Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Júlíana fékk síðasta dauðadóm á Íslandi – Rottueitrið í skyri Eyjólfs

Júlíana fékk síðasta dauðadóm á Íslandi – Rottueitrið í skyri Eyjólfs

Árið 1913 var Reykja­vík þrettán þús­und manna frið­sæll bær sem fór ört stækk­andi eftir því sem fleiri fluttu á möl­ina. Meðal þeirra var Eyjólfur Jónsson, tæp­lega fimm­tugur verka­maður frá Snæ­fells­nesi, oft kall­aður Eyjólfur sterki eða „járn­hönd­urnar”. Það átti fyrir Eyjólfi að liggja að falla fyrir hendi systur sinnar sem í kjöl­farið var dæmd til dauða fyrir ódæðið. Um var að ræða síð­asta dauða­dóm sem felldur var á Íslandi. Ítarlega var greint frá mál­inu í fjórða tölu­blaði Heims­myndar árið 1992.

Stórefnaður og sérsinna maurapúki

Ári fyrir and­lát sitt hafði Eyjólfur flutt til Reykja­víkur til að sinna verka­manna­vinnu. Hann var ógiftur og barn­laus en átti systur sem bjó í sárri fátækt að Brekku­stíg ásamt Jóni Jónssyni, sam­býl­is­manni sínum, og dóttur. Systir Eyjólfs hét Júlíana Silfa og var þremur árum yngri en Eyjólfur, sem fékk að gista hjá systur sinni við kom­una til Reykja­víkur. Fljót­lega flutti hann þó í leigu­her­bergi í Dúkskoti, þar sem núna er að finna gatna­mót Vest­ur­götu og Garða­strætis í Vesturbæ Reyja­víkur. Eyjólfur geymdi áfram koff­ort með eigum sínum hjá Júlíönu. Hann fékk fljót­lega starf við að sækja mjólk fyrir hús­stjórn­ar­skól­ann sem þá var stað­settur í Iðnó auk þess að stunda jarð­vinnu vestur á melum.

Eyjólfur þótti sér­sinna og var nokkuð þekktur fyrir að vera arg­asti maura­púki. Svo aðhalds­samur var Eyjólfur að hann hafði aldrei tímt að kaupa á sig föt en gekk árum saman í sömu lör­f­unum eins og umkomu­laus flæk­ingur. Eyjólfur var þó langt frá því að vera fátækur. Hann hafði nurlað saman þrjú þús­und krónum sem hann geymdi á banka­bók auk þess að vera stór­eigna­maður á jarðir fyrir vestan. Hann var stór­ríkur á þeirra tíma mæli­kvarða. Eyjólfur þótti góð­lyndur og hæg­látur maður, jafn­vel fynd­inn þegar að svo vildi vera. Hann hafði aldrei verið við kven­mann kenndur en tók að sér mun­að­ar­laust stúlku­barn sem fóstrað var á bæ utan Reykja­víkur.

Skapstór og hávaðasöm

Ekki gátu systk­inin hafa verið ólík­ari. Júlíönu er lýst sem skap­stórri, hávaða­samri og ástríðu­fullri konu en Jón sam­býl­is­maður hennar þótti latur til vinnu og almennt vafa­samur karakter. Báðum þótti þeim sop­inn góður en áttu sjaldn­ast nokkurn aur.

Til deilna kom milli systk­in­anna þegar að Eyjólfur kom til að sækja skulda­við­ur­kenn­ingu sem hann þurfti á að halda vegna deilna en var þá skjalið hvergi að finna. Fauk þá í Eyjólf sem sak­aði Júlíönu um að brjóta upp koff­ortið og stela frá sér. Kom til átaka á milli þeirra og gekk á með slags­málum og hót­unum. Eyjólfur baðst síðar afsök­unar og bauðst til að greiða læknis­kostnað vegna áverka sem Júlíana hafði hlotið í átök­unum en heift Júlíönu var óbreytt.

Krukkan úr apótekinu

Brátt fóru þau skötu­hjú, Júlíana og Jón, að ræða hvernig best væri að kom­ast hefna sín á Eyjólfi og kom­ast í leið­inni yfir fjár­muni hans. Vissu flestir að Eyjólfur hugð­ist arf­leiða fóst­ur­dóttur sína að eignum sínum og gramd­ist Júlíönu það mjög. Í fyrstu stakk Jón upp á því að Júlíana lokk­aði Eyjólf að hafn­ar­garð­inum í Örfirisey og hrinti honum fram af. Aftók hann með öllu að taka þátt í verkn­að­inum og treysti Júlíana sér ekki ein í morðið. Þess í stað hélt hún í Reykja­vík­ur­apó­tek og keypti krukku af rottu­eitri á 35 aura. Nokkrum dögum síðar, þann 1. nóv­em­ber, kom Eyjólfur til systur sinnar og þáði kaffi. Bauð hún honum þá að fá sér skyr með sykri sem Eyjólfi þótti hið mesta hnoss­gæti. Tæmdi hún inni­hald krukk­unnar á skyrið og fleygði henni síðar í eld­inn. Eyjólfi þótti óbragð að skyr­inu en lét sig hafa það þegar Júlíana færði honum brenni­víns­tár til að skola því niður með.

Sársaukafullur dauðdagi

Þegar heim í Dúkskot var komið kvart­aði Eyjólfur yfir maga­verk við sam­býl­is­fólk sitt en fátækt og hús­næð­is­skortur þeirra tíma gerði það að verkum að Eyjólfur deildi her­bergi með nokkrum öðrum ein­stak­lingum. Hann sagð­ist að hugs­an­lega væri skemmdu skyri um að kenna og lagð­ist til svefns. Næstu dag­ana dró mjög af Eyjólfi sem kastaði í sífellu upp. Þegar sam­býl­is­fólkið gekk á hann sagð­ist hann hafa fengið skyrið hjá systur sinni en neit­aði alfarið að trúa upp á hana að hún hefði sett ólyfjan í það. Það breytt­ist þó á nokkrum dögum eftir að Eyjólfur upp­götv­aði að spari­sjóðs­bók hans var horfin en í veik­indum sínum náði Eyjólfur þó að sækja hana til systur sinnar ásamt tveimur félögum þrátt fyrir hávær mót­mæli Jóns.

Smám saman virð­ist Eyjólfur hafa orðið þess full­viss að veik­indin mætti rekja til Júlíönu.

Þann 10. nóv­em­ber var Eyjólfur fluttur hel­sjúkur á sjúkra­hús þar sem hann dó sárs­auka­fullum dauð­daga nokkru eftir inn­lögn­ina.

Gamla konan í garðinum

Við krufn­ingu varð strax ljóst að um morð var að ræða og öllum ljóst að Eyjólf hafði grunað bana­mann sinn og tjáð það fjölda fólks. Því hélt lög­reglan beina leið á Brekku­stíg­inn og hand­tók með hraði þau skötu­hjú Jón og Júlíönu. Voru þau látin ganga í fylgd lög­reglu­manna gegnum bæinn og að hegn­ing­ar­hús­inu við Skóla­vörðu­stíg og var þeirri för lýst ítar­lega í þá nýstofn­uðu Morg­un­blaði. Júlíana öskr­aði og ýlfraði svo yfir­gengi­lega alla leið­ina að hálfur bær­inn lagði niður störf til að fylgj­ast með hers­ing­unni.

Júlíana ját­aði strax morðið en kvað Jón hafa verið hvata­mann að því. Jón neit­aði hins vegar allri sök en við­ur­kenndi að hafa vitað af ætlun Júlíönu. Lögðu fæstir trúnað á orð hans. Júlíana hélt áfram orgi sínu svo erf­ið­lega gekk við yfir­heyrslur. Sagðist hún bæði vera hjart­veik og geð­veik en geð­rann­sókn leiddi í ljós sak­hæfi. Fór svo að þegar dómur féll ári síðar var Júlíana dæmd til dauða fyrir bróðu­morðið. Ekki þótti sekt Jóns full­sönnuð og var hann því sýkn­aður. Dómnum var síðar breytt í ævin­langt fang­elsi.

Júlíana var illa farin á sál og lík­ama eftir atburð­ina og var gripið til þess ráðs að vista hana í eins konar stofu­fang­elsi á Landa­kots­spít­ala þar sem hún dvaldi í sautján ár fram að and­láti sínu. Mundu margir síðar með hlýju eftir döpru og umkomu­lausu kon­unni í garð­inum við spít­al­ann og gauk­uðu góð­samar konur stundum að henni góð­gæti eða kaffi­bolla. Jón Jónsson, sem margir töldu hafa verið hug­mynda­smið­inn að morð­inu, lést á Kleppi árið 1931. Júliana lést sama ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina