Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Endur reknar af bensínstöð: Nakinn maður að níðast á girðingu

Endur reknar af bensínstöð: Nakinn maður að níðast á girðingu
Lög­reglan

Nakinn maður, óvel­komnar endur og maður vopn­aður boga og örvum eru meðal þeirra sem náðu á skrá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins síð­ast­liðna nótt sem var með fjörug­asta móti. Mikið álag var á sjúkra­flutn­inga­fólk og til þess kom að kalla þurfti út mann­skap af slökkvi­stöðvum ann­ars staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Síðasta sól­ar­hring­inn voru 102 boð­anir á sjúkra­bíla, þar af 27 for­gangsút­köll.

Flest voru útköllin tengd skemmt­an­lífi mið­borg­ar­innar þar sem mikið var um ölvun og óskunda.

Berrasaður við girðingu

Lögregla var kölluð til er sást til tveggja manna reyna að brjóta niður girð­ingu og var annar þeirra nak­inn. Ástæðan er ókunn enda voru menn­irnir á bak og burt þegar lög­reglu bar að garði.

Tvö út­köll voru á slökkvi­bif­reiðar, annað var vegna eld­s í bíl­skúr í Mos­fells­bæ um miðjan dag í gær sem gekk greið­lega að slökkva og hitt mun hafa verið minni­hátt­ar vatns­tjón.

Tvær ábend­ingar komu um slasað fólk í mið­bænum, konu, sem vissu­lega reynd­ist slösuð þótt ekki komi fram hver alvar­lega, svo og karl­mann sem ekki var slas­aður en aftur á móti ofurölvi.

Bláedrú endur á bensínstöð

Drykkju­skapur borg­ar­búa virð­ist hafa verið með mesta móti síð­ast­liðin sól­ar­hring en þær voru hins vegar blá­edrú end­urnar sem lög­reglan var kölluð til að vísa út af bens­ín­stöð í Kópavogi í gærkveldi. Þar hafði anda­hópur komið sér vel fyrir og hugði ekki á brott­för. Lögreglu gekk þó vand­ræða­laust að vísa þeim á dyr.

Maður hefur verið kærður fyrir brot á vopna­lögum en hann var vopn­aður boga og örvum þegar lög­reglu bar að honum í Árbæ í gærkveldi. Kvaðst hann vera að æfa sig að skjóta í tré í sam­tali við lög­reglu­menn. Var hann í ann­ar­legu ástandi og dóna­legur við lög­reglu­menn.

Partýlæti, innbrot og stútar við stýri

Partý­hald var með líf­leg­asta móti í Breið­holt og Kópavogi í nótt og var lög­regla ítrekað kölluð þar til vegna hávaða. Tveir voru síðan hand­teknir í Graf­ar­holti eftir til­kynn­ingu um slags­mál. Reyndist annar mað­ur­inn vopn­aður hnífi og fengu báðir að gista fanga­geymslur í kjöl­farið. Sama má segja um konu í Grafa­vogi sem til­kynnt var um að væri í ann­ar­legu ástandi. Þegar lög­regla hugð­ist keyra hana heim til sín spark­aði hún í lög­reglu­mann og var þar með vistuð í fanga­geymslum.

Nokkuð var um inn­brot á heim­ili svo þjófn­aði í mat­vöru­versl­unum.

Ölvaður öku­maður varð valdur að árekstri í Breið­holti og hand­tek­inn svo og annar sem auk á staur í Laug­ar­dal. Sá er tal­inn hafa verið bæði undir áhrifum áfengis og fíkni­efna. Þriðji stút­ur­inn var hand­tek­inn í Hafn­ar­firðin eftir að hafa keyrt á aðra bif­reið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina