtun inn á Heil­brigð­is­ráðu­neytið sem hún gerir. Svarið sem hún síðan fékk frá Heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu var að hún yrði bara að eiga þetta við Hrafn­istu­heim­ilin eða við­kom­andi stofnun og að þetta væri ekki undir þeirra hatti. Eftir að þessi svör bár­ust tal­aði heil­brigð­is­starfs­mað­ur­inn við mann­inn og var ákveðið í sam­ráði við hann að umsóknin hans yrði víkkuð út, bætt var við tveimur öðrum umsóknum um vistun, að auki við Hrafn­istu. Annar af nýju stöð­unum höfn­uðu mann­inum og var það því 18. höfn­unin sem hann fékk. Ástæðan sem gefin var sú að þar hefðu þau annan svona sjúk­ling og hefðu ekki efni á því að taka annan slíkan inn að auki. Maðurinn er í for­gangi inn á hinn nýja stað­inn, en þrátt fyrir það er alltaf gengið fram hjá honum. Segja má að umræddur heil­brigð­is­starfs­maður sé sá eini sem hafi gefið sér tíma í að skoða mál manns­ins og reynt að rétta honum hjálp­ar­hönd.

Svona aðstæður forð­ast flestir, en mað­ur­inn er gleymdur og gleymdur við svip­aðar aðstæður

Enginn vill hann

Það sem er verið að bera fyrir sig í öllum þessum höfn­unum er aldur manns­ins, hann er ekki nógu gam­all auk fjár­skort­urs, það hefur engin stofnun efni á því að taka mann­inn inn. Hann er á dýrum lyfjum og þarf að fara í nýrna­skilju þrisvar í viku. Sjúkra­trygg­ingar neita síðan ofan í kaupið að taka þátt í að nið­ur­greiða lyfin.

Þann kostnað vill engin taka á sig og því situr mað­ur­inn og koðnar niður í geymslu inni á Víf­il­staða­spít­ala. Maðurinn er of dýr og er ekki hag­stæður vist­maður virð­ist vera. Það sem spilar líka inn í er að senni­lega er líf­tími hans lengri en þetta eina og hálfa ár sem stofn­an­irnar gera ráð fyrir að fólk sem fær inni þar lifi, enda aðstæður hans ekki sam­bæri­legar.

Geta ekki sagt honum sannleikann

Þessi hópur á engan málsvara í þjóð­fé­lag­inu. Maðurinn sem er til umræðu hér á mjög góða að en systur hans hafa barist eins og ljón fyrir rétti hans og til þess að koma honum á við­un­andi stað. Þær ganga ítrekað á veggi og úrræðin eru engin. Systir hans tjáir Mannlífi það að þær hafi ekki einu sinni sagt bróður sínum frá öllum þessum höfn­unum, þær hrein­lega geti það ekki, hafi það ekki í sér. Þær geta alls ekki hugsað sér að segja honum frá stöðu mála og árang­urs­lausum til­raunum til úrbóta, því höfn­un­ar­til­finn­ingin sem þær fá er yfir­þyrm­andi og þær geta ekki ímyndað sér hvernig það yrði fyrir bróður þeirra að heyra það að gengið fram hjá honum æ ofan í æ. Systir manns­ins seg­ist taka ofan fyrir öldr­un­ar­lækn­inum sem opin­ber­aði ástandið inni á téðum stofn­unum á dög­unum.

Hefur verið innlokaður í 9 mánuði

Covid- 19 ástandið hefur verið mjög erfitt fyrir mann­inn en hann má ekki fara neitt út. Einungis fyrir tveimur vikum síðan fékk mað­ur­inn leyfi til þess að fara í bíltúr með systrum sínum, að öðru leiti hafði hann verið inn­an­dyra á Víf­ils­stöðum og mátti ekki fara neitt.  Hvað heim­sóknir varðar má einn aðili koma á milli klukkan 16 og 18 á dag­inn en stoppa í hámark klukku­tíma innan þessa tímara­mma.

Ekki sömu réttindi og þeir sem fæðast fatlaðir

Maðurinn sem er fatl­aður vegna sjúk­dóms síns nýtur ekki sömu rétt­inda og þeir sem fæð­ast fatl­aðir. Það má segja með sanni að margt leggst gegn honum í líf­inu. Maðurinn sótti um styrk fyrir sér­út­búnum bíl því hann getur vel keyrt og það myndi auka frelsi hans til muna.  Trygg­ing­ar­stofn­unin sam­þykkti á end­anum að mað­ur­inn fengi styrk til bif­reiða­kaupa, en þegar kom að Sjúkra­trygg­ingum að sam­þykkja það að hann fengi styrk til þess að breyta bif­reið­inni svo hann gæti ekið henni stóð hníf­ur­inn fastur í kúnni, honum var neitað um það að bif­reiðin yrði sér­út­bú­inn. Ekki er horft í það að mað­ur­inn sé að reyna að kom­ast inn á stofnun vegna sinnar fötl­unar sinnar og veik­inda langt fyrir aldur fram. Eina úrræðið sem er í boði fyrir hann er að leigja íbúð og fá inn­lit tvisvar á dag og það er mað­ur­inn búinn að reyna og það gekk ekki upp. Þó svo að hann sé í þeirri stöðu sem hann er og þurfi að eyða rest­inni af lífi sínu inni á stofn­unum, gæti hann vel keyrt og öðl­ast þannig örlítið frelsi í nöt­ur­legum aðstæðum.

„Þetta er hörku­dug­legur maður segir systir hans og þetta er svo sorg­legt. Við fjöl­skyldan höfum reynt allt en það bara eru allar dyr lok­aðar bróður mínum.“

Verra en fangelsi

Þessi vist sem mann­inum er boðið upp á er verri en afbrota­mönnum er boðin hér á landi. Hann virð­ist engan rétt eiga og allar stofn­anir banda honum frá sér og segja að hans mál heyri ekki undir þær. Ljóst er að það er eitt­hvað veru­lega mikið að í heil­brigð­is­kerf­inu á Íslandi. Þetta getur bara ekki gengið svona lengur og Mannlíf hvetur þá sem hafa svona sögur eða svip­aðar, að hafa sam­band svo fólk í þess­ari stöðu fái rödd og fólk í sam­fé­lag­inu sé upp­lýst um það hvað kerfið er gallað og það að fólk þjá­ist veru­lega vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina