Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Garðari hafnað í þeim framhaldsskólum sem hann valdi: „Í dag er ég mjög döpur fyrir hans hönd“.

Garðari hafnað í þeim framhaldsskólum sem hann valdi: „Í dag er ég mjög döpur fyrir hans hönd“.
Garðar með fjöl­skyldu sinni. Mynd: Úr einksafni.

„Á morgun er Garðar sonur minn að útskrif­ast úr 10. bekk í Kletta­skóla. Eins og þið flest vitið er hann með Downs heil­kenni. En í dag er ég mjög döpur fyrir hans hönd,“ segir Bene­dikta Birg­is­dóttir um þá nið­urs­stöðu að Garðar fær ekki inni í þeim fram­halds­skólum sem hann óskaði eftir.„Í vetur fórum við for­eldr­arnir hans og hann sjálfur að skoða fram­halds­skóla. Við vorum öll spennt­ust fyrir Fjölbrauta­skólanum í Breið­holti og ákváðum að setja það sem fyrsta val. Í annað val settum við svo Borg­ar­holts­skóla. Við vorum mjög vongóð um að hann fengi pláss í öðrum hvorum þess­ara skóla,“ skrifar Bene­dikta í ítar­legri færslu á Facebook.Svo fór ekki. Garðar fékk höfnun en honum til­kynnt að honum væri ætlað að fara æi annan skóla.„ Í dag barst bréf þess efnis að hann væri kom­inn með pláss í Fjölbrauta­skólanum við Ármúla. Nú erum við ekk­ert að setja út á þann skóla, eflaust fer fram mjög fínt starf þar, fyrir þau börn sem hentar að vera þar. Það var okkar til­finn­ing að Garðar ætti betur heima í hinum skólunum tveimur. Í FB er mikið af krökkum sem Garðar þekkir og það þykir okkur mik­il­vægt,“ skrifar hún

Getur ein­hver bent mér á hvað hægt er að gera í þess­ari stöðu?

Hún seg­ist hafa heyrt að árgang­ur­inn í ár sé óvenju­stór og þess vegna hafi höfn­unin komið.Bene­dikta spyr af hverju er ekki sé búið að finna út úr því að börnin fái pláss þar sem þau og fjölskyldur þeirra telji að þeim vegn­ist best.  Hún seg­ist vita að ung­lingar fái almennt ekki endi­lega pláss í þeim skólum sem þau óska eftir.„En afsakið, það gildir bara ekk­ert það sama um fötluð og ófötluð börn. Ófötluð börn eru almennt mun betur í stakk búinn til þess að aðlag­ast og kynn­ast nýju fólki o.s.frv. Félaga­val fatl­aðra barna er bara ekki jafn fjölbreytt og hjá öðrum, tel ég því afar mik­il­vægt fyrir þennan hóp að þau fái að vera sem mest með þeim sem þau eiga sam­leið með,“ skrifar hún.Bene­dikta seg­ist vera ráða­laus og óskar eftir lið­sinni fólks við að leysa málið.„Getur ein­hver bent mér á hvað hægt er að gera í þess­ari stöðu?“

Pistill Bene­diktu í heild sinni:

Á morgun er Garðar sonur minn að útskrif­ast úr 10. bekk í Kletta­skóla. Eins og þið flest vitið er hann með Downs heil­kenni. En í dag er ég mjög döpur fyrir hans hönd.Í vetur fórum við for­eldr­arnir hans og hann sjálfur að skoða fram­halds­skóla. Við vorum öll spennt­ust fyrir Fjölbrauta­skólanum í Breið­holti og ákváðum að setja það sem fyrsta val. Í annað val settum við svo Borg­ar­holts­skóla. Við vorum mjög vongóð um að hann fengi pláss í öðrum hvorum þess­ara skóla. Í dag barst bréf þess efnis að hann væri kom­inn með pláss í Fjölbrauta­skólanum við Ármúla. Nú erum við ekk­ert að setja út á þann skóla, eflaust fer fram mjög fínt starf þar, fyrir þau börn sem hentar að vera þar. Það var okkar til­finn­ing að Garðar ætti betur heima í hinum skólunum tveimur. Í FB er mikið af krökkum sem Garðar þekkir og það þykir okkur mik­il­vægt.Við höfum heyrt að þessi árgangur sé mjög stór og það hafi verið erfitt að koma þessum börnum öllum fyrir. Hvað hefur það legið lengi fyrir að þetta sé stór árgangur? Af hverju er ekki búið að finna út úr því að þessi börn fái pláss þar sem þau og fjölskyldur þeirra telji að þeim vegn­ist best? Nú veit ég að ung­lingar almennt fá ekk­ert endi­lega pláss í þeim skólum sem þau óska eftir. En afsakið, það gildir bara ekk­ert það sama um fötluð og ófötluð börn. Ófötluð börn eru almennt mun betur í stakk búinn til þess að aðlag­ast og kynn­ast nýju fólki o.s.frv. Félaga­val fatl­aðra barna er bara ekki jafn fjölbreytt og hjá öðrum, tel ég því afar mik­il­vægt fyrir þennan hóp að þau fái að vera sem mest með þeim sem þau eiga sam­leið með.Annað er að síðan fékk Garðar ekki inngöngu í Hitt húsið, því eins og þið vitið verða fötluð börn að vera áfram í frístund eftir skóla, því ekki fara þau ein heim eftir skóladag­inn sinn. Hann fékk ekki inngöngu þangað vegna búsetu okkar (Kjós). Hitt húsið er eingöngu fyrir börn í Reykjavík. Hins vegar var okkur bent á frístund­arúrræði í Hafn­ar­firði! Það þykir bara allt í lagi að fatl­aða barnið ferð­ist á hverjum degi í skóla til Reykjavíkur, fari svo með bíl til Hafn­ar­fjarðar í frístund og þangað þyrfti ég að sækja hann á hverjum degi (því ekki er möguleiki á að nýta ferða­þjónust­una heim í Kjósina) og keyra síðan alla leið heim í Kjós. Það sér hver mann­eskja að það er hrein­lega galið! Ég var búin að senda tölvupóst á yfir­mann Hins hússins með alls kyns rökum um það að fyrir okkur væri Hitt húsið besti kost­ur­inn fyrir Garðar, bæði vegna búsetu okkar og einnig vegna félags­legu hlið­ar­innar þar sem Garðar þekkir fullt af krökkum sem þangað koma. En nei, computer says no. Getur ein­hver sagt mér af hverju í ósköpunum þetta er svona? Af hverju er ekki hægt að taka til­lit til aðstæðna hvers barns?Það eru sem sagt tvöföld von­brigði á þessum bænum þessa dag­ana. Getur ein­hver bent mér á hvað hægt er að gera í þess­ari stöðu?P.S. Fyrst ég er byrjuð, finnst ykkur eðli­legt að fjölskyldur fatl­aðra barna þurfi að borga fullt gjald fyrir sum­arbúðir fyrir börnin sín? Garðar fer í Reykja­dal á hverju sumri og þykir það okkur ómissandi fyrir okkur öll. Fyrir Garðar sem fær þar að eyða tíma með félögum og vinum og fyrir okkur hin sem fáum smá pásu á umönnun fatl­aða barns­ins okkar, því eins og þið vitið er það vinna að vera alltaf með barn sem eld­ist en er samt að mörgu leyti eins og 4-5 ára barn (getur ekki verið einn heima o.s.frv.). En við þurfum á hverju sumri að borga fyrir hann í þessa dvöl 114.000 kr. Væri ekki eðli­legt að þessi þjónusta væri gjald­frjáls fyrir fólk sem í raun hefur ekki val um þessa þjónustu, heldur verður að nýta sér hana?Góðar stundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina