Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fjóla heiðrar móður sína á óvenjulegan hátt: „Ég hef glímt við mikla reiði síðan að hún dó“

Fjóla heiðrar móður sína á óvenjulegan hátt: „Ég hef glímt við mikla reiði síðan að hún dó“

„Mamma var með full­komn­un­ar­áráttu gagn­vart mat og bakstri, sér­stak­lega hvað varð­aði útlit á matnum, hún vildi alltaf hafa allt 100%, var alltaf að fá nýjar hug­myndir af útfærslu og próf­aði sig áfram óhrædd,“ segir Fjóla Sigríður Stef­áns­dóttir sem missti móður sína úr krabba­meini í októ­ber á síð­asta ári. „Mamma kaus að kalla hann krabba frænda og henni fannst hann vera orð­inn mjög kræfur á háa leigu”.

Var stöðugt að undirbúa dauðann

Móðir Fjólu, Aðal­björg Vagns­dóttir, eða Abba eins og hún var alltaf kölluð var fædd í Blöndu­hlíð­inni árið 1951. Hún greind­ist með bráða­hvít­blæði árið 1995, þegar Fjóla var aðeins fimm ára gömul og var henni vart hugað líf. Abba náði að sigr­ast á því en var síðar greind með ristil­krabba­mein og var fyrsta hugsun Fjólu að nú myndi hún missa mömmu sína. „Eftir að hún dó átt­aði ég mig á því að ég var alltaf að und­ir­búa mig undir það að hún myndi deyja, hún fékk sífellt ný mein sem köll­uðu á sífellt fleiri upp­skurði. Mynstrið var upp og niður en mamma náði að sigr­ast á öllu. Ég hef glímt við mikla reiði síðan að hún dó og hef átt erfitt með að sætta mig við að þrátt fyrir alla sigr­ana hennar hafi hún ekki fengið að vera lengur hjá okkur. En ég vil ekki minn­ast mömmu sem sjúk­lings, ég vil minn­ast alls þess góða sem hún gerði“.

Abba ásamt börnum sínum fyrir and­látið.

Fjóla segir mömmu sína hafa leitað í elda­mennsku og bakstur þegar henni leið illa eða hafði fengið slæmar fréttir. „Það var hennar eigin krabba­meins­með­ferð.”

Minn besti vinur

Fjóla Sigríður ólst við mikla ást á mat­ar­gerð. Pabbi hennar var kokkur á sjó, bróðir hennar er lærður kokkur, móðir hennar var sjálf­lærður kokkur og sjálf fór hún í hús­mæðra­skól­ann á Hall­orms­stað.

„Mamma flutti að heiman aðeins 14 ára gömul og fór þá að sjá um heim­ili, elda, þrífa, passa börn og allt sem tengd­ist því að halda heim­ili. Hún lærði mikið af ömmu minni Fjólu, sem einnig var lista­kokkur. For­dóma­laus, þol­in­móð og besti vinur vina sinna eru þau orð sem lýsa mömmu best, hún tók öllum eins og þeir voru og tal­aði hún nán­ast aldrei um sín veik­indi við aðra, en hún gat alltaf hlustað á aðra og veitt ráð. Ég gæti talað enda­laust um mömmu, hún var minn besti vinur“.

Í eigin heimi í eldhúsinu

Fjóla rifjar upp stund­irnar í eld­hús­inu með mömmu sinni en eld­húsið var hennar upp­á­halds staður og leið henni hvergi betur. „Hún var alltaf að sýna mér eitt­hvað og spá og spek­úlera. Stund­irnar sem standa uppúr eru þegar ég var að læra heima en þá sett­ist mamma alltaf með mér við eld­hús­borðið, tók fram alla glimmerpenn­ana sína, stíla­bók og byrj­aði að skrifa upp­skriftir. Það var magnað að fylgj­ast með áhug­anum og ástríð­unni við skrifin, vand­virknin var ein­stök“.

Abba skráði niður upp­skrift­irnar sínar af nákvæmi og vand­virkni.

Fjóla segir mömmu sína hafa talað mikið við sjálfa sig í eld­hús­inu. „Hún var í eigin heimi, að vinna á sínu eigin kaffi­húsi að elda ofaní fullt af fólki. Stærsti draum­ur­inn hennar var að opna sinn eigin stað með sínum eigin réttum og að sjálf­sögðu yrði hann frá­brugð­inn öllum öðrum stöðum.“

Abba elskaði að elda og baka fyrir aðra og byrj­aði á jóla­bakstr­inum í sept­em­ber til að tryggja að hún gæti sent fjölda sorta af smákökum til barna sinna og á vinnu­staði þeirra. „Það voru allir í skýj­unum við að fá send­ing­arnar frá henni, segir Fjóla.

Loforð á dánarbeði

Þær mæðgur hófu umræðu um útgáfu bókar með upp­skriftum Öbbu fyrir mörgum árum. „Hún var alltaf ákveðin í að gera það en með árunum yrðu veik­indin hennar meiri og gafst aldrei tími í að láta þessa bók verða að veru­leika. Ég átti síðan sam­tal við hana stuttu áður en hún dó og spurði ég þá hana hvort ég mætti gefa það út. Hún sagði: „Já Fjóla, viltu gera það fyrir mig? Ég treysti þér 120% fyrir því.“

„Ég hef átt rosa­lega erfitt með það að kveðja hana eða syrgja hana, ég hef ekki viljað sætta mig við það að geta aldrei aftur hitta hana og fengið heita mömmuknúsið.“

Bakstur Öbbu þótti öllum betri.

Í kjöl­farið kann­aði Fjóla á sam­fé­lags­miðlum hvort áhugi væri fyrir per­sónu­legri mat­reiðslu­bók mömmu hennar. „Við­bröðin við þess­ari hug­mynd minni fóru gjör­sam­lega langt út fyrir mínar vænt­ingar og er ég rosa­lega klökk og ómet­an­lega þakk­lát. Fyrir mig er mjög mik­il­vægt að láta það verða að mögu­leika að gera per­sónu­lega, fal­lega og skemmti­lega bók eftir hana. Ég vil kveðja mömmu og fá sátt og ró innra með mér með því að deila fjár­sjóðnum hennar og í leið­inni styrkja gott mál­efni, en mig langar að láta ágóða af sölu bók­ar­innar renna til göngu­deildar krabba­meins­sjúkra á Akureyri en þar var mamma meira og minna sín síð­ustu ár og dásam­aði fólkið þar enda­laust fyrir góða umönnun“.

Uppskriftarbók Öbbu

Fjóla Sigríður er byrjuð á skrifum, komin með umbrot og hönnun og leitar nú til almenn­ings eftir fjár­magni til að segja sögu Öbbu.

„Það voru rosa­lega margir sem sögðu mér að setja inn söfnun inná karolina­fund.com. Ég bar þessa hug­mynd upp við þau, og þau sögu að þetta væri full­komið verk­efni til söfn­unar. Ég yrði rosa­lega þakk­lát fyrir stuðn­ing svo ég geti látið þetta ger­ast. Ég ætla að gefa allt í bók­ina og lofa því að ég mun skila henni vel af mér, ég er viss um að hún mun stytta mörgum stund­irnar um ókomna fram­tíð, segir Fjóla Sigríður sem er ákveðin í að heiðra minn­ingu móður sinnar á þennan und­ur­fal­lega og óvenju­lega hátt.

Fjóla Sigríður hefur sex­tíu daga til að safna fyrir útgáfu Upp­skrifta­bókar Öbbu og geta þeir sem vilja leggja söfn­un­inni lið geta gert það hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una