Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Þór myrti Braga í Vesturbænum – Vopnaður kjötexi, slaghamri og sveðju

Þór myrti Braga í Vesturbænum – Vopnaður kjötexi, slaghamri og sveðju

Í febr­ú­ar­mán­uði árið 2002 fannst 51 árs gam­all stræt­is­vagna­bíl­stjóri, og fyrr­ver­andi blaða­maður, Bragi Ósk­ars­son, lát­inn á Víðimel í Vesturbæ Reykja­víkur. Lát hans hafði aug­ljós­lega borið að með hrotta­legum hætti en hann hafði fengið fjöl­mörg högg í höfuð og and­lit af völdum kjöt­exis, slag­ham­ars og sveðju, eins og síðar kom fram í skýrslu rétt­ar­meina­fræð­ings.

Ekkert hafði Bragi til saka unnið nema að vera svo ógæfu­samur að vera á röngum stað á röngum tíma.

Sömu nótt var brot­ist inn á dekkja­verk­stæði við Ægisíðu og leiddu vís­bend­ingar úr inn­brot­inu lög­reglu til bana­manns Braga. Var það meðal ann­ars um líf­sýni að ræða.

Tvær milljónir í kókaín

Í ljós kom að morð­ing­inn var hinn 24 ára gamli Þór sem var þá um nótt­ina á þvæl­ingi um Vest­ur­bæ­inn eftir partý­höld og ferðir um vín­veit­inga­hús borg­ar­innar. Þór hafði þá ekki sofið svo dögum skipti vegna gríð­ar­legrar fíkni­efna­neyslu og hafði meðal ann­ars keypt kókaín fyrir tvær millj­ónir króna vik­urnar á undan, svo djúpt var Þór í fastur í fíkn­inni. Þór var staddur í Vest­ur­bænum í pen­inga­leit til að fjár­magna frek­ari fíkni­efna­kaup og ákvað að brjót­ast inn á dekkja­verk­stæðið, vopn­aðuð exi, hamri og sveðju.

Lögregla á morð­stað á Víði­melnum.

Það var svo fyrir til­viljun eina að Þór rekst á Braga í Víði­melnum en Bragi var þá á heim­leið. Þór er einn til frá­sagnar um árasina en svo virð­ist sem æði af völdum fíkni­efna­neyslu hafi runnið á hann sem varð til þess að hann réð­ist af slíkri heift á Braga að hann lést að völdum sára sinna. Játaði Þór verkn­að­inn við hand­töku og vís­aði lög­reglu á morð­vopnin og blóðug föt í rusla­tunnu rétt við morð­stað­inn.

Eftir morðið mun Þór hafa haldið á fund félaga sinna í Aust­ur­bergi í Breið­holt­inu. Fékk hann einum þeirra 40 þús­und krónum í seðlum og nokkur þús­und pes­eta, afrakst­ur­inn af inn­brot­inu í dekkja­verk­stæðið. Kvaðst hann enn­fremur „dálítið hafa komið upp á og hann hefði drepið mann”. Félag­arnir gáfu lítið fyrir það og héldu út að kaupa meira af fíkni­efnum.

Það er síðan um morg­unin að ein­hver partí­gesta kveikir á sjón­varp­inu og sér þar frétt um að lík karl­manns hafi fund­ist á Víði­melnum. Var þá Þóri trúað.

Hræðilegar afleiðingar neyslu

Geðlækn­ir sem rann­sak­aði Þór taldi hann vera sak­hæf­an. Fram kem­ur í dómn­um að það sé álit lækn­is­ins að Þór ætti ekki við geð­sjúk­dóma að stríða og ekki væru und­ir­liggj­andi nein­ir per­sónu­leika­brest­ir. Hann væri ung­ur maður með ágæt­ar gáf­ur og marga góða hæfi­leika, ró­leg­ur, en hefði byrjað ung­ur að drekka áfengi og hafi ánetj­ast fíkni­efn­um fyr­ir um tveim­ur árum og farið fljótt í mikla fíkn.

Verkn­aður­inn hefði verið fram­inn und­ir áhrif­um vím­unn­ar. Þreyta og ofskynj­anir hefðu gert Þór að bana­manni. Fyrir dómi kom fram að hann hefði fengið með­ferð­ar­mögu­leika á Vogi, sem hann hefði ekki ráðið við og senni­leg­ast ekki verið til­búin til að takast á við. Geð­læknir sagði það vera ef til vill óvana­legt við mál Þórs að um hafi verið að ræða til­tölu­lega stutta neyslu­sögu af al­var­leg­um fíkni­efn­um, og einnig það að ekki séu nein­ir al­var­leg­ir per­sónu­leika­brest­ir und­ir­liggj­andi hjá hon­um. Hér væri því um að ræða hræði­leg­ar af­leið­ing­ar þess sem geti orðið þegar menn séu í mik­illi neyslu. Sagði lækn­ir­inn ólík­legt að Þór myndi fremja við­líka glæp væri hann ekki und­ir áhrif­um fíkni­efna.

Ekki öllum spurningum svarað

Ýmsum spurn­ingum var hins vegar ósvarað varð­andi morðið, til að mynda voru skó­för við líkið sem ekki var unnt að rekja og ljóst var að líkið hafði verið hreyft til. Aldrei voru þó fleiri en Þór grun­aði um að bana Braga. Sjálfur sagð­ist Þór muna glopp­ótt eftir atburð­unum, lítið sem ekk­ert um árás­ina sjálfa en ein­hver atriði eftir það. Sér­fræð­ingur kvað fyrir dómi ekki úti­lokað að þar væri um sjálf­valið minnis­leysi að ræða.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Þór til 16 ára fang­els­is­vistar þann 8. jan­úar 2003 á grunni rann­sókn­ar­gagna og ský­lausrar játn­inga auk þess sem honum var gert að greiða móður Braga eina og hálfa millj­ón króna í skaða­bæt­ur.

Þór hefur náð tökum á lífi sínu og hefur ekki kom­ist í kast við lögin síðan þetta gerð­ist. Hann er fjöl­skyldu­maður og lifir í dag reglu­sömu lífi og hefur menntað sig sem íþrótta­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina