Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Heimir Már vissi ekki af stuðningi Samherja: „Hinum sömu til ævarandi skammar og minnkunar“.

Heimir Már vissi ekki af stuðningi Samherja: „Hinum sömu til ævarandi skammar og minnkunar“.
Heimir Már Pét­urs­son. Mynd: Facebook

„Ef rétt er að Samherji og fólk á hans vegum hafi reynt að hafa áhrif á úrslit for­manns­kjörs í BÍ er það þeim hinum sömu til ævar­andi skammar og minnk­unar,“ skrifar Heimir Már Pét­urs­son, for­mann­fram­bjóð­andi í Blaða­manna­fé­lagi Íslands, um þær til­raunir sem Kjarninn upp­lýsti um að Samherji hefði gert til að fyr­ir­byggja að Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir yrði kos­inn for­maður. Heimir, sem tap­aði í ein­víg­inu við Sigríði Dögg, segir í Facebook-færslu í gær að hann hefði fyrst heyrt af mál­inu í gær þegar Kjarninn birti gögn sem feng­ust í inn­broti í tölvu Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra Samherja. Þar kom fram að skugga­penni hans, Þorbjörn Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi frétta­maður Stöðvar 2, hafði heyrt af yfir­vof­andi yfir­töku frétta­manna RÚV.

„Lítill fugl hvísl­aði því að mér að hall­ar­bylt­ing væri í bígerð“

„Lítill fugl hvísl­aði því að mér að hall­ar­bylt­ing væri í bígerð í Blaða­manna­fé­lagi Íslands. Frétta­menn RÚV eru víst í unn­vörpum að skrá sig í félagið fyrir kom­andi kosn­ingar. Þeir ætla víst að ná stjórn á því[…]Hinir þurfa að þjappa sér saman á móti henni[…]Mér skilst að þetta bein­ist að hluta til að okkur. Þeir ætla að nota félagið.“ skrifar Kjarninn upp úr leyni­gögnum skip­stjór­ans.

Þorbjörn Þórð­ars­son, skugga­penni Samherja og fyrr­ver­andi frétta­maður Stöðvar 2, vildi tryggja að Sigríður Dögg yrði ekki kosin.

Yfir­lög­fræð­ingur Samherja bað Þorbjörn síðan, sam­kvæmt gögnum Kjarnans, að hafa sam­band við reynslu­mik­inn blaða­mann til að und­ir­stinga við­kom­andi með frétt um þessa hall­ar­bylt­ingu. Þorbjörn mun þá hafa skrifað að hann væri í góðu sam­bandi við við­kom­andi blaða­mann. Til­gangur þessa átti að vera að „vekja starfs­fólk einka­reknu miðl­ana til lífs­ins um að fjöl­menna á aðal­fund­inn og kjósa Heimi“.

Heimir seg­ist koma af fjöllum.„Það var fyrst í dag að ég heyrði af meintum afskiptum ein­hvers hóps á vegum Samherja til að hafa áhrif á nýlegt for­manns­kjör hjá Blaða­manna­fé­lagi Íslands þegar athygli mín var vakin á grein í Kjarn­anum. Svo það sé sagt. Ef rétt er þá for­dæmi ég til­raunir Samherja eða hverra ann­arra utan Blaða­manna­fé­lags­ins til að hafa áhrif á innra starf félags­ins,“ áréttar hann.Pistill Heimis í heild sinni:Það var fyrst í dag að ég heyrði af meintum afskiptum ein­hvers hóps á vegum Samherja til að hafa áhrif á nýlegt for­manns­kjör hjá Blaða­manna­fé­lagi Íslands þegar athygli mín var vakin á grein í Kjarn­anum.Svo það sé sagt. Ef rétt er þá for­dæmi ég til­raunir Samherja eða hverra ann­arra utan Blaða­manna­fé­lags­ins til að hafa áhrif á innra starf félags­ins.Ég háði litla sem enga kosn­inga­bar­áttu fyrir kjörið fyrir utan form­legan fram­boðs­fund félags­ins sem streymt var til félags­manna. Ég hafði ekki sam­band við nokkurn félaga í aðdrag­ana kjörs­ins til að óska eftir stuðn­ingi við mig né til að hvetja fólk til að kjósa ekki Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur. Ég sendi hins vegar nokkrum tugum félaga skila­boð á loka­degi kosn­ing­anna til að minna á hvenær kosn­ingu lyki. Annað ekki.Ég veit að nokkrir sam­starfs­menn mínir sem vildu mér vel höfðu sam­band við nokkra vini sína og félaga á öðrum miðlum en okkar til að mæla með mér. Enginn, ekki nokkur maður, sem teng­ist Samherja hafði sam­band við mig til að bjóða fram stuðn­ing sinn. Ef þeir hefðu gert það hefði ég sagt þeim sömu, ekki svo vin­sam­lega, að láta af öllum slíkum afskiptum.Ef ein­hver í slag­togi við Samherja hefur beitt sér till að fá stuðn­ing við fram­boð mitt, hefur það alveg örugg­lega ekki gagn­ast mér. Þvert á móti.Blaða­manna­fé­lag Íslands er ekki fjöl­mennt félag og ég tel að félags­menn flestir þekki nægi­lega vel til mín til að taka afstöðu til þess hvort þeir teldu mig heppi­legan til for­ystu í félag­inu okkar. Ég bauð mig fram til að efla félagið í sam­skiptum þess við útgef­endur og umheim­inn almennt og til að verja þau grund­vall­ar­gildi sem félagið byggir á og koma fram í lögum þess og siða­reglum.Ef rétt er að Samherji og fólk á hans vegum hafi reynt að hafa áhrif á úrslit for­manns­kjörs í BÍ er það þeim hinum sömu til ævar­andi skammar og minnk­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina