Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hraunað yfir dagmóður sem gaf umdeild uppeldisráð: „Slá hann fast og rækilega utanundir“

Hraunað yfir dagmóður sem gaf umdeild uppeldisráð: „Slá hann fast og rækilega utanundir“

Kona sem starfar sem dag­for­eldri í Reykja­vík gaf móður þau ráð að best væri að slá börn, sem að bíta, þétt­ings­fast utan­undir til að fá þau til að hætta.

Móðirin leit­aði eftir aðstoð inni á Facebook hópnum Mæðra tips! Þar sagði hún frá því að barnið hennar sem er á fyrsta ári bíti hana, hvað væri til ráða?

Svar kon­unnar hefur vakið mikla reiði og þá sér­stak­lega í ljósi þess að hún starfar við umönnun ungra barna. En eft­ir­far­andi athuga­semd skrif­aði hún við færsl­una:

„Slá hann fast og ræki­lega þegar hann gerir þetta utan­undir. Einu sinni og tvisvar ef hann nær því ekki í fyrsta skiptið þá í næsta skiptið. Annars mun hann bíta önnur börn og allir munu gef­ast upp á að passa hann. Þetta er spurn­ingin um að kenna barn­inu og aga það ekki og aldrei ofbeldi heldur AGA.“

Eftir að hafa fengið mikla gagn­rýni fyrir ráð­legg­ingar sínar skrif­aði konan:

„Mér þykir leitt að hafa ollið allri þess­ari úlfúð, ég lem ekki börn svo það komi fram en það rifj­að­ist upp fyrir mér þegar ég sá ummælin frá mömm­unni sem var með barn sem var að bíta að þegar ég var með syni mína á brjósti hvað skeði þegar þeir bitu mig ÓSJÁLFRÁÐU VIÐBRÖGÐIN, sem ég fékk voru að slá þétt­ings­fast í kinn­ina á þeim og þeir bitu aldrei aftur. Ef þið hafið gaman að japla á þess­ari yfir­sjón minni þá megið þið það. Aðgát skal höfð í nær­veru sálar. Ég biðst afsök­unar á því að hafa gefið svona ógæti­leg ráð og valdið svona mis­skiln­ingi og úlfúð“

Ekki hefur verið tekið betur í síð­ari athuga­semd kon­unnar.

„Bara vá sko.. ég er orð­laus. Verandi með barn á brjósti fæ ég bara sting í mag­ann að hugsa út í þetta. Ef að þetta eitt og sér fær hana til að slá börnin sín hvað gerir hún þá þegar þau gera eitt­hvað „alvar­legra“ ..“

„Ókei, mín hætti á brjósti tveggja mán­aða þannig ég veit ekki hvernig það er að vera bitin í brjóstið en barnið mitt klípur mig við­bjóðs­lega fast, ósjálf­ráðu við­brögðin mín eru EKKI að beita barn­inu ofbeldi heldur að kippa þann lík­ams­hluta sem hún er að klípa í í burtu!!! Ég á ekki orð hvað ég er reið yfir þess­ari konu!!!“

„Líka alveg geð­veikt grillað eftir á, bara nei nei ég lem aldrei börn ég bara ákvað að ráð­leggja öðrum það af því allt í einu mundi ég að fyrir 35 árum síðan sló ég son minn og það virk­aði!

Mjög lélegt „safe“.“

„Maður veit ekki orðið hverjum maður getur treyst fyrir börn­unum sínum. Þetta er alls ekki í lagi og von­andi missir hún leyfið sitt. Ég hef séð annað dæmi þar sem dag­mamma skilur börnin eftir inni ein meðan hún fer út að reykja. Var/er með aðstöðu heima hjá sér í bíl­skúrnum skilst mér og ég og vin­kona mín vorum að þrífa fyrir hana. Þurfti að skjót­ast inni bíl að ná í eitt­hvað og hún var mjög vand­ræða­leg þegar hún sá mig og sagð­ist vera að „stel­ast smá til að reykja“ börnin þá eft­ir­lits­laus inni.“

„Omg er orð­laus og vona að þessi kona verði atvinnu­laus því ég yrði fljót að láta barnið mitt hætta hjá henni ef ég væri með barn þar. Hún er ekk­ert annað en ofbeldis mann­eskja ef þetta er aðferð sem hún notar. Vá hvað ég er reið eftir þennan lestur og gat ekki setið á mér núna.“

„Vonandi verður hún svift dag­mömmu rétt­indum þar sem hún greini­lega lemur börnin sem eru hjá henni.“

Ekki náð­ist í dag­móð­ur­ina við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina