Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðfinna og Haraldur hafa opnað fyrstu handverks- og föndurloppuna á Íslandi

Guðfinna og Haraldur hafa opnað fyrstu handverks- og föndurloppuna á Íslandi

Það er ekk­ert nema jákvætt fyrir neyt­endur og umhverfið að fleiri og fjöl­breytt­ari loppu­versl­anir skjóti upp koll­inum hér á landi en þann 1. júní, opn­aði Óska­stund, hand­verks/föndur loppu í Graf­ar­vog­inum og eru það gleði­tíð­indi fyrir neyt­endur. Guðfinna Rós­ants­dóttir og sam­býl­is­maður hennar Haraldur Ingi Magn­ús­son mynd­lista­maður eru eig­endur Óska­stundar en þau hafa verið að bjóða fjöl­breytt nám­skeið er tengj­ast list og föndri ýmiss konar. Mannlíf hafði sam­band við þau og for­vitn­að­ist um málið.

Afgreiðslu­borðið í fönd­ur­loppu Óska­stundar
Það er óðum að fyll­ast í hillur fönd­ur­loppu Óska­skríns

Nýjung á Íslandi

Við opn­uðum 1.júní að Hverafold 1-3 (að ofan­verðu) hand­verk­slopp­una Óska­stund með örlítið öðru­vísi sniði þó en gengur og ger­ist hjá loppu­versl­unum. Við tökum vörur í umboðs­sölu og rukkum ekk­ert aðstöðu­gjald og fólk þarf ekki að halda úti básum sjálft. Við tökum 30 pró­sent af sölu­verði í þóknun og hjá okkur er greitt út alla fimmtu­daga. Við tökum við vörum á opn­un­ar­tíma en það er líka hægt að hafa sam­band við okkur utan þess tíma til þess að koma með varn­ing í sölu. Talið berst að því hvernig þeim datt í hug að opna fönd­ur­loppu og Guðfinna segir að þau hafi alltaf verið með smá verslun í öðrum helm­ingi hús­næð­is­ins þar sem fólk gat keypt sér efni eins og striga, mál­ingu og fleira eftir nám­skeiðin til þess að halda áfram heima. Þau ákváðu svo í framald­inu að slá til og opna verslun með not­uðum og nýjum vörum í umboðs­sölu. Guðfinna og Haraldur vinna í mik­illi sam­vinnu í sínu fyr­ir­tæki en Guðfinna hefur kennt á svona nám­skeiðum í 28 ár og Haraldur er eins og áður sagði mynd­list­ar­maður.

Guðfinna Rós­ants­dóttir
Haraldur Ingi Magn­ús­son

Búbót fyrir alla

Fólk getur komið með allt milli him­ins og jarðar sem teng­ist hand­verks­gerð eða fönd­ur­gerð. Margir eiga efni­við sem liggur ónot­aður jafn­vel inni í geymslu og þá er til­valið að mæta með hann til okkar og koma í verð. Þetta er auð­vitað búbót fyrir fólk, að geta komið til okkar og verslað það sem til þarf á góðu verði. Allir vinna og það er alltaf best þannig. Efni­viður, tæki og tól sem notuð eru til hand­verks og fönd­ur­gerðar eru allt annað en ódýr út úr búð svo þetta ætti að vera frá­bær kostur fyrir þá sem þurfa að kaupa þess konar varn­ing. Við tökum bæði ónot­aðar og not­aðar vörur í umboðs­sölu en þó skal það tekið fram að við erum ekki að taka til sölu til­búið föndur eða hand­verk. Það verður opið að minnsta kosti til þess að byrja með tvo daga í viku, þriðju­daga og mið­viku­daga frá 14 til 18.

Áhrif Covid

Guðfinna og Haraldur hafa um ára­bil haldið ýmiss konar nám­skeið er snúa að list og fleiru eins og gerð sápa og þess háttar. Þegar Covid skall á hafði það tölu­verð áhrif á lífs­við­ur­væri þeirra þó þau hafi reynt að aðlag­ast aðstæðum og bjóða upp á heim­send nám­skeið. Þá fær fólk sendan til sín pakka með efni sem teng­ist því sem það vill læra og fær kennsl­una raf­rænt.Guðfinna og Haraldur vinna bæði úti eftir að Covid skall á en eru þó líka með nám­skeiðin og núna nýju versl­un­ina. Það er greini­legt að hjónin deyja ekki ráða­laus í þeim mjög slæmu aðstæðum sem hafa herjað á alla heims­byggð­ina. Guðfinna og Haraldur hafa einnig staðið fyrir nám­skeiðum víða um landið á síð­ustu miss­erum sem duttu auð­vitað líka upp fyrir vegna far­ald­urs­ins. Í sumar ætla þau að bjóða upp á nám­skeið í Reykja­vík, Keflavík og á Selfossi. Hjónin hafa boðið upp á sum­ar­nám­skeið fyrir börn á aldr­inum 5 til 11 ára sem eru mjög skemmti­lega sett upp hjá þeim. Nám­skeiðin eru auð­vitað fyrst og fremst lista- og föndur tengd en þar að auki fá krakk­arnir að elda, baka og margt fleira skemmti­legt. Það er því fjörugt sumar framundan hjá Óska­stund.

Óska­stund býður upp á mörg spenn­andi nám­skeið meðal ann­ars bað­salts gerð

Hér má finna Facebook síðu Óska­stundar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við