Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tara um nýjasta megrunaræðið á Íslandi: „Lyfjameðferðir gegn offitu er harmsaga“

Tara um nýjasta megrunaræðið á Íslandi: „Lyfjameðferðir gegn offitu er harmsaga“

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, félags­ráð­gjafi og for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu, um hefur litla sem enga trú á lyf­inu Saxenda og notkun þess í megr­un­ar­skyni hér­lendis. Hún segir að rauna hafi allar lyfja­með­ferðir gegn offitu verið harmsa­ögu.

Svo virð­ist sem nýtt æði hafi gripið um sig hér á landi en það er að sprauta sig með syk­ur­sýkis­lyf­inu Saxenda dag­lega í þeim til­gangi að létt­ast. Íslenskur áhrifa­valdur sagði fylgj­endum sínum frá þessu „undra­efni“ sem kom bylgju af stað meðal kvenna.

Lyfið er aftur á móti lítið rann­sakað og virð­ist geta valdið alvar­legum auka­verk­unum. Auðvitað þurfa sumir á lyf­inu að halda og það er bara jákvætt ef það hjálpar við bar­átt­una við ofþyngd og heilsu­bresti. Mannlíf kaf­aði ofan í málið

Áhrifavaldur segist léttast

Thelma Hilm­ars­dóttir áhrifa­valdur.

Fyrir nokkrum mán­uðum var íslenskur áhrifa­valdur, Thelma Hilm­ars­dóttir, á sam­skipta­for­rit­inu Snapchat að sýna fylgj­endum sínum Saxenda-lyfið og mat­reiddi þetta ofan í fylgj­end­urna sem svo: „Ég bara sprauta mig með þessu einu sinni á dag og ég létt­ist“.

Það má segja að á þessum tíma­punkti hafi allt farið á hlið­ina og virð­ist sem fólk, þá aðal­lega konur þust til lækna til þess að fá þetta undra­lyf hjá þeim.

Harmsaga

„Það verður að setja lyfið Saxenda í sam­hengi við sögu lyfja­brans­ans þegar kemur að offitu og megr­un­ar­lyfjum. Lyfið er enn eitt lyfið sem sett er á markað sem megr­un­ar­lyf og það er alls ekki útséð með það. Þegar kemur að lyfja­með­ferðum gegn offitu er þær harm­saga. Þess er skemmst að minn­ast þegar offitu­lyfið Phen Phen kom á markað á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Það olli mjög miklu æði og mikið var sótt í þessi lyf sem voru ekki nægj­an­lega vel rann­sökuð. Þau fengu samt leyfi hjá lyfja­eft­ir­lit­inu af því að það var búið að gera svo mikið úr heilsu­fars­legum vanda­málum tengdum offitu svo hærri fórn­ar­kostn­aður tengdur lyfjum gegn offitu varð ásætt­an­legur.

Tara Margrét Vil­hjálms­dóttir, félags­ráð­gjafi og for­maður Samtaka um lík­ams­virð­ingu

Það sem gerð­ist með þessi lyf er að þau valda hjarta og kransæða­vanda­málum, lungna­sjúk­dómum og mjög alvar­legum veik­indum, mörg dauðs­föll eru rakin til þess­arra lyfja. En þann dag í dag er verið að fara í hóplög­sóknir gegn lyfja­fram­leið­anda Phen Phen, 30 árum síðar. Þetta er alltaf sama sagan í raun og veru með lyfja­með­ferð, það eru miklar auka­verk­anir og árang­ur­inn er ekki það stór­kost­legur að hægt sé að rétt­læta áhætt­una. Árang­ur­inn er ekki mik­ill, oft örfá kíló, ef þá ein­hver, umfram það að vera sjálfur að hugsa um matar­æðið og hreyf­ingu. Rann­sóknir á bak við þessi lyf eru alltaf skamm­tíma­rann­sóknir og það er ekki verið að sýna fram á lang­tíma­ár­angur. Við erum samt alltaf að tala um þessar miklu, og alvar­legu og jafn­vel óþekktu auka­verk­anir. Það eru til megr­un­ar­lyf sem valda mörgum sjúk­dómum sem stöðugt er verið að kenna offitu um. Það eru offitu­lyf sem valda háum blóð­þrýst­ingi og svo lengi mætti telja,“ segir Tara.

Þekktar aukaverkanir

Ein þekkt auka­verkun sem fund­ist hefur hjá til­rauna­dýrum í rann­sóknum á Saxenda er skjald­kirtil­skrabba­mein en ekki er vitað hvort það eigi við um menn. Tara hefur miklar áhyggjur af þess­ari þróun.

„Maður veltir fyrir sér hvar umhyggjan er fyrir heilsu og vel­ferð fólks er kemur að ofþyngd. Það er stöð­ugur áróður um að offita valdi hinu og þessu en svo á að gefa fólki lyf sem valda einmitt þessum hlutum og jafn­vel alvar­legri. Þetta er dálítið mót­sagna­kennt. Auðvitað skilur maður alveg að fólk taki öllum nýj­ungum er tengj­ast bar­áttu við offitu fagn­andi. Fólk sem hefur til langs tíma barist við lík­ama sinni og maður skilur svo sem líka að heil­brigð­is­stéttir taki  einnig fagn­andi af því að skjól­stæð­ingar þeirra eru að leita lausna og biðja um aðstoð. Það má samt ekki loka aug­unum fyrir þeim árang­urs­rann­sóknum sem sýna það að lífstíls­með­ferð sem ein­blínir ekki á kílóa missi, eru þyngd­ar­hlut­lausar sýna lang­besta lang­tíma árang­ur­inn með til­liti til bæt­ingar á heilsu­fari. Það þarf nauð­syn­lega að snúa þeirri þróun við að við horfum ein­ungis á kíló og kílóa missi. Ég hef miklar áhyggjur af þessarri þróun bæði með lyfja­með­ferðir og aðgerðir því það festir fólk í þessum ofurá­herslum á þyngd. Það er líka áhyggju­efni hvernig skekkjan í heil­brigð­is­kerf­inu er og ýmsum heilsu­far­s­vanda­málum er skellt á þyngd fólks.

Ég er hrædd um að Saxenda verði notað sem yfir­breiðslu­lausn þegar vand­inn snýst ekki einu sinni um holda­farið. Fólk sem er of þungt kemur kannski til læknis með  vanda­mál sín og það gengur út með lyf á meðan grönn mann­eskja með sömu vanda­mál gengur út með allt ann­ars konar laus á sama vanda. Það er mis­munun í gangi innan heil­brigð­is­kerf­is­ins sem drifin er áfram af fitu­for­dómum. Mér þykir ótrú­legt að lyfið hafi fengið leyfi í ljósi þess að fund­ist hafa orsaka­tengsl milli notk­unar á Saxenda og skjald­kirtil­skrabba­meins hjá til­rauna­dýrum/ músum og rottum, en ekki vitað hvort það geti átt sér stað hjá mönnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina