Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Alexandra vissi mjög ung að hún vildi vera stelpa: „Mér fannst ég vera að ljúga að kærustum mínum“

Alexandra vissi mjög ung að hún vildi vera stelpa: „Mér fannst ég vera að ljúga að kærustum mínum“

Tilkynnt var í dag að Alex­andra Briem muni taka að sér hlut­verk for­seta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur í næstu viku. Alex­andra hefur verið vara­borg­ar­full­trúi Pírata í þrjú ár. Hún segir að með því að fara í þetta starf sé verið að sýna að í Reykja­vík­ur­borg geti trans­kona verið for­seti borg­ar­stjórnar og geti það skipti máli úti í hinum stóra heimi þar sem trans­fólk, og þá sér­stak­lega trans­konur, búa sums staðar við ofbeldi.

Alex­andra Briem hefur síð­ast­liðin þrjú ár verið vara­borg­ar­full­trúi Pírata og var til­kynnt í dag að hún muni taka að sér hlut­verk for­seta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur.

„Það er svo­lítið stórt skref að fara í einu stökki úr því að vera vara­borg­ar­full­trúi yfir í að vera for­seti,“ segir hún. „Ég hef gert mér far um að vera í húsi; fylgj­ast með öllum borg­ar­stjórn­ar­fundum og öllu sem er að ger­ast. Ég hef mætt á alla fundi fyrir utan nokkra sem ég hef misst af en þá var ég veik eða á sjúkra­húsi í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli.“

Alex­andra segir að þegar hún tekur við muni hún reyna að ná meiri böndum á umræðu­hefð­ina ef hún getur og bætir við að það sé auð­vitað alltaf svo­lítið erfitt.

„Kjörnir full­trúar eru nátt­úr­lega kjörnir af almenn­ingi og hafa mikið umboð og frelsi þannig að það er erfitt að hamla því mikið. Eitt sem fer mikið í taug­arnar á mér er þegar kjörnir full­trúar eru að atast í starfs­mönnum eða emb­ætt­is­mönnum sem eru ekki í borg­ar­stjórn og hafa ekki sama aðgang að fjöl­miðlum og geta ekki kannski varið sig. Ég get alveg skilið þessa hörku í póli­tík en mér finnst vera mik­il­vægt að hún bein­ist að mál­efnum, hug­mynda­fræði og kannski flokk­unum en ekki að ákveðnu fólki.

Ég vil líka halda áfram því sem bæði Pawel Bartoszek og Dóra Björt hafa unnið að. Það gerð­ist í tíð Dóru að Píratar sam­þykktu að hafa full­trúa minni­hlut­ans sem vara­for­seta og við form­festum líka vissa upp­skipt­ingu á upp­röðun mála en fyrir þann tíma hafði það verið þannig að málum minni­hluta­flokk­anna var kannski frestað enda­laust og kannski tekin fyrir í lok fundar. Mér finnst vera vald­efl­andi að þeir hafi fastan sess í upp­röð­un­inni en þó ég sé alveg ósam­mála að miklu leyti flokk­unum í minni­hlut­anum þá finnst mér bara vera lýð­ræð­is­legt að við hleypum þeim líka að og við reynum að vinna þetta aðeins saman.“

Aðspurð um drauma tengda starf­inu segir Alex­andra að stóri draumur sinn sé fyrsta og fremst að sjá vissa hluti breyt­ast á Íslandi sem hún telji vera rétt­læt­is­mál.

„Margt af því er bara hægt að breyta á Alþingi eða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Stærsta málið er ný stjórn­ar­skrá sem mér finnst að við verðum að inn­leiða og það er í raun­inni grát­legt að þetta hafi verið sam­þykkt árið 2012 og það bólar ekk­ert á þessu níu árum síðar. Mér finnst það vera rétt­læt­is­mál að það klárist. Þá finnst mér að það þurfi að breyta úthlut­un­ar­að­ferð­inni á kvóta; ef við fáum rétt­láta rentu inn til rík­is­sjóðs af notkun kvóta þá myndi það geta hjálpað okkur að greiða fyrir mjög mikið af félags­legum úrbótum sem væri gott að sjá.“

Alex­andra gerir ráð fyrir að gefa kost á sér í borg­ar­stjórn á næsta kjör­tíma­bili.

„Ég mun örugg­lega ein­hvern tím­ann vilja reyna fyrir mér á þingi. Það veltur á því hvernig Píratar meta störf mín og hvernig gengur í borg­inni.“

Viss skilaboð

Alex­andra segir að með því að vera kjörin for­seti borg­ar­stjórnar sé verið að senda ákveðin skila­boð.

„Ég er ekki upp­tekin af titlum en ég er með­vituð um hvaða skila­boð er verið að senda. Það er verið að segja að ég njóti viss trausts; að mér sé treyst til þess að vinna þetta erf­iða starf og í raun­inni oft flókna starf. Þetta er starf sem krefst vissrar vand­virkni og vissra heil­inda. Mér finnst það líka vera mik­il­vægt að verið sé að senda þau skila­boð að í Reykja­vík­ur­borg geti trans­kona verið for­seti borg­ar­stjórnar eins og hver önnur. Ég hef hvorki í þessu meiri­hluta­sam­starfi né innan Pírata nokkurn tím­ann upp­lifað að ég sé ein­hvers konar skraut eða leppur til að sýna hvað þeir séu voða­lega fram­sýnir en það er ekk­ert verra að senda þau skila­boð að þetta sé eitt­hvað sem þeir vilji gera.

Trans­fólk er sá hópur á heims­vísu, og þá sér­stak­lega trans­konur, sem lendir í hvað mestu ofbeldi og er mest myrtur miðað við höfða­tölu. Þó svo að málin séu í raun­inni fín á Íslandi fyrir fólk eins og mig þá eru þau það ekki í heim­inum í stóru sam­hengi. Það eru lönd sem ég get ekki séð fyrir mér að fara til eins og málin standa. Ég bara myndi ekki geta treyst á öryggi mitt þar. Það að senda þessi skila­boð að hér geti trans­kona verði for­esti borg­ar­stjórnar eru mik­il­væg í tengslum við önnur lönd.“

Alex­andra segir að sem trans­kona sem verði áber­andi í sam­fé­lag­inu þá verði hún að vissu leyti tals­kona eða fyr­ir­mynd hvort sem henni líkar betur eða verr.

„Mér finnst vera ábyrgð­ar­hlutur að gera það vel. Ef ég myndi gera eitt­hvað sem færi illa í fólk sem borg­ar­full­trúi eða for­seti borg­ar­stjórnar þá myndi það óneitna­lega ein­hvern veg­inn virka nei­kvætt á allt trans­fólk og allt hinsegin fólk, alla­vega í augum þeirra sem eru á móti okkur. Ég ætla auð­vitað að vinna hlut­verk mitt eins vel og ég get og þetta er eitt­hvað sem ég hef alltaf í huga.“

Kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið breytti miklu
Alex­andra fædd­ist í karl­manns­lík­ama árið 1983. Hún seg­ist hafa verið fjög­urra eða fimm ára þegar hún fór að hugsa um að hún vildi verða stelpa. Hún fór að hugsa meira um þetta þegar hún var 11-12 ára og fór stundum í stelpu­föt.

„Ég upp­götv­aði það snemma að það skipti mig engu sér­stöku máli að vera í kjólum, með sítt hár eða með farða en dags dag­lega er ég í galla­buxum og peysu en ég mun klæða mig upp eftir að ég verð for­seti borg­ar­stjórnar.“

11-12 ára fór Alex­andra að leita á net­inu upp­lýs­inga um þessar til­finn­ingar sínar og hún var 17-18 ára þegar hún gerði sér grein fyrir að hún væri trans. Hún heill­að­ist af konum og gat á þeim tíma ekki hugsað sér að byrja í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli.

„Svo er ég stór og var karl­mann­leg í útliti og mér fannst að það yrði ótrú­lega mikið vesen að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli og ég ákvað að reyna að takast ekki á við þetta. Þetta er senni­lega léleg­astsa ákvörðun sem ég hef tekið en ég fest­ist í 10-15 ár í ein­hverju hjólfari, ein­hverju lim­bói, þar sem ekk­ert gekk hjá mér. Ég kláraði ekki skóla og ég var ekki góður starfs­maður og ég meik­aði ekki að vera í sam­böndum af því að mér fannst ég vera að ljúga að kærustum mínum. Í raun og veru fór ára­tugur í ruslið hjá mér af því að ég var ekki að takast við þetta.“

Alex­andra fékk ADHD-grein­ingu í kringum 2015 og fór henni að líða betur eftir að hún fór að taka ADHD-lyf og í kjöl­farið fór hún til geð­læknis og eftir það fór bolt­inn að rúlla. Hún byrj­aði í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli; fór að taka kven­horm­óna og er búin að fara í nokkrar aðgerðir.

Það var mik­ill léttir að hafa farið í gegnum kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið.

„Það að vera tarns og að vera í karl­manns­lík­ama trufl­aði allt sem ég var að gera. Ég fór áður ekki í lík­ams­rækt af því að mér fannst ég þá ekki vera að byggja upp lík­ama sem mér lík­aði við. Ég gat ekki deitað konur af því að ég gat ekki sagt þeim að ég væri kona. Ég gat ekki ein­beitt mér í skóla. Og ég gat ekki ein­beitt mér í vinnu. Núna get ég fók­userað á það sem ég er að gera og ein­beitt mér að mínum póli­tísku hug­sjónum.“

Hún segir að hún hafi fyrir kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlið haft sjálfs­traust en það var frá­brugðið sjálfs­traustinu í dag.

„Ég hef aldrei verið í raun­veru­legum vand­ræðum með sjálfs­traust en áður fyrr var kannski minni inni­stæða fyrir því.“

Og hún valdi sér nafnið Alex­andra.

„Mér finnst nafnið vera fal­legt, mér finnst það hafa vissan styrk og það er alþjóð­legt. Þegar ég var að spila tölvu­leiki, hlut­verka­leiki eða Dungeons & Dragons við vini mína og gaf per­sónum nöfn þá spar­aði ég alltaf þetta nafn; ég vildi ekki ofnota það í ein­hverja vit­leysu af því að ég vildi eiga það fyrir sjálfa mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una