Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Síðustu skilaboð Axels heitins: „Fyrirgefðu mamma, að ég hef ekki verið í meira sambandi“

Síðustu skilaboð Axels heitins: „Fyrirgefðu mamma, að ég hef ekki verið í meira sambandi“
Axel Jós­efs­son Zarioh ásamt Katrínu Sjöfn Svein­björns­dóttur, móður sinni á skemmti­legri stundu

Katrín Sjöfn Svein­björns­dóttir, móðir Axel Jós­efs­sonar Zarioh, sem fannst sjó­rek­inn í flæð­ar­máli fjöru á Vopna­firði í apríl síð­ast­liðnum segir fjöl­skyld­una frá­vita af sorg en stað­fest­ing barst á fæð­ing­ar­degi unga manns­ins. „Við fengum stað­fest­ingu þann 26. maí síð­ast­lið­inn, á afmæl­is­deg­inum hans,“ segir Katrín Sjöfn. „Axel hefði orðið tví­tugur þennan dag.“

Sást síðast kortéri áður en skipið kom

Það var 1. apríl sl. sem lög­regl­unni barst til­kynn­ing um manna­bein í fjör­unni á Vopna­firði, en af ummerkjum mátti strax greina að lík­ams­leif­arnar höfðu legið lengi í sjó. Lög­reglan á Aust­ur­landi fór í upp­hafi með rann­sókn máls­ins en kennsl voru borin á unga mann­inn með töku líf­sýnis sem sent var til DNA grein­ingar í Svíþjóð. Axel, þá átján ára gam­all, var í sinni fyrstu sjó­ferð með fiski­skip­inu Erlingur KE-140 í maí í fyrra þegar hann virð­ist hafa fallið frá skipi á leið til hafnar.

Katrín Sjöfn segir enn of snemmt að segja til um atburða­rás, ef sann­leik­ur­inn komi þá nokkru sinni að fullu í ljós. „Hann [Axel] sást síð­ast um kortéri áður en skipið kemur að landi. Eftir það er ekk­ert vitað.” Hún segir enn­fremur óvíst hvort rann­sókn verði haldið áfram eða með hvaða hætti.

Axel var við kokk­a­nám í M.K. og stefndi á húsa­kaup en hann var átján ára gam­all þegar hann lést

Biður fyrir því að allir þeir sem týnast megi finnast

Framundan er jarð­setn­ing unga manns­ins og segir Katrín stuðn­ing þann og hlýju sem fjöl­skyldan hefur mætt vera ómet­an­legan. „Ég græt en gleðst yfir því að fólk skuli sam­hryggj­ast okkur og ég þakka Guði fyrir að vera svo lánsöm að fá að jarða hann elsku Axel okkar, því það er ekki sjálf­gefið,” segir móðir unga manns­ins og vísar hún þar til orða Bubba Morthens sem söng um stúlk­una sem starir á hafið. „Þegar ég heyri lögin hans Bubba í dag, bið ég fyrir því að þeir sem týn­ast megi finn­ast,” segir hún jafn­framt.

„Ég bið fyrir því að þeir sem týn­ast megi finn­ast,” segir Katrín en ár leið þar til Axel fannst

Axel var í kokkanámi og stefndi fullur bjartsýni á húsakaup

Axel var lífs­glaður ungur maður að sögn móður sinnar og horfði fullur bjart­sýni til fram­tíð­ar­innar. „Hann var í MK þar sem hann var í kokk­a­námi, en tók sér hlé frá námi til að afla pen­inga. Hann fór frá Reykja­vík með besta vini sínum sem var á þessu skipi í sinn fyrsta túr. Þeir voru búnir að landa á Vopna­firði einu sinni eða tvisvar vegna véla­bil­unar en þetta var samt svo skrýtið allt saman. Hann tal­aði við mig á föstu­deg­inum áður en þeir fóru út þessa helgi og svo ger­ist þetta allt saman svo hratt. Þetta voru hálf­gerðir dag­róðra­t­úrar og þá fara þeir í tvo daga út, koma svo heim, landa og fara. Ég held að hann hafi þegar verið búinn að fara einu sinni í land.”

Síðustu skilaboðin sendi Axel móður sinni örfáum mínútum fyrir atvikið

Á mánu­dags­morgun, skömmu áður en skipið kom að landi, sendi Axel svo síð­ustu skila­boðin til mömmu sinnar, sem Katrín segir hafa komið henni á óvart en þau mæðgin höfðu ekki notað sam­skipta­miðla mikið sín á milli til þessa. „Hann hafði þá hringt í mig og beðið mig að færa sér hand­klæði því þeir ætl­uðu að fara í sund saman, vin­irnir, meðan skipið lægi við bryggju. Fáeinum mín­útum áður en hans er saknað sendi hann mér svo Snapchat þar sem hann sagði meðal ann­ars: „Fyr­ir­gefðu mamma, hvað ég hef verið í litlu sam­bandi við þig”.

Axel ásamt Aðal­heiði Láru Jós­efs­dóttur systur sinni en hann var tveimur árum eldri en hún

Ekki hægt að endurheimta síðustu skilaboðin 

„Við höfum reynt, ég og lög­reglan, að end­ur­heimta þessi síð­ustu skila­boð sem sonur minn sendi mér af sam­skipta­miðl­inum, en án árang­urs. Von okkar var sú að geta komið nán­ari böndum á atburða­rás­ina þennan morgun, með það fyrir augum að skilja hvenær hann féll frá borði en lög­reglan segir ekki hægt að end­ur­heimta skila­boðin, þar sem Snapchat eyði upp­lýs­ingum jafn­óðum og visti ekk­ert slíkt á sínum vef­þjónum.”

Lífsglaður og ungur maður sem stefndi á húsakaup

Allt leit eðli­lega út að sögn Katrínar þegar síð­ustu skila­boð Axels bár­ust henni og hafði sonur hennar meðal ann­ars sent móður sinni ljós­myndir frá borði þar sem þeir félagar voru að spila póker sín á milli. „Þetta var bara rosa gaman hjá þeim strák­unum, en hann hafði verið þarna í átta eða níu daga. Þessi lífs­glaði, ungi strákur var að vinna hjá Olís sam­hliða sínu námi í MK og ætl­aði að kaupa sér hús. Hann var fullur bjart­sýni og hafði gert flottar fram­tíð­ar­á­ætl­anir.”

Vinurinn hringdi og spurði hvort strákurinn hefði stungið af 

Það var svo klukkan hálf eitt, þann 18. maí 2020 sl. að besti vinur Axels og klefa­fé­lagi um borð hringdi í Katrínu og spurði hvort sonur hennar hefði gef­ist upp á sjónum og stungið af. „Hann spyr mig í síma hvort sonur minn hafi stungið af frá borði og hvort strák­ur­inn hafi gef­ist upp á sjó­mennsk­unni. Þá hafði hann hvergi sést og eng­inn rek­ist á hann. Ég hringdi þá strax og athug­aði hvort ein­hver hefði sótt son minn til bryggju, en svo var ekki.”

Axel ásamt litla bróður sinnum, Svein­birni Tuma Jós­efs­syni

Myndavélar um borð allar óvirkar

Atburða­rás­ina segir Katrín vera á huldu og að rann­sókn­ar­að­ilum þyki furðu­legt. „Skipið leggur við bryggju klukkan 08.06 þennan morgun og einn skips­verji sér Axel um borð rétt fyrir klukkan átta. Ég veit í sjálfu sér ekki hvað Axel þá að gera um borð en eftir það er ekk­ert vitað. Tvær mynda­vélar voru um borð en í ljós kom síðar að þær voru báðar óvirkar en mynda­vélar við bryggju frusu tvisvar þennan morgun. Auðvitað átti að hefja leit sam­stundis og sjálfri þykir mér þetta allt mjög skrýtið.”

Axel var nýliði um borð

Hún segir jafn­framt áhyggjur vekja að fimmtán manna áhöfn skuli ekki hafa grennsl­ast fyrir um unga mann­inn strax. „Sonur minn var nýliði um borð og var að fara í sína fyrstu sjó­ferð, en þegar ljóst var að Axel var horf­inn voru átta klukku­stundir liðnar frá því að skipið lagði við bryggju. Hann ætl­aði að sækja buxur og vinnu­fatnað sem hann bað mig að senda sér ásamt hand­klæði því hann var á leið í sund. Ég sendi honum auð­vitað fatn­að­inn, en þeir voru ekki í miklu síma­sam­bandi um borð þá um helg­ina. Þess vegan heyrði ég svona lítið frá honum síð­ustu dag­ana. Vinur hans var far­inn að skimast um eftir honum og aðrir menn voru farnir að leita líka, en skip­stjór­inn hringdi svo í mig klukkan hálf tvö og greindi mér frá því að Axel væri hvergi að finna.” Í kjöl­farið var svo hringt í lög­reglu. Þegar leið á leit­ar­tím­ann var svo leitað í öllum flug­sam­göngum, bíla­leigum og hreint út sagt alls staðar. “Enginn vissi hvort Axel hefði kom­ist frá borði eða hvort hann hefði fallið í sjó­inn. Tímara­mm­inn var svo þröngur.”

Katrín ásamt Guðrúnu Láru Svein­björns­dóttur, systur sinni og börnum þeirra um jóla­há­tíð

Áleitnar hugsanir eðlilegar 

Katrín segir erfitt að geta líkum að því hvað kunni að hafa valdið sjó­slys­inu. „Auðvitað hef ég farið ítrekað yfir allt sem vitað er og velt því fyrir mér hvort skipið hafi tekið ranga beygju. Kannski hefði verið hægt að bjarga honum. Þetta er auð­vitað hugsun sem hefur ásótt mig und­an­farið. En þetta eru bara hugs­anir og ég kenni engum um. Ég veit að svo er ekki. Þetta er ein­fald­lega leið­in­legt mál og hræði­legur missir.”

Varla nokkurri áhöfn bjóðandi

Þegar móðir Axels hafði rætt við lög­regl­una fór hún svo sjálf um borð til að sækja far­angur sonar síns og til að líta á aðstæður með eigin augum. „Sjálf hefði ég ekki getað eytt einni sek­úndu þarna og þykir aðstaðan um borð ekki mönnum bjóð­andi og það þótti lög­reglu­full­trú­anum sem ég ræddi við, ekki heldur. Þó er aðstaðan um borð með öllu lög­leg en þetta þó er gam­alt skip sem er hannað fyrir átta manna áhöfn, að mér skilst. Klefinn hans var pínu­lít­ill og þeir voru káetu­fé­lagar, hann og besti vinur hans. Þetta var eins og lít­ill fata­skápur. Þetta voru þó bara ung­lingar sem veltu aðstöð­unni um borð lítið fyrir sér. Þetta voru bara ungir strákar á sjó sem vildu afla pen­inga.”

Biðin langa eftir fregnum var hræðileg 

Tólf mán­aða þrauta­tíma lauk svo með sím­tal­inu sem barst Katrínu nú í vor. „Biðin eftir upp­lýs­ingum og svörum var hræði­leg,” segir hún um þann tíma sem fjöl­skyldan beið milli vonar og ótta eftir fregnum af Axel. “Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að bíða svona milli vonar og ótta,” segir hún. „Hann var ekki með neina reynslu en hann var bara átján ára gam­all þegar hann lést. Þetta var hans fyrsti sjótúr.“

Katrín ásamt börnum sínum, Axel og Aðal­heiði Láru Jós­efs­börnum

Flókið að úrskurða einhvern látinn

En hvert gat Katrín leitað meðan á bið­inni stóð og hvar var hjálp að finna? „Ég er svo lánsöm að mamma mín er með manni sem er prestur. Sá maður á frænda sem er lög­fræð­ingur og aðstoð­aði mig við þetta mál. Það er ekk­ert grín þegar mann­eskja týn­ist og það er ekki ein­falt að úrskurða ein­hvern lát­inn hér á Íslandi. Þá þarf að kalla til vitni og sanna með beinum hætti að við­kom­andi sé dáinn þrátt fyrir að líkið hafi ekki fund­ist. Á móti kemur svo að ríkið kallar sjálft til lög­mann sem reynir með öllum leiðum að afsanna að and­látið hafi átt sér stað. Þetta stendur ein­fald­lega í íslenskum lögum. Það er ekki bara hægt að stíga fram og úrskurða ein­hvern lát­inn.”

Fá sambærileg mál til á skrá og fordæmin engin

Þó reglu­gerðir hafi tekið breyt­ingum í sam­ræmi við breytta sam­fé­lags­skipan und­an­farin ár hafði fjöl­skyldan þó ekki úrskurðað Axel lát­inn þegar dreng­ur­inn fannst í fjöru nú í apríl. „Lög­mað­ur­inn minn sagði mér að ekki væru til mörg sam­bæri­leg mál sem hægt væri að taka mið af og því erfitt að finna for­dæmi. Lög­reglan sagði það sama við mig, þeir vita í raun ekk­ert og málið er á allan máta mjög óeðli­legt.”

Vaknaði með slæma tilfinningu þennan morgun 

Katrín segir lög­regl­una meta málið nær for­dæm­is­laust en þó hafi aldrei kviknað sá grunur að um hættu­legt athæfi hafi verið að ræða. „Nei, við erum ekki að tala um sak­næmi í þessum efnum, en þó hefur rann­sókn ekki enn verið lokið. Sann­leik­ur­inn mun jafn­vel aldrei koma fram”.

Eins og fram kemur fyrr í við­tal­inu, fékk Katrín síð­ustu skila­boðin frá syni sínum sama morgun og hann hvarf frá borði. „Ég vakn­aði með slæma til­finn­ingu þennan morgun og sím­talið síðar þann sama dag var auð­vitað mjög erfitt. Ég hafði fengið snapp frá Axel sem virð­ist hafa verið sent tveimur til þremur mín­útum áður en hann hvarf en í skila­boð­unum sagði hann ein­fa­d­lega – „Fyr­ir­gefðu mamma, að ég hef ekki verið í sam­bandi” en ég fékk aldrei snöpp frá honum, því við töl­uðum ekki mikið saman á Facebook og Snapchat, þrátt fyrir að sam­band okkar hafi verið gott að öllu leyti. Kannski var hann með snappið á sér þegar hann lést. Þetta gerð­ist allt svo hratt”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una