Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ísland átti að vinna Júróvisjón með stæl: „Ef við náum ekki fyrsta sætinu verða vonbrigðin mikil“

Ísland átti að vinna Júróvisjón með stæl: „Ef við náum ekki fyrsta sætinu verða vonbrigðin mikil“

Í ár er liðin hvorki meira né minna en 35 ár frá því ákveðið var að eyjan í Atl­ants­haf­inu girti sig í brók og tæki þátt í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva, Júró­visjón. Landinn hafði fengið að fylgj­ast með keppn­inni í nokkur ár, þó ekki í beinni útsend­ingu heldur viku eða tveimur seinna, og haft góða skemmtun af. Jafnvel þótt allir vissu hvernig keppnin hefðu farið.

Allir á yfirsnúningi

Árið 1985 sótti Rík­is­út­varpið form­lega um þátt­töku­rétt í keppn­inni og var hann fús­lega veittur. Nú var Ísland loks komið í hóp stór­þjóð­anna og vorum við þess full­viss að við gæfum þeim ekk­ert eftir á tón­list­ar­svið­inu. Í byrjun des­em­ber var aug­lýst eftir lögum sem fram­lagi í okkar fyrstu Júrós­visjón­ferð en keppnin var haldin hjá frændum okkarí Noregi það árið. Bárust tæp­lega þrjú­hund­ruð stykki og af þeim voru tíu lög valin til þátt­töku í und­an­úr­slita­keppn­inni hér heima fyrri part árs 1986.

Þjóðin var á yfir­snún­ingi af spennu og ekki kjaft að sjá á götum borg­ar­innar þegar bein útsend­ing um val fram­lags Íslend­inga stóð yfir. Í þokka­bót hafði norski dúett­inn Bobbysocks heiðrað land­ann með nær­veru sinni og söng sig­ur­lag árs­ins áður, La det swinge, í sjón­varps­sal.

Það er skondið að renna yfir flytj­endur lag­anna tíu sem flutt voru því telja mætti að skortur á söngv­urum hefði hrjáð landið á þessum tíma. Björgvin Hall­dórs­son flutti þrjú lag­anna, Eiríkur Hauksson önnur þrjú, Pálmi Gunn­ars­son enn önnur þrjú og Erna Gunn­ars­dóttir……auð­vitað þrjú. Fyrir þá sem finnst stærð­fræðin ekki ganga upp þá voru ein­hver lag­anna dúettar.

Svo fór að lagið Gleði­bank­inn eftir Magnús Eiríks­sonar og útsetn­ingu Þóris Bald­urs­sonar land­aði sigri í flutn­ingi Pálma Gunn­ars­sonar.

Magnús ósáttur

Magnús hafði upp­haf­lega samið lagið fyrir Manna­korns­plöt­una Bræðr­banda­lagið með Pálma í huga sem söngv­ara. Öll völd voru hins­vegar tekin af Magnúsi þegar lagið vann og var Gunnar Þórð­ar­son feng­inn til að breyta útsetn­ingu þannig að rokk­uðum slag­ara var breytt í diskó­smell. Einnig var ákveðið að fjölga í hópi flytj­enda og var þunga­vigt­ar­fólkið Eiríkur Hauksson og Helga Möller kölluð til að flytja lagið með Pálma. Eftir nokkrar vanga­veltur var tríó­inu valið nafni „Icy”. Nema hvað.

Magnús fór aldrei í graf­götur með að hann væri ósáttur við diskó­skotnu útgáf­una sem síðar var send út auk þess sem fjölgun söngv­ara var aldrei borin undir hann. Ásamt Pálma mót­mæltu þeir breyt­ing­unum en var þá hótað að lagið yrði dæmt úr keppni á þeim for­sendum að það hefði borist of seint. Magnús kom þá ekki nálægt lag­inu meira og sat til að mynda heima þegar ný útgáfa lags­ins var tekin upp í London. Hann fór þó með til Noregs með hópnum þegar að keppni kom.

Engu til sparað

Íslend­ingar stóðu á önd­inni af spenn­ingi og Gleði­bank­inn topp­aði alla vin­sælda­lista hér­lendis. Hér var aug­ljós­lega komið næsta sig­ur­lag Júrós­visjón. Ekkert var til sparað að gera veg Íslands sem mestan í þess­ari fyrstu keppni sem var nokkuð aug­ljóst að við myndum vinna. Gert var mynd­band sem tekið var í Svarts­engi, þar sem nú er að finna Bláa lónið, og var það dýrasta mynd­band sem þá hafði verið gert á Íslandi. Dóra Ein­arssdóttir, tískugúrú, var fengin til að hanna hina ógleym­an­legu bún­inga sem tríóið skart­aði og Sóley Jóhanns­dóttir, dans­kenn­ari, tók þre­menn­ing­ana í dans­kennslu. Það ku hafa reynst Pálma og Eiriki nokkuð erfitt enda ekki þekktir fyrir að vera kunn­áttu­menn á sviði dans­færni.

Það er fátt sem minnir jafn mikið á níunda ára­tug­inn en Icy hóp­ur­inn.

Þegar til Noregs var komið vöktu Íslend­ing­arnir athygli enda þeirra fyrsta til­raun í kepn­inni. Hópnum fylgdi hjörð blaða­manna sem duttu hver um annan við að flytja fréttir af gríð­ar­legum vin­sældum Icy hóps­ins. Í þokka­bót reynd­ist Gleði­bank­inn koma býsna vel út í veð­bönkum.

Vonbrigði með allt annað en fyrsta sætið

Sigurinn var allt að því í höfn og heim­frægð Icy hóps­ins sýnd­ist trygg. Hófust þá miklar rök­ræður um hvar Ísland myndi halda keppn­ina að ári, hvort Laug­ar­dals­höllin myndi duga eða hvort við þyrftum að leita til nágranna­þjóða um aðstoð. Þessi umræða fór fram í fullri alvöru, svo sig­ur­viss var land­inn.

Í upp­rifjun á vef Glatkist­unnar segir: „Magnús Örn Ant­ons­son þáver­andi útvarps­stjóri sagði á blaða­manna­fundi að þetta væri eitt það besta tæki­færi sem þjóðin gæti fengið til að sýna að hún stæði jafn­fætis öðrum þjóðum, Eiríkur Hauksson spáði Gleði­bank­anum fimmta til átt­unda sæti í keppn­inni og þótti fremur svart­sýnn og popp­skríbentar dag­blað­anna fóru hrein­lega á kostum í umfjöllun sinni. Einn þeirra sagði „að vel athug­uðu máli“ að lagið ætti í raun mjög góða mögu­leika á efsta sæt­inu, um leið og hann gagn­rýndi lög og mynd­bönd hinna þjóð­anna með hæfi­legum hroka og kald­hæðni, annar skrif­aði í fullri alvöru: „Ef við náum ekki fyrsta sæt­inu verða von­brigðin mikil.“

Saga sextánda sætisins hefst

Þann 3. maí sat íslenska þjóðin límd við skjá­inn þegar tríóið steig á sviðið í Bergen. Þau stóðu sig með prýði en þegar stiga­gjöf hófst var nokkuð ljóst að Ísland var langt því frá að fara að vinna Júró­visjón það árið. Það var því þjóð­inni mikið áfall þegar að lagið land­aði aðeins aðeins sext­ánda sæt­inu af tutt­ugu, sæti sem íslensk Júró­visjón­lög áttu eftir að eigna sér í gegnum kom­andi ár.

Gleði­bank­inn var gjald­þrota.

Fólk var svekkt og sárt. Og reitt. Reiðin beind­ist að norsku hljóm­sveit­inni sem hafði spilað undir (ömur­lega), að hinum Norð­ur­landa­þjóð­unum sem hefði svikið okkur með að gefa okkur ekki 12 stig (glatað, við gáfum þeim fullt hús), bún­ing­unum (of fram­úr­stefnu­legir) og Júrovi­sjón keppn­inni almennt sem væri gam­al­dags og kynni ekki að meta nútíma­lega snilld á við Gleði­bank­ann. Einnig var fast skotið á hina 14 ára gömlu Söndru Kim sem hafði unnið keppn­ina og höfðu sumir á orði að svo erfitt væri að keppa við 14 ára krúsidúllu að Ísland ætti næst að senda kasól­étta konu.

Með hlýju í hjarta

Á vef Glatkist­unnar segir að engin hafi mót­töku­at­höfnin verið þegar heim var komið eftir sneyp­för­ina til Noregs og þegar tríóið fór sveita­ball­arúnt um sum­arð var hann fljót­lega blás­inn af vegna lélegrar aðsóknar. „Engin breið­skífa leit heldur dags­ins ljós eins og gert hafði verið ráð fyrir og flestir reyndu að gleyma Gleði­bank­anum. Í árs­lok stóð útvarps­stöðin Bylgjan fyrir vali á leið­in­leg­ustu lögum árs­ins og sigr­aði Gleði­bank­inn auð­vitað þá keppni.”

Með árunum hefur fólk mild­ast mjög í afstöðu sinni til Gleði­bank­ans og í dag minn­ast flestir lags­ins með hlýju í hjarta. Fjöl­margar útgáfur hafa verið gerðar af því í gegnum tíð­ina og raula flestir með þegar „Þú leggur ekki inn í gleði­bank­ann tóman blús,” hljómar á öldum ljós­vakans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina