Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Flugvélin sprakk og 25 brunnu inni – Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar

Flugvélin sprakk og 25 brunnu inni – Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar

Fimmtu­dag­inn 29. maí kl. 11.25 árið 1947 hélt tveggja hreyfla flug­vél Flug­fé­lags Íslands, TF-ISI,af gerð­inni Douglas DC, af stað í áætl­un­ar­flug frá Reykja­vík­ur­flug­velli og áleiðis til Mel­gerð­is­flug­vallar í Eyja­firði. Mikill upp­gangs­tími voru hjá Flug­fé­lag­inu á þessum árum og fjölg­aði hratt í flota þess. Á þessum árum var ekki kom­inn flug­völlur við Akureyri heldur var land­flug­vélum lent á Mel­gerð­is­flug­velli sem er um hálf­tíma akstur inn af Akureyri, en sjó­flug­vélum var lent á poll­inum við Akureyri. Lítið var af flug­leið­sögu­tækjum á þess­ari flug­leið og var því venjan að fljúga sjón­flug.

Ítarlega er greint frá slys­inu í sam­tíma­heim­ildum, enda fyllt­ist þjóðin mik­illi sorg, og er frá­sögnin byggð á fréttum úr Morg­un­blað­inu, Tímanum og Baldri árið 1947.

Samband rofnar

Vegna skýja­fars yfir hálend­inu var flogið norður yfir Arn­ar­vatns­heiði og síðan til Skaga­fjarðar og út fyrir mynni Siglu­fjarðar en þaðan átti að fljúga vél­inni inn Eyja­fjörð. Vélin varí reglu­legu loft­skeyta­sam­bandi, síð­ast við Akureyri kl. 12:45 þegar áhöfn kvaðst láta vita aftur af sér eftir 10 mín. Um svipað leiti sást til vél­ar­inn út af Siglu­nesi. Aldrei náð­ist sam­band við vél­ina eftir það.

Þegar vélin skil­aði sér ekki til Mel­gerð­is­flug­vallar gróf um sig uggur með fólki. Þegar ítrek­aðar til­raunir höfðu verið gerðar til að ná sam­bandi við hana án árang­urs var hafin leit. Leit­ar­flokkar hófu leit á landi og bátar voru sendir frá Ólafs­firði og Siglu­firði til að kanna hvort hvort vélin hefði lent í sjónum. Bar leitin eng­ann árangur. Á þessum árum var byggð í Héð­ins­firði en þennan dag hafði verið mikil þoka í firð­inum svo leit­ar­flokkar fundu ekk­ert. Heima­menn höfðu ekki orðið neins varir varir aðspurðir um flug­vél­ina. Morg­un­inn eftir hafði þokunni létt svo unnt var að senda flug­vélar til leitar og sáu leit­ar­menn fljót­lega flak vél­ar­innar kl. 8:20 í hlíð Hest­fjalls, norðan Héð­ins­fjarðar.

Tuttugu og fimm lík

Var brugðið á það ráð að senda menn frá Ólafs­firði og Héð­ins­firði að slys­stað en afar erfitt var að kom­ast að fjall­inu sem er bratt og klettótt í sjó fram. Flakið var stað­sett rétt innan við svo­nefndar Voga­torfu í utan­verðu Hest­fjalli, snar­bröttu og ófæru fjalli, sem gengur í sjó vestan megin Héð­ins­fjarðar. Aðstæður á svæð­inu voru erf­iðar og lágur hlutar úr vél­inni á víð og dreif um fjallið. Um kl. 15:30 fundu svo leit­ar­menn lík 24 manna, kvenna og barna. Síðasta líkið fannst nokkru síðar. Allt var þetta ungt fólk, sá elsti 49 ára.

Erf­ið­lega gekk að kom­ast að flak­inu í snar­bröttu fjall­inu.

Enginn var til frá­sagnar um hvað hefði nákvæm­lega gerst en það þótti ljóst að sökum dimm­viðris hafi vélin borist með vindi í mynni Héð­ins­fjarðar. Vegna stöðu flaks­ins var ljóst að flug­menn­irnir hefðu séð fjallið og reynt að hækka vél­ina án árang­urs. Vélin flaug beint á fjallið og mun hafa sprungið og brunnið sam­stundis. Fjögurra manna áhöfn, auk 21 far­þega, hafði verið í vél­inni, þarf af þrjú ung börn.

Þau voru öll látin. Mann­skæð­asta flug­slys Íslands­sög­unnar hafði orðið.

Djúpstæð áhrif

Í frétt Tímans af slys­inu segir svo: „Allt var brunnið af flug­vél­inni sem brunnið gat og hún hafði brengl­ast mikið við spreng­ing­una. Flest líkin lágu á víð og dreif í kringum flakið, sum all­fjarri. Hafa þau senni­lega henst úr vél­inni við spreng­ing­una. Mörg þeirra höfðu mikla áverka, en önnur voru með minni. Minnstir áverkar höfðu orðið á líkum barn­anna. Í vél­inni sjálfri voru nokkur lík.”

Björg­un­ar­menn unnu þrek­virki en reyndu mjög á þá við þessar skelfi­legu aðstæður auk þess sem flestir þeirra voru ungir menn og hafði þessi reynsla djúp­stæð áhrif á þá. Höfðu sumir á orði að þeir myndu aldrei gera neitt þessu líkt aftur.

Lýsti einn þeirra aðkom­unni þannig: „Þegar ég var kom­inn að vél­arflak­inu fór ég að lit­ast um. Sá ég þá ungt barn sitja á kletta­syllu með opin augu. Hélt ég í fljótu bragði að það væri lif­andi. Fór ég þangað en er ég kom nær, sá ég að það var daíð og stirnað en augun brostin.“

Líkin voru fyrst flutt til Ólafs­fjarðar og þaðan til Akur­eyrar og kom ms Atli með þau kl. 22.00 að Torfu­nefs­bryggj­unni þar sem voru saman komnir um 4.000 manns.

Sálmar voru spil­aðir og sungnir. Pétur Sig­ur­geirs­son, síðar biskup, hélt ræðu og voru líkin síðan sett á vöru­bíls­palla og ekið til kirkjuka­pell­unnar.

Minn­ing­ar­at­höfn var haldin um þau sem jörðuð voru utan Akur­eyrar 5. júní og þau flutt í varð­skip­inu Ægi til Reykja­víkur. Það var síðan 6. júní að í Akur­eyr­ar­kirkju fór fram jarð­ar­för þeirra 11 sem jarð­sungin voru á Akureyri. Að henni lok­inni var virðu­leg lík­fylgd þar sem bíla­lest flutti kist­urnar og skátar gengu fylktu liði með bíla­lest­inni.

Í Reykja­vík voru hinir látnu jarð­sungnir dag­ana 10. til 12. júní.

Með þökk og virðingu

Ári 1997 rifj­aði Hörður Geirsson, safn­vörður ljós­mynda­deildar Minja­safns­ins á Akureyri upp slysið í til­efni þess að hálf öld var liðin frá slys­inu. „Það sem eftir var af flaki flug­vél­ar­innar mun hafa verið fjar­lægt nokkrum árum eftir slysið. Ekki hefur tek­ist að hafa upp á neinum sem kann að greina frá örlögum þess. Senni­leg­ast er að leif­arnar af flak­inu hafi verið dregnar niður í fjöru þar sem sjór­inn hefur eyði­lagt það sem eftir var.“

Minn­is­varði um þá sem fór­ust var reistur á slys­stað árið 1997, þegar 50 ár voru liðin frá slys­inu og árið 2009 var gefin út bók um slysið, Harm­leikur í Héð­ins­firði, sem Margrét Þóra Þórs­dóttir skráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina