Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Áslaug dagmóðir hefur hjálpað fólki í neyð í sex ár: „Ástandið er alveg hræðilegt“

Áslaug dagmóðir hefur hjálpað fólki í neyð í sex ár: „Ástandið er alveg hræðilegt“

„Ég veit ekki hvernig þetta byrj­aði fyrir sex árum en ég sá svo mikið af fátæku fólki í kringum mig sem þurfti á hjálpa að halda. Ég hef aldrei getað sagt nei við nokkurn mann og er alltaf með opinn hug svo við vin­kon­urnar stofn­uðum þessa síðu,“ segir Áslaug Guðný Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi dag­móðir, sem rekur öfl­ugt hjálp­ar­starf í gegnum Facebook -síð­una Mat­ar­hjálp Neyð­ar­kall Jóla­að­stoð og Páska.

„Í dag þekkja mig flestir og treysta. Sumir sem þurfa hjálp eru til­búnir að koma fram undir nafni en aðrir eru hræddir við það. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því en það er oft vegna barna­vernd­ar­nefndar, þegar fólk stendur til dæmis í for­ræð­is­deilum má lítið bera út af“.

Ein heit máltið

Áslaug er óþreyt­andi við að leita eftir hjálp fyrir þá sem minna mega sín. Hún seg­ist treysta á góðan hóp sem reglu­lega leggur til auk þess sem fyr­ir­tæki hafa hlaupið undir bagga. „Þetta eru mikið konur á mínum aldrei, jú og karl­menn, en það eru fjögur þús­und manns í hópnum, sumir af for­vitni en aðrir leggja til smott­erí. Hver króna skiptir máli því þetta safn­ast saman og gerir unnt að versla inn og gefa barni að minnsta kosti eina heita máltið. Miðað við aðstæður hefur þetta gengið vel í gegnum árin”.

Áslaug segir ástandið óhemju erfitt núna. „Það er hræði­legt núna, hreint og beint hræði­legt. Það hefur allt hækkað og ein ferð í mat­vöru­verslun losar um tíu þús­und fyrir fjöl­skyldu. Fólk reynir sitt besta, nýtir barna­bæt­ur­inar í að greiða niður skuldir en þegar þær eru búnar sveltur það því allt hækkar stjórn­laust nema örorku­bæt­unar og elli­líf­eyr­ir­inn. Og gamla fólkið kvartar aldrei nema maður tali við það og gangi á það um hvernig aðstæð­urnar í raun eru. Maður verður svo sár­reiður þegar maður veit að því að fólk getur ekki lifað mann­sæm­andi lífi“.

Ekki matarbita að finna

Hún rifjar í kjöl­farið upp sög­una af því þegar 87 ára gam­all maður hringdi í hana. Hann var tregur til að biðja um hjálp en spurði hvort unnt væri að aðstoða sig með brauð og mjólk­ur­dreytil.

Ætli ég endi bara ekki fram­boði

„Ég vissi að ég þyrfti að heim­sækja hann og þarf var allt tómt. Það var ekki mat­ar­bita að finna í íbúð­inni. Ekkert. Ekki einu sinni kló­sett­pappír. Ég fór með hann út í búð og við fylltum skápana hjá honum. Hann grét, sagð­ist ekki hafa átt jafn mik­inn mat í mörg ár. Þetta kerfi okkar er ömur­legt og það þarf að stokka það upp frá a til ö. Það þarf fólk við stjórn­völ­inn sem maður getur valið og treyst, fólk sem hefur sjálft upp­lifað fátækt. Þangað til held ég að ekk­ert breyt­ist. Ætli ég endi bara ekki fram­boði,“ segir Áslaug og hlær.

Áslaug hittir mikið af börnum sem búa við skort.

„Börnin eiga aldrei að þurfa að finna fyrir pen­inga­leysi for­eldr­anna en auð­vitað gera þau það. Við höfum hent í heilu ferm­ing­ar­veisl­urnar fyrir þá sem hafa þurft á því að halda, gefið jóla­mat og jóla­gjafir og páska­mat og páska­egg”.

Áslaug deildi út 78 páska­eggjum þetta árið og eru þá ótal­inn allur mat­ur­inn.

„Það er svo ynd­is­legt að það voru að koma til mín börn sem höfðu kannski fengið nokkur páska­egg og vildu gefa fátækum börnum auka­eggin sín. Börn eru með svo hreina og fal­lega sál“.

Flugfreyjurnar ómetanlegar

Áslaug hefur fundið fyrir miklum vel­vilja meðal nokk­urra fyr­ir­tækja.

„Tísku­fata­verslun Möst.C keypti mikið magn bak­poka og penna­veskja í inn­kaupa­ferð úti sem ég síðan dreifði, Toy’s R Us var óend­an­lega dug­legt við að færa okkur jóla­pakka og gler­augna­versl­unin Sjónlag bauð sjón­skertum ein­stak­lingum frí gler­augu. Við gátum meðal ann­ars hjálpað móður með þrjár sjón­skertar dætur og allt í allt voru þetta 30-40 ein­stak­lingur sem þarna fengu gler­augu. Svo eru flug­freyj­unar alveg ómet­an­legar, koma alltaf fær­andi hendi. Þetta er alveg ein­stakt fólk sem þarna er að hjálpa”.

Það þyng­ist hljóðið í Áslaugu þegar talið berst að lyfja­kostn­aði.

„Það er alveg á hreinu að það er mann­fall á Íslandi vegna þess að fólk getur ekki leyst út lyfin sín. Við höfum yfir­leitt bent á kirkj­una með slík úrræði en þeir greiða ekki lyf sem eru þrí­hyrn­ings­merkt sem þýðir að fólk, og ekki síst börn, sem þarf á tauga- eða geð­lyfjum að halda getur ekki fengið þau. Ég hef margoft bent á það þurfi að koma til úrræði en ekk­ert hefur dugað“.

Hún bendir á að sum úrræði séu ekki alltaf til staðar.

„Mæðra­styrks­nefn og Fjöl­skyldu­hjálpin eru lokuð yfir sum­ar­tím­ann og ég veit ekki hvernig það er í ár en í fyrra lok­aði Fjöl­skyldu­hjálpin þá mán­uði sem barna­bæt­urnar voru greiddar út. Og eng­inn lifir á þeim“.

Áslaug fær hjálp­ar­beiðnir alla daga og sumar nætur. Hún reynir að koma sem flestum til hjálpar þótt að aldrei sé hægt að hjálpa öllum. Hún afhendir aldrei fé en milli­færir inn á Bónu­skort, verslar inn mat sem hún færir fólki eða er sóttur til hennar og keyrir fólk sem til dæmis hefur ekki tök á að kom­ast til læknis.

Fljót að sjá út skemmd epli

„Það er bið­röð af fólki sem vantar hjálp! Yfir­leitt tek ég þetta í röð, allir eiga rétt á að borða, en maður for­gangs­raðar auð­vitað til dæmis barna­fjöl­skyldum. Svo þurfa sumir bara að tala. Fólki líður ein­fald­ega illa, þetta eru kvíðnir eða ein­stæð­ingar með lítið bak­land. Það má alltaf tala við mig ef fólk þarf að tjá sig“.

Áslaug segir að vissu­lega séu skemmd epli innan um og til hennar leiti fólk sem ekki þurfi á því að halda. „En við erum fljótar að sjá það út, ég er komin með ágætt sjón­ar­svið og veit vel hvenær fólk er að reyna slíkt.”

Áslaug seg­ist ekki sjá eftir þeim tíma og pen­ingum sem hún hefur sett í starfið. „Þetta er auð­vitað erfitt en einnig afar gef­andi. Ég vona bara að ég vinni ein­hvers staðar millj­ónir til að hjálpa fleiru, því ég fer að sofa með það í huga hvað sé hægt að gera dag­inn eftir. Ég vona bara að guð heyri til okkar“.

Þeir sem vilja aðstoða Áslaugu við að hjálpa fátækum er bent á Facebook síðu Mat­ar­hjálpar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una